Landlæknir og heilbrigðisráðherra mætast í Pressu

Alma D. Möller land­læknir og Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra verða gestir Pressu í dag. Willum og Alma leiða bæði lista í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ingum, fyrir ólíka flokka þó.

Landlæknir og heilbrigðisráðherra mætast í Pressu
Oddvitar Alma D. Möller land­læknir og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og odd­viti Fram­sóknar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi verða gestir í Pressu í dag.

Alma D. Möller land­læknir og Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra verða gestir Pressu sem sýnd verður á vef Heim­ild­ar­innar klukkan 13. 

Willum leiðir lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi en í sama kjör­dæmi býður Alma fram krafta sína. Hún leiðir lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, svoköll­uðum Kraga vegna þess hvernig hann umlykur Reykja­vík.

Heil­brigð­is­kerfið verður tekið fyrir í umræð­unum í Pressu í dag enda þekkja Alma og Willum bæði vel til.

Meðal ann­ars verður snert á stöð­unni á bráða­mót­töku en í umfjöllun Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar í Heim­ild­inni í dag er rýnt í hana. Þar kemur fram að vegna pláss­leysis á legu­deildum Land­spít­ala er bráða­móttakan oft yfir­full. Þetta leiddi af sér að í sept­em­ber og októ­ber dvöldu 69 sjúk­lingar bráða­mót­tök­unnar í yfir 100 klukku­stundir á deild­inni. Jóhannes mætir í Pressu á eftir Ölmu og Willum og segir nánar frá efni þátt­anna Á vett­vangi þar sem bráða­móttakan er vett­vang­ur­inn. 

Áskrif­endur geta fylgst með Pressu á vef Heim­ild­ar­innar klukkan 13.00 eða fundið upp­töku af honum á vefnum eftir útsend­ingu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár