Kosningar settu fjárhag flokkanna upp í loft

Tug­millj­óna munur er á fjár­fram­lögum til ein­staka flokka á milli ára sem tekur mið af gengi þeirra í nýaf­stöðnum alþing­is­kosn­ingum. Sextíu millj­óna sveiflur, bæði til og frá, eru hjá þeim sem unnu stærst eða töp­uðu mestu.

Kosningar settu fjárhag flokkanna upp í loft
Björt fram­tíð Fjár­hagur flokk­anna þriggja sem nú standa í stjórn­ar­myndun er bjartur, enda fá flokk­arnir tugum millj­óna hærra fram­lag úr rík­is­sjóði en þeir gerðu í ár. Á mynd­inni eru Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, og Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Golli

Fjár­hags­staða Sam­fylk­ing­ar­innar mun taka stakka­skiptum í byrjun næsta árs, þegar flokk­ur­inn fær um 134 millj­óna króna úthlutun úr rík­is­sjóði. Árangur þeirra í nýaf­stöðnum kosn­ingum tryggir þessa miklu fjár­veit­ingu, sem er 60 millj­ónum krónum hærri en sú síð­asta sem Sam­fylk­ing fékk við útdeil­ingu rík­is­styrkja til stjórn­mála­flokka.

Aðrir flokkar sem bættu við sig í kosn­ing­unum koma líka til með að finna fyrir banka­reikn­ingum sínum bólgna á meðan þeir sem fengu slæma útreið þurfa lík­lega að grípa til aðgerða. Þannig nýtur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn um 65 millj­ónum króna lægri styrkja nú á nýju ári en flokk­ur­inn hefur gert und­an­farin fjögur ár. 

Ekki er enn hægt að glöggva sig á fjár­hags­legri stöðu þess­ara tveggja flokka þar sem Rík­is­end­ur­skoðun er enn að rýna í árs­reikn­inga þeirra. Það er ekki fyrr en eftir að þeirri rýni lýkur sem þeir eru birtir opin­ber­lega. Framsókn skil­aði sínum reikn­ingi síð­ast­lið­inn mið­viku­dag en Sam­fylk­ing skil­aði 25. nóv­em­ber. 

Straumlínulöguð vinstrihreyfing

Staða …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár