Lands­fundur Lands­þing Vinstri grænna í októ­ber var hugsað sem nýtt upp­haf fyrir flokk­inn, en þar tók Svandís Svav­ars­dóttir við for­mennsk­unni. Þess í stað verður lands­þings­ins og eft­ir­málum þess mögu­lega minnst sem upp­hafs­ins að end­inum í 25 ára sögu Vinstri grænna. Á þess­ari mynd sjást allir fjórir for­menn hreyf­ing­ar­innar á þessum tíma. Mynd: Golli

Hreyfing reytt og tætt: Ris og fall Vinstri grænna

Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð virð­ist í and­ar­slitr­unum. Atkvæðin í kosn­ing­unum voru innan við fimm þús­und tals­ins, tekju­streymi flokks­ins úr rík­is­sjóði er horfið. Fram­haldið er óljóst en fallið er hátt eftir sjö ár í rík­is­stjórn. Hvað olli því að það fór svona ægi­lega illa fyrir flokknum?

Fyrir nokkrum vikum síðan velti blaða­maður Heim­ild­ar­innar því upp við nokkra álits­gjafa hvort sú ákvörðun Vinstri grænna að segja sig frá því að sitja í starfs­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn væri til þess fallin að auka fylgi flokks­ins, sem þá var að mæl­ast með fylgi um þremur pró­sentum á lands­vísu í sumum skoð­ana­könn­unum. 

Til­finn­ing blaða­manns var að svo væri ekki og álits­gjaf­arnir voru sömu skoð­unar. Þvert á móti gæti þetta reynst póli­tískt sjálfs­mark. Blaða­grein upp úr þessum sam­tölum reyndar birt­ist aldrei þar sem úrvinnslan tafð­ist og umræðan um þessa ákvörðun Vinstri grænna leið fljótt hjá.

Nú er hins vegar þessi ákvörðun, að neita að stýra ráðu­neyt­unum fram að kosn­ingum, nefnd af sumum við­mæl­endum blaðs­ins sem ein helsta ástæðan fyrir því að Vinstri græn hafa þurrkast út af þingi. Enginn hafi skilið þessa ákvörðun almenni­lega, heldur hafi hún litið út eins og eitt­hvert skyndi­legt fýlu­kast í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unnar. 

…

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgir Hauksson skrifaði
    "allir þessir sérfræðingar og þessir greinendur hafa haft rangt fyrir sér" sagði Svandís.
    Yfirlætið, hrokinn og brengluð sannfæring um eigið mikilvægi er rauði þráðurinn hjá VG.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Vinstri flokkur er jafn nauðsynlegur hér og aðrir flokkar.
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þetta fyllir mig ánægju! Verst að Sigurður Ingi hafi sloppið inn hjá Framsókn. Nú vona ég bara að samstarf Flokks Fólksins, Viðreysnar og Samfylkingar komist á koppinn og endist.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið undanfarið ár