Hvað greinir að Sósíalistaflokkinn og Vinstri græn?

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, fram­bjóð­andi Vinstri grænna, og Gunnar Smári Egilsson, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, ræddu um ólíkar stefnur flokka sinna í nýjasta þætti Pressu. Ræddu þau meðal ann­ars um áherslur flokk­anna á femín­isma og umhverf­is­mál.

Pressa Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, og Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokksins, voru gestir Aðalsteins Kjartanssonar í Pressu í dag.

 „Það var vilji til að taka upp þennan kyndil og byggja upp sós­íal­ískan flokk sem legði ekki bara áherslu á fram­boð til borg­ara­legra stjórn­mála eins og þings og sveit­ar­stjórna heldur tæki þátt í end­ur­reisn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem bar­áttu­tækis alþýð­unnar.“

Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, odd­viti Sós­í­alista í Reykja­vík norður, spurður hvað greindi flokk hans frá Vinstri grænum. Hann var við­mæl­andi Aðal­steins Kjart­ans­sonar í nýjasta þætti Pressu í hádeg­inu ásamt Rósu Björk Brynj­ólfs­dótt­ur, sem skipar 2. sætið á lista Vinstri grænna í sama kjör­dæmi og hann. 

Vinstri græn hafi yfirgefið verkalýðshreyfinguna

Gunnar Smári segir að með stofnun Sós­í­alista­flokks­ins hefði kynd­ill rót­tækrar verka­lýðs­bar­áttu verið tek­inn upp á ný, en Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð hefði að ein­hverju leyti lagt hann frá sér. Hann segir áherslur flokk­anna tveggja mjög ólíkar. „Það er veiga­mik­ill munur út frá taktík, hvernig þú lítur á að bar­áttan eigi að vera háð.“ 

Rósa Björk segir að auð­vitað séu margar áherslur flokk­anna þegar kemur að félags­hyggju og almanna­þjón­ustu keim­líkar en VG leggi tals­vert meiri áherslu á femín­isma og umhverf­is­mál, ólíkt sós­í­alistum.

„Mér finnst femínísk stefna Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og umhverf­is­málin séu algjör­lega aðskilin frá Sós­í­alista­flokknum. Þar beri þá þessa flokka algjör­lega í sundur,“ segir Rósa Björk.

„Síðan er það kannski þessi reynsla og ábyrgð­ar­kennd sem Vinstri græn búa yfir. Svo myndi ég líka kannski nefna það að VG hefur nú verið meira í nútím­anum og fram­tíð­inni en Sós­í­alista­flokk­ur­inn. Og boðar nútíma­legri stjórn­mál en Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur gert hingað til.“ 

Ósammála um áherslur hvors annars á femínisma

Gunnar Smári segir að að mati sós­í­alista sé for­senda þess að ná árangri í umhverfis- og mann­rétt­inda­málum að ná árangri í bar­átt­unni fyrir félags­legu rétt­læti. 

„Það ber þess ekki merki í stefnu Sós­í­alista­flokks­ins að vera femínískur flokkur eða umhverf­is­vernd­ar­flokkur,“ var svar Rósu Bjarkar. Gunnar Smári sagði þá að hún hefði ekki lesið stefnu flokks­ins. „Ég get sent þér hana.“

Rósa full­yrti hins vegar að hún hefði lesið hana nokkrum sinnum. „Þú segir að sós­í­alistar leggi áherslu á umhverf­is­málin og femínísku málin. Ég sé það ekki í stefn­unni eða mál­flutn­ingnum.“

Gunnar Smári sagði þá að Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins, hefði náð miklum árangri í bar­áttu lág­launa­kvenna fyrir efna­hags­legu sjálf­stæði. „Þetta hefur ekki verið gert með stuðn­ingi femíníska flokks­ins, VG. Þvert á móti. Við höfum ekki fundið fyrir neinum stuðn­ingi þar.“

Horfa má á nýjasta þátt Pressu í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár