„Þetta er bara kjaftæði“

Kristján Þ. Dav­íðs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva og stjórn­ar­for­maður Brims, segir ummæli sín um lax­eldi hafa verið rang­túlkuð í Der Spiegel.

„Þetta er bara kjaftæði“
Er ekki á móti sjó­kvía­eldi Kristján Dav­íðs­son, stjórn­ar­for­maður Brims, segir alrangt að hann sé á móti sjó­kvía­eldi á laxi, líkt og fram kemur í grein þýska blaðs­ins Der Spiegel.

„Það sem ég sagði við hann var: Fiskeldi er komið til að vera á Íslandi. Það er hægt að gera það ef það er gert almenni­lega. En það eru tvö fyr­ir­tæki hér á landi sem eru í eigu Norð­manna sem eru illa búnir að skíta í heyið og þeir verða bara að hysja upp um sig bræk­urnar,“ segir Kristján Þ. Dav­íðs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva og stjórn­ar­for­maður útgerð­ar­ris­ans Brims, í sam­tali við Heim­ild­ina, aðspurður um við­tal sem hann veitti þýska tíma­rit­inu Der Spiegel nú í apríl. Með norsku fyr­ir­tækj­unum á hann við Arctic Fish og Arnarlax.

Í við­tal­inu var haft eftir Krist­jáni að honum þætti sjó­kvía­eldi í íslenskum fjörðum vera „ógeð­fellt“ og að hann teldi að ann­að­hvort ætti lax­eldi að vera á landi eða úti á rúm­sjó, fjarri íslenskum fjörðum. Þessi ummæli Krist­jáns vöktu athygli þar sem hann hefur unnið fyrir hags­muna­sam­tök sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækja og talað fyrir slíku eldi í mörg ár.

Kristján segir hins vegar að hann sé alls ekki á þeirri skoðun að hætta eigi sjó­kvía­eldi á Íslandi. „Alls ekki, alls ekki. Ég er nú í stjórn land­eld­is­fyr­ir­tækis og hlut­hafi í því og ég er líka hlut­hafi í sjó­kvía­eldi og ég held að þetta geti mjög vel lifað saman. Landeldi verður alltaf bara lítil pró­senta af heild­ar­fram­leiðslu heims­ins. Bara út af orku­kostn­aði, fjár­fest­ing­ar­kostn­aði og bara öllu. Þetta er svo dýrt. Landeldi verður alltaf bara niche-atvinnu­grein,“ segir Kristján. 

Hann seg­ist ekki skilja hvernig ummæli hans hafi verið mistúlkuð svona í við­tal­inu. „Þetta er bara kjaftæði sem stendur í grein­inni. Ég er alls ekki á móti sjó­kvía­eldi: Bara dream on [...] Ég get ekki tekið ábyrgð á því sem ein­hver þýskur blaða­maður skrifar.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár