Sunna Valgerðardóttir ráðin til þingflokks VG

Sunna Val­gerð­ar­dóttir, frétta- og dag­skrár­gerð­ar­kona á RÚV, hefur verið ráðin til starfa hjá þing­flokki Vinstri grænna. Í til­kynn­ingu sem birt er á vef VG seg­ist Sunna hlakka til þess að takast á við spenn­andi tíma í póli­tík­inni á hinum enda borðs­ins.

Sunna Valgerðardóttir ráðin til þingflokks VG
Sunna Val­gerð­ar­dóttir , tekur við nýju starfi hjá þing­flokki VG og kveður fjöl­miðla eftir 15 ára far­sælt starf á þeim vett­vangi

Sunna Val­gerð­ar­dóttir, frétta- og dag­skrár­gerð­ar­kona á RÚV, hefur verið ráðin til starfa hjá þing­flokki Vinstri grænna. Í til­kynn­ingu sem birt var á vef VG fyrir skömmu seg­ist Sunna vera spennt fyrir starf­inu. 

„Það eru ótrú­lega spenn­andi tímar fram undan í póli­tík­inni og ég hlakka til að takast á við þá hinum megin borðs­ins. Blaða­mennsk­unni fylgja þau for­rétt­indi að geta bent á það sem betur má fara og látið svo aðra um að laga. Það er ekki auð­velt að segja skilið við þann dýr­mæta skóla sem hefur kennt mér svo margt, en breyt­ingar eru af hinu góða og þessi er tíma­bær.”

Sunna deildi til­kynn­ingu VG í færslu á Facebook-síðu með stuttri yfir­skrift: „Áfram gakk.“ 

Sunna hefur starfað í fjöl­miðlum und­an­farin 15 ár og hefur sér­svið hennar verið póli­tískar fréttir. Lengst af hefur Sunna starfað hjá RÚV en á ferli sínum hefur hún komið við hjá fjöl­miðlum á borð við Frétta­blaðið, Kjarnann, frétta­stofu Stöð 2, Vísis og Bylgj­unnar þar sem hún sá um frétta­skýr­ing­ar­þátt­inn Kompás. 

Sunna hefur tvisvar sinnum unnið til Blaða­manna­verð­launa fyrir störf sín. Fyrst árið 2012 og síð­ast árið 2022. Síðast vann hún verð­laun fyrir frétta­skýr­ingar á miðlum Sýnar og RÚV. Þar sem hún fjall­aði meðal ann­ars um trú­arof­beldi innan sér­trú­ar­söfn­uða og ópíóíða­far­ald­urs­ins sem hér geisar hér á landi. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár