Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Mikil keyrsla og vinnulá­lag Fyrr­ver­andi starfs­fólk Alvotech lýsir mik­illi keyrslu og vinnu­á­lagi hjá lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæk­inu sem mikið hefur gengið hjá til að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf gigt­ar­lyfs­ins Humira í Banda­ríkj­unum. Róbert Wessmann, stofn­andi og for­stjóri Alvotech, sést hér hringja við­skipti með Alvotech inn í Kauphöll 'Íslands. Mynd: Nasdaq Iceland

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.

starfs­menn lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alvotech í Vatns­mýri hafa leitað til stétt­ar­fé­lags­ins Visku vegna þess að þeir hafa unnið yfir­vinnu án þess að fá hana greidda. Þetta kemur fram í sam­tölum Heim­ild­ar­innar við fyrr­ver­andi starfs­menn Alvotech, bæði inn­lenda og erlenda. Georg Brynjars­son, fram­kvæmda­stjóri Visku, segir að slík erindi hafi komið inn á borð til stétt­ar­fé­lags­ins. Georg vill ekki greina frá fjölda þeirra kvart­ana sem komið inn á borð til Visku út af Alvotech. 

Allir átta fyrr­ver­andi starfs­menn­irnir sem Heim­ildin tal­aði við -eng­inn vill koma fram undir nafni - hafa bæði jákvæða og einnig nei­kvæða hluti að segja um fyr­ir­tækið og reynslu sína af því. Enginn þeirra er alfarið nei­kvæður í umsögnum sínum um fyr­ir­tækið enda störf­uðu sumir þeirra hjá Alvotech í fleiri ár. „Heilt yfir er ég ánægð með starfs­tíma minn hjá Alvotech. Þetta var dýr­mæt reynsla en vanda­málið er meðal ann­ars að Alvotech vildi ekki greiða mér fyrir yfir­vinn­una sem ég …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.
Félag Róberts seldi skuldabréf í Alvotech á 12 milljarða rétt fyrir verðhrun
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Félag Róberts seldi skulda­bréf í Alvotech á 12 millj­arða rétt fyrir verð­hrun

Félaga­net Róberts Wessman hefur inn­leyst hagnað af sölu lyfja­verk­smiðj­unnar í Vatns­mýri á sama tíma og hluta­bréfa­verð Alvotech hefur hrunið. Árni Harð­ar­son segir að sala félags Róberts á skulda­bréfum sem það fékk sem greiðslu fyrir verk­smiðj­una sé til­viljun og teng­ist ekk­ert synjun Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi til Alvotech.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár