„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
Alvar­legri en samt skemmti­legur Jón Gnarr þakkar sprell­inu fyrir sam­fylgd­ina. Það verður ekki með í för í kom­andi for­seta­fram­boði. Hann mun samt sem áður vera fynd­inn og skemmti­legur, enda vöntun á skemmti­leg­heitum og húmor í lýð­ræð­inu að hans mati. Mynd: Golli

„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“

Jón Gnarr er kom­inn í for­seta­fram­boð. Hann segir meiri þörf á gleði og húmor í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem offram­boð sé á leið­indum og er sann­færður um að þjóðin sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætlar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lofar að vera hvorki ofstopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hefur hann alltaf dreymt um að búa í Garðabæ.

Jón Gnarr vill verða for­seti Íslands. Það er raunar hug­mynd sem hann hefur borið með sér lengi, frá ung­lings­ár­unum, en höfðað mis­mikið til hans yfir ævina. Eftir að Jón var borg­ar­stjóri á árunum 2010 til 2014 var mikið skorað á hann að bjóða sig fram til for­seta. Hann hafði verið vin­sæll borg­ar­stjóri og tek­ist mun betur upp, við afar krefj­andi aðstæður, en margir höfðu átt von á. Samt ákvað Jón að hætta. Gefa frá sér valdið sem hann hefði getað haldið. Honum fannst skorta gleði og góð sam­skipti í til­ver­una. „Ég er ein­fald­lega ekki stjórn­mála­maður. Ég er grínisti,“ sagði Jón í útvarps­þætti sínum og Sig­ur­jóns Kjart­ans­sonar, Tvíhöfða, þegar hann til­kynnti um að hann ætl­aði ekki að bjóða sig aftur fram. 

Þessi ákvörðun, að vera til­bú­inn að stíga frá þegar hann þurfti þess ekki, jók á eft­ir­spurn­ina eftir Jóni. Fyrir lá á þessum tíma að Ólafur Ragnar Grímsson ætl­aði sér …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PK
    Páll Kristinsson skrifaði
    Ég kann því ekki vel að frambjóðendur beini sjónum sínum að öðrum frambjóðendum.
    0
  • GOR
    Gunnar Oddur Rósarsson skrifaði
    Afar hugsanahvetjandi viðtal. Það að ég nennti að lesa svona langt viðtal til enda á fössarakvöldi, segir mikið um kvussu impóneraður ég varð. Katrín er ágæt. En þennan SKEMMTILEGA og um leið skynsamlega vinkil, ræður hún sennilega ekki við.
    6
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Nú á að yfirfæra Borgarstjórabrandarann yfir á Forsetaembættið. Frekar þreytt pæling :-(
    -6
  • Ó nei. Það eru krakkarnir sem kjósa hann
    2
    • Bára Halldórsdóttir skrifaði
      Ég er nú 48 ára og hann vekur alveg áhuga hjá mér. Hann er meðal þriggja sem gera það.
      2
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Kýs Jón Gnarr.
    Ekki spurning.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár