Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
Byrjaði með bréfi Davíð Oddsson, þá seðla­banka­stjóri, vakti einna fyrst athygli á Lindsor-mál­inu í bréfi sem hann sendi til rík­is­lög­reglu­stjóra seint á árinu 2008, fyrir meira en 15 árum síðan.

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar

Sama dag og Geir H. Haarde flutti ræðu til þjóð­ar­innar þar sem hann bað guð um að blessa Ísland veitti Kaupþing aflands­fé­lagi lán sem notað var til að kaupa verð­lítil skulda­bréf af starfs­mönnum og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eftir að lánið var veitt, stendur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Hér­aðs­dóm­stóll í Lúx­em­borg hefur ákveðið að þrír sak­born­ingar í Lindsor-mál­inu svo­kall­aða, sem snýst um meinta efna­hags­glæpi sem framdir voru innan Kaup­þings í aðdrag­anda banka­hruns­ins 2008, verði sak­sóttir og hefur málum þeirra verið vísað til saka­dóms til frek­ari með­ferðar. 

Þetta stað­festir Henri Eippers, tals­maður dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í Lúx­em­borg, í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar og segir að ákvörðun hér­aðs­dóm­stóls­ins hafi verið tekin 29. febr­úar síð­ast­lið­inn. Tveir þeirra þriggja sem til stendur að sak­sækja fyrir meinta efna­hags­glæpi hafi hins vegar áfrýjað ákvörðun hér­aðs­dóm­stóla­stigs­ins og sú áfrýjun verður tekin fyrir hjá áfrýj­un­ar­dóm­stól áður en hægt verður að ljúka máls­með­ferð fyrir saka­dómi. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er annar þeirra sem hefur áfrýjað Íslend­ingur sem var á meðal æðstu stjórn­enda Kaup­þings fyrir hrun, en hinn er erlendur fyrr­ver­andi starfs­maður Kaup­þings í Lúx­em­borg. 

Heim­ildin óskaði eftir afriti af nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms­stóls­ins. Eipers sagði að hún væri hluti af rann­sókn­ar­gögnum máls­ins og því mætti …

Kjósa
92
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Er ekki verið að nota þessa fjármuni af eiginkonum þessara "herramanna" í fasteignaviðskiptum á Spáni meðal annars.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár