Eldsvoði aldarinnar

Talið er að end­ur­bygg­ing Børsen, einnar þekkt­ustu bygg­ingar Kaup­manna­hafnar, geti tekið 10 ár og kostn­að­ur­inn verði að minnsta kosti einn millj­arður danskra króna. Eig­and­inn, Danska við­skipta­ráðið, hefur lýst yfir að húsið verði end­ur­byggt, en spurn­ingin er hvort nýbygg­ingin eigi að vera nákvæm end­ur­gerð hins upp­runa­lega og hvort það sé fram­kvæm­an­legt.

Í Kaup­manna­höfn rann þriðju­dag­ur­inn 16. apríl upp bjartur og fagur. Starfs­menn ríkis og bæja höfðu tekið dag­inn snemma og á opin­berum bygg­ingum og víðar mátti sjá danska fán­ann, Dannebrog, dreg­inn að húni í til­efni afmælis Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar. Bakarar í Kaup­manna­höfn keppt­ust við að baka og skreyta sér­stakar afmæliskökur sem allir íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila og íbúð­ar­húsa aldr­aðra í borg­inni fá sendar í til­efni dags­ins. Sá siður var tek­inn upp þegar Covid herj­aði árið 2020 og hefur verið við­haldið síðan. Fátt benti til stór­at­burða.

Fjöldi iðn­að­ar­manna var þennan þriðju­dag mættur til vinnu í Børsen þar sem und­an­farin ár höfðu staðið yfir miklar við­gerðir og end­ur­bætur á þess­ari þekktu bygg­ingu. Á næsta ári verða 400 ár síðan hún var tekin í notkun og Børsen var fyrsta bygg­ingin í Danmörku sem var frið­lýst.

Á þak­inu við turn­spíruna var 25 ára blikk­smíða­nemi, Kenneth Dühring, að ganga frá kop­arplötum og hugs­aði með sér að það yrði gaman að geta bent ætt­ingjum og vinum á kop­arplöt­urnar sem hann hefði lagt og áttu að end­ast í 100 ár. Klukkan 7:36 heyrði Kenneth að bruna­bjalla, bein­tengd við slökkvi­liðið, fór í gang ein­hvers staðar í hús­inu. Slíkt var alvana­legt og slökkvi­liðið hafði margoft komið á stað­inn en fram til þessa farið erind­is­leysu ef svo mætti að orði kom­ast. Kenneth sá engan reyk, hann fór niður á pall við þakið þar sem vinnu­fé­lagi hans var, þar stóðu þeir örskamma stund en urðu einskis varir. Kenneth fór svo aftur upp til að halda áfram við að ganga frá kop­arplöt­unum, en sá þá smá­vegis reyk koma upp með­fram turn­spírunni. Hann kall­aði í félaga sinn og eins og hendi væri veifað bloss­aði mik­ill eldur upp, þeim félögum og fleirum sem voru við vinnu á þak­inu tókst að kom­ast niður.

Slökkvi­liðið sem hafði fengið boð frá bruna­bjöll­unni var tæp­lega fjórar mín­útur að kom­ast á stað­inn, sá fyrst engan eld en áður en varði æddi eld­ur­inn um og eld­tung­urnar teygðu sig upp eftir turn­spírunni. Klukkan 8.30, aðeins 54 mín­útum eftir að fyrsta bruna­bjallan hringdi, féll 56 metra há turn­spíran með brauki og bramli. Fljót­lega varð ljóst að lítt yrði við eld­inn ráðið og slökkvi­liðið mátti sín lít­ils, þrátt fyrir sín öfl­ugu tæki. Hluti slökkvi­liðs­ins ein­beitti sér að því að verja syðri hluta bygg­ing­ar­innar (um 40 pró­sent húss­ins) og tókst að hindra að eld­ur­inn bær­ist þangað.

Í Børsen var að finna ótelj­andi ómet­an­leg lista­verk, mál­verk og styttur. Á myndum sem birst hafa í fjöl­miðlum má sjá fólk á harða­hlaupum með mál­verk og fyrir ein­skæran dugnað tókst, að sögn fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs­ins, að bjarga 99 pró­sentum þeirra lista­verka sem í hús­inu voru. Þau voru, í lög­reglu­fylgd, flutt í öruggar geymslur fyrir utan borg­ina. Sama gilti um gömul og mik­il­væg skjöl sem geymd voru í hús­inu. 

Allt brunnið sem brunnið gat

Í nyrðri hluta Børsen brann allt sem brunnið gat. Hluti af útveggjum húss­ins stóð eftir þegar tek­ist hafði að ráða nið­ur­lögum elds­ins. Ekki er á þess­ari stundu ljóst hvort eitt­hvað af útveggj­unum verður not­hæft við end­ur­bygg­ing­una. Hluti veggj­ar­ins sem sneri að Børsgade (göt­unni sem liggur að Knipp­els­brú) hrundi tveimur dögum eftir brun­ann og sömu­leiðis gafl­inn sem sneri að Krist­jáns­borg­ar­höll.

Fyr­ir­ferð­ar­mikla vinnu­palla utan á og innan í hús­inu hefur reynst tíma­frekt og erfitt að fjar­lægja, til verks­ins hefur einn stærsti krani sem til er í Danmörku verið fluttur á stað­inn, hann vegur 200 tonn. Ljóst er að hreins­un­ar­starf í bruna­rúst­unum tekur langan tíma og óvíst hvenær því lýkur.

Húsið verður endurreist

Ekki þarf að fjöl­yrða um að tjónið af völdum brun­ans er gríð­ar­legt. Danskir fjöl­miðlar hafa greint frá því að húsið hafi verið vel tryggt og Brian Mikk­el­sen, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs­ins (fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra), hefur í við­tölum sagt að Børsen verði end­ur­reistur. Flestir, ef ekki allir, virð­ast sam­mála því en eitt er að end­ur­reisa, annað hvernig sú end­ur­reisn verður. Þar eru ýmis og ólík sjón­ar­mið uppi. Miðað við ummæli fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs­ins má gera ráð fyrir að turn­spíran fræga verði nákvæm­lega eins og sú sem eyði­lagð­ist í eld­inum. 

„Í Børsen var að finna ótelj­andi ómet­an­leg lista­verk, mál­verk og styttur. Á myndum sem birst hafa í fjöl­miðlum má sjá fólk á harða­hlaupum með mál­verk og fyrir ein­skæran dugnað tókst, að sögn fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs­ins, að bjarga 99 pró­sentum þeirra lista­verka sem í hús­inu voru.“

Ein­hverjar raddir hafa heyrst sem segja að nú eigi, í takt við breytta tíma, að setja nýja og öðru­vísi turn­spíru, en fleiri og hávær­ari raddir segja slíkt frá­leitt. Þar er gjarnan vitnað í umræður og ákvarð­anir varð­andi turn­inn á Notre Dame-kirkj­unni í París, hug­myndir um „nútí­ma­turn“ köll­uðu fram mikil mót­mæli og nið­ur­staðan varð að fylgja upp­runa­legum teikn­ingum. Þess má geta að turn­spíran á Børsen hefur einu sinni verið end­ur­gerð, það var árið 1776 en þá var fylgt upp­haf­legu teikn­ingum arki­tekt­anna Lorenz van Steenwinckel og Hans van Steenwinckel yngri sem teikn­uðu húsið, með „aðstoð“ Krist­jáns IV kon­ungs, sem sagður er hafa skipt sér af öllu stóru og smáu. Ástæða end­ur­gerð­ar­innar 1776 var að upp­haf­lega spíran var, ásamt und­ir­stöðum, ekki talin nógu traust. Það er kald­hæðni örlag­anna að drek­arnir fjórir sem mynda spíruna áttu að vera „eins konar vernd­ar­eng­ill húss­ins“ sem sæi til þess að það myndi aldrei brenna. 

Hvað með húsið að innan?

Þegar end­ur­gera þarf 400 ára gam­alt hús er í mörg horn að líta. Þótt Børsen hafi tals­vert verið breytt frá upp­runa­legu horfi er þó margt nán­ast óbreytt. Stór­tæk­asta breyt­ingin var sal­ur­inn, Børs­sa­len, eins og hann heitir. Salurinn er, eða var, um það bil 500 fer­metra stór, á 19. öld var salnum breytt mikið og mörgum fannst hann einna helst vera eins konar eft­ir­lík­ing hátíða­sal­ar­ins í Frederiks­borg­ar­höll­inni á Sjálandi. Hvað sem því líður hefur sal­ur­inn verið vett­vangur margra stór­við­burða á liðnum árum. 

Salurinn og fleiri minni salir hafa verið leigðir fyrir alls kyns veislur og mann­fagn­aði, sama gildir um fund­ar­her­bergi sem voru fjöl­mörg í hús­inu. 

 Skiptar skoðanir

Áður en end­ur­reisn­ar­starfið hefst þarf að ákveða hvort inn­rétta eigi húsið sem lík­ast því sem það var áður en ósköpin riðu yfir þann 16. apríl sl. eða hvort húsið verði inn­réttað að nútíma­hætti. Nákvæmar teikn­ingar af hús­inu, bæði að utan og innan, eru til, þær voru gerðar áður en haf­ist var handa um við­gerðir á hús­inu.

Arki­tekt­inn Jørgen Overby, sem rekur arki­tekta­stofu í eigin nafni og hefur sér­hæft sig í end­ur­gerð gam­alla stór­bygg­inga, hefur ákveðnar skoð­anir varð­andi Børsen. Útlit húss­ins á að hans mati að vera óbreytt en öðru máli gegnir um húsið að innan. „Margir eru mjög upp­teknir af salnum, Børs­salnum, mér finnst engin eft­ir­sjá í honum enda seinni tíma breyt­ing og hálf­gerð eft­iröpun á inn­rétt­ingum í þekktum enn eldri bygg­ingum.“ Varðandi aðra hluta húss­ins segir Jørgen Overby að þar hafi svo miklu verið breytt að ekki sé hægt að tala um neitt upp­runa­legt, „það sem ekki brann er eig­in­lega eins og dæmi­gert skrif­stofu­hús­næði frá 7. ára­tug síð­ustu aldar, og þannig var það líka með þá hluta húss­ins sem eld­ur­inn gleypti“.

SkemmdirÞað var ekki ein­ungis eld­ur­inn sem olli miklum skemmdum. Vatnið sem not­ast var við til að eiga við hann lagði líka sitt af mörkum.

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Bjørn Nørgaard, einn þekkt­asti núlif­andi mynd­list­ar­maður Dana og fyrr­ver­andi for­maður ráð­gjaf­ar­nefndar danska menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, hefur ákveðnar skoð­anir varð­andi end­ur­bygg­ingu Børsen. Útlit húss­ins á að vera algjör­lega óbreytt en inn­an­dyra mætti hluti þess vera sem lík­astur því sem var eftir breyt­ingar sem gerðar voru á 18. öld en hluti húss­ins yrði inn­rétt­aður í nútíma­stíl, eins og lista­mað­ur­inn komst að orði. Hann lagði líka áherslu á að við allt efn­is­val yrði kapp­kostað að nota efni sem hefðu stað­ist tím­ans tönn og nefndi kopar, múr­stein, sand­stein og úrvals timbur. „Ekki að kaupa það ódýrasta á ein­hverju útboði, af slíku hefur verið allt of mikið gert á síð­ustu ára­tugum og útkoman blasir við, mik­illa end­ur­bóta þörf á svo til nýjum húsum,“ sagði Bjørn Nørgaard.

Hall­ar­kirkjan, Slots­kirken, sem stendur við hlið Krist­jáns­borg­ar­hallar, fjær Børsen, skemmd­ist mikið í eldi árið 1992, þegar flug­eldur kveikti í þak­inu. Þá var leitað til ítal­skra sér­fræð­inga varð­andi við­gerðir á kirkj­unni og einn við­mæl­enda dag­blaðs­ins Politi­ken sagði að sú við­gerð hefði heppn­ast ein­stak­lega vel, „við kunnum margt og sumt betur en aðrir, en ekki allt,“ sagði Kirsten Nielsen, for­maður fag­fé­lags bygg­inga­fræð­inga í við­tali.

Hvernig end­ur­byggður Børsen kemur til með að líta út kemur ekki í ljós fyrr en eftir nokkur ár, kannski ára­tug.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár