Filippseyjar eru fimmta stærsta eyríki heims, eyjarnar eru samtals 7641, og flatarmálið um 300 þúsund ferkílómetrar (þreföld stærð Íslands).
Íbúarnir eru um 117 milljónir og ríkið hið tólfta fjölmennasta í heimi, höfuðborgin er Manila. Nafn landsins er komið frá spænska landkönnuðinum Ruy Lópes des Villalobos sem kom til eyjanna árið 1542, hann nefndi landið Felipinas eftir spænska prinsinum sem seinna varð Philip II Spánarkonungur.
Portúgalski sæfarinn Ferdinand Magellan, sem var í þjónustu Spánarkonungs, hafði komið til Filippseyja árið 1521 og vildi ná eyjunum undir Spánverja og jafnframt kristna eyjaskeggja. Hann féll hinsvegar í bardaga á eyjunni Mactan við höfðingja sem hvorki vildi fallast á yfirráð Spánverja né taka kristni.
Saga átaka og blóðsúthellinga
Elstu mannvistarleifar í landinu eru taldar 1,7 milljón ára gamlar. Saga eyjanna er ekki saga rósemi og friðar, öðru nær. Þar hafa margoft geisað blóðugir bardagar með miklu mannfalli. Ekki verður sú saga sögð hér en rétt …



















































Athugasemdir