Blokkin á Frederikssundsvej 86 í norðvesturhluta Kaupmannahafnar er aðeins 13 ára gömul. Á jarðhæðinni í þessari 5 hæða blokk er matvöruverslun en á hæðunum fyrir ofan litlar íbúðir, allar með svonefndum frönskum svölum. Franskar svalir eru oftast einungis opnanlegar dyr með grindverki fyrir framan, en stundum er mjó sylla, með grindverki eða gleri, fyrir utan dyrnar. Á blokkinni við Frederikssundsvej var slík sylla, 28 sentimetra breið, á öllum íbúðum. Ein íbúð, á 4. hæð í blokkinni, hafði um skeið verið til sölu og utan á svölunum hékk skilti með nafni fasteignasalans. Í lok júní var gengið frá sölu íbúðarinnar og 3. júlí ætlaði húsvörðurinn, 72 ára gamall karl, að fjarlægja skiltið. Hann steig út á sylluna, og teygði sig í skiltið en þá losnaði syllan frá húsinu og hrundi niður á gangstéttina, ásamt húsverðinum sem lést við fallið.
Kolryðgaðar skrúfur
Lögregla var, ásamt sjúkrabíl, þegar kvödd á staðinn. Ekkert var hægt að gera húsverðinum til bjargar en gangstéttarsvæðið þar sem svalasyllan lá var girt af. Fólk sem átti leið hjá veitti athygli ryðguðum skrúfum sem lágu á gangstéttinni. Lögreglan tók þær og svalasylluna í sína vörslu til frekari rannsóknar. Í ljós kom að ryðguðu skrúfurnar, sem sumar höfðu hrokkið í sundur, tilheyrðu svalasyllunni, með þeim var syllan fest við útveggi hússins.
„Ekkert var hægt að gera húsverðinum til bjargar
Í ljósi þess að húsið er einungis 13 ára gamalt vakti það furðu að festingaskrúfurnar skyldu vera ryðgaðar og ónýtar. Rannsókn vegna þessa stendur yfir en sérfræðingur sem dagblaðið Politiken ræddi við taldi að í útveggjum hússins gætu verið efni sem valdi því að skrúfurnar, sem vel að merkja eru ekki úr stáli, ryðgi og leysist hreinlega upp.
Ekki hlustað á ábendingar
Maður sem býr beint fyrir neðan íbúðina þar sem svalasyllan hrundi hafði tekið eftir að skrúfurnar á svalafestingunum voru ryðgaðar og jafnvel byrjaðar að losna. Hann hafði margoft látið húsvörðinn og talsmann íbúa hússins vita að full ástæða væri til að kanna svalafestingarnar án þess að brugðist væri við.
Eftir að svalasyllan á 4. hæð hrundi var íbúum hússins stranglega bannað að stíga fæti út á syllurnar á meðan rannsókn fer fram. Svalasyllur á 4 íbúðum hafa nú þegar verið fjarlægðar, því hætta var talin á að þær gætu hrunið, fyrir framan húsið er fjölfarin gangstétt því margir eiga erindi í matvöruverslunina á jarðhæðinni.
Ekki fyrsta slysið
Banaslysið þann 3. júlí síðastliðinn, á Frederikssundsvej 86, er ekki hið fyrsta af þessu tagi. Árið 2016 slösuðust sex ungmenni þegar svalir á íbúðarhúsi í Nykøbing á Falstri gáfu sig. Tvær ungar konur slösuðust alvarlega, önnur þeirra var mánuðum saman á sjúkrahúsi. Árið 2020 hrundu svalir á annarri hæð á íbúðablokk í Kolding, fimm ungmenni voru á svölunum, tvö þeirra slösuðust alvarlega. Ungmennin fóru í mál við leigusalann sem var í landsrétti dæmdur til greiðslu skaðabóta. Í slysunum í Nykøbing og Kolding var um að ræða áratuga gamlar blokkir og í báðum tilvikum voru það ryðgaðar festingar sem gáfu sig. Þann 22. september 2024 losnuðu svalir á íbúðablokk í Árósum og féllu til jarðar, fallið var 3,5 metrar. Átta ungmenni voru á svölunum og sluppu með skrekkinn. Fleiri dæmi mætti nefna. Einu sinni áður hefur orðið banaslys af svipuðu tagi og slysið á Frederikssundsvej 86, það var árið 1979.
550 þúsund svalir, 50 þúsund hættulegar
Í kjölfar slysanna í Nykøbing 2016 og Kolding 2020 fékk Húsnæðis- og skipulagsstofnun ríkisins Dönsku byggingatæknistofnunina (TI) til að taka saman upplýsingar um fjölda svala á íbúðarhúsum í landinu og enn fremur meta ástand þeirra. Samkvæmt talningu TI eru um það bil 550 þúsund svalir í landinu og af þessum fjölda eru um það bil 50 þúsund beinlínis hættulegar að mati sérfræðinga TI. Það vakti sérstaka athygli sérfræðinganna að í mörgum nýrri blokkum virðist frágangi og festingum á svölum stórlega ábótavant. Mörg dæmi fundust um blokkir þar sem svalirnar höfðu verið skrúfaðar fastar í múrsteinsveggi án þess að nokkrar stoðir væru undir svölunum. „Þetta býður hættunni heim“, segir í skýrslu TI.
Hvað með reglur og eftirlit?
Samkvæmt byggingareglum skulu svalir hafa handrið af tiltekinni hæð og líkt og annað í nýbyggingum eru svalir skoðaðar af eftirlitsaðilum áður en bygging er afhent. Síðan ekki söguna meir. Svalir eru á ábyrgð eiganda, hvort sem um er að ræða einstakling eða húseignafélag. Engar reglur eru um reglubundna skoðun á svölum og sérfræðingur sem Danska útvarpið, DR, ræddi við sagði það undarlegt að ekkert eftirlit væri með svölum íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. „Þú þarft að fara með bílinn í skoðun á tveggja ára fresti en svalirnar eru aldrei skoðaðar.“
„Þú þarft að fara með bílinn í skoðun á tveggja ára fresti en svalirnar eru aldrei skoðaðar
Fyrir nokkrum áratugum voru svalir síður en svo sjálfsagðar á dönskum íbúðarhúsum. Það hefur gjörbreyst og nú heyrir nánast til undantekninga að byggðar séu blokkir án svala. Víða í Danmörku má sjá eldri blokkir sem á hafa verið settar svalir. Slíkt hefur iðulega valdið deilum, ekki síst vegna áhrifa svala á ljós og birtu íbúðanna á næstu hæð fyrir neðan. Seinni tíma svalir á eldri húsum þykja ekki alltaf fegurðarauki en þýða hins vegar aukin lífsgæði. Sums staðar eru svalirnar bornar uppi af súlum sem eru steyptar niður. Þótt ekki finnist öllum slíkur frágangur fallegur er hann þó traustur.



















































Athugasemdir (1)