Halla Hrund hefur fjórfaldað fylgið og nálgast Katrínu

Halla Hrund hefur fjórfaldað fylgið og nálgast Katrínu

Töluverð hreyf­ing er á fylgi þeirra fram­bjóð­enda sem vilja verða næsti for­seti Íslands. Sá fram­bjóð­andi sem er að bæta við sig fylgi er Halla Hrund Loga­dóttir. Aðrir sem mæl­ast með tveggja stafa fylgi dala milli kosn­inga­spáa.

Þrír af þeim fjórum for­seta­fram­bjóð­endum sem mæl­ast með mest fylgi hafa dalað milli kosn­inga­spáa. Fylgi Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er nú komið niður í 26,6 pró­sent en hún mæld­ist með 31 pró­sent fylgi fyrir tveimur vikum. Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, er líka á nið­ur­leið en hann mælist nú með 24,6 pró­sent fylgi eftir að hafa mælst með 27,4 pró­sent um miðjan þennan mánuð. Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, nýtur nú stuðn­ings 15,7 pró­sent kjós­enda eftir að hafa verið með um 19 pró­sent fylgi fyrir tveimur vikum síðan. Þau hafa misst 1,0 til 2,2 pró­sentu­stigum á allra síð­ustu dögum, eða sam­tals 5,1 pró­sentu­stig. 

Það fylgi er allt, og meira til, að fara á Höllu Hrund Loga­dóttur orku­mála­stjóra. Hún bætir við sig sex pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­inga­spá, sem var keyrð 23. apríl, og mælist nú með 21,4 pró­sent fylgi. Það þýðir að Halla Hrund hefur tekið fram úr Jóni Gnarr og situr í þriðja sæti yfir þá fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi.

Fylg­is­aukn­ingin er í takti við þá miklu upp­sveiflu sem hefur verið í stuðn­ingi við Höllu Hrund síð­ustu vikur en hún mæld­ist með fimm pró­sent fylgi 13. apríl síð­ast­lið­inn. Fylgið við hana hefur því rúm­lega fjór­fald­ast á tveimur vikum og sam­hliða hefur mun­ur­inn á henni og þeim tveimur fram­bjóð­endum sem leitt hafa kapp­hlaupið hingað til – Katrín og Baldur – dreg­ist veru­lega saman. Rétt fyrir miðjan mán­uð­inn var Katrín til að mynda með 26 pró­sentu­stiga for­skot á Höllu Hrund en nú er mun­ur­inn á þeim tveimur ein­ungis 5,2 pró­sentu­stig. 

Fylgið safnast á efstu fjóra

Frestur til að skila inn fram­boðum til for­seta rann út á hádegi í gær. Alls skil­uðu 13 fram­bjóð­endur lista yfir 1.500 með­mæl­endur – þann fjölda sem þarf til að geta verið með gilt fram­boð í kosn­ing­unum sem fara fram 1. júní næst­kom­andi – og það mun liggja fyrir á mánu­dag hversu margir þeirra skil­uðu gildum með­mæl­enda­listum. 

Fylgið heldur áfram að þró­ast á þann veg að setj­ast á þá fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi. Þannig voru fjórir efstu sam­tals með 81 pró­sent fylgi í fyrstu kosn­inga­spánni þann 13. apríl en nú ætla 88,3 pró­sent kjós­enda að velja ein­hvern úr þeim hópi.

Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team sem var líka í for­seta­fram­boði árið 2016, er sá fram­bjóð­andi sem kemst næst þeim fjórum sem skipa efstu sætin. Hún mælist þó ein­ungis með 4,4 pró­sent fylgi sem er það lægsta sem hún hefur mælst með í kosn­inga­spánni hingað til. Í fyrstu kosn­inga­spánni var Halla með sjö pró­sent fylgi og því hefur hún tapað rúmum þriðj­ungi af stuðn­ingi sínum á síð­ustu tveimur vikum. Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóm­ari, mælist með 3,1 pró­sent fylgi og Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona með 1,4 pró­sent. Aðrir fram­bjóð­endur en þessir sjö mæl­ast sam­an­lagt með 2,8 pró­sent stuðn­ing. 

Katrín sækir fylgi til kjósenda stjórnarflokka

Nýjasta könn­unin sem vigtar inn í kosn­inga­spánna er könnun Maskínu sem gerð var 22. til 26. apríl. Í henni mæld­ist Halla Hrund með mest fylgi þótt ekki væri mark­tækur munur á henni og Katrínu. Þegar rýnt er í bak­grunns­breytur þeirra sem svör­uðu henni kemur í ljós að Katrín sækir fylgi sitt að lang­mestu leyti til kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, en Katrín leiddi rík­is­stjórn þess­ara flokka frá því síðla árs 2017 og þangað til að hún til­kynnti fram­boð til for­seta snemma í apr­íl­mán­uði. 

Baldur nýtur mest stuðn­ings hjá kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar. Halla Hrund er hins vegar með mun jafn­ari dreif­ingu á meðal kjós­enda stjórn­mála­flokka. Það eru helst kjós­endur Vinstri grænna, flokks sem er að mæl­ast með fimm pró­sent fylgi og er í hættu á að detta út af þingi, sem þýð­ast hana ekki, enda flestir kjós­endur þess flokks á þeim bux­unum að kjósa fyrr­ver­andi for­mann sinn, Katrínu Jak­obs­dóttur.

Þeir fjórir fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi mætt­ust í fyrsta sinn í Pressu á Heim­ild­inni í gær, föstu­dag. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Samkvæmt könnun á meðal les­enda Heim­ild­ar­innar eru flestir þeirra á þeirri skoðun að Halla Hrund hafi staðið sig best í þessum fyrstu kapp­ræðum fjór­menn­ing­anna og næst flestir telja að Katrín hafi borið af. Mun færri telja að Baldur og Jón Gnarr hafi staðið sig best.

Hvað er kosningspáin?

Kosn­inga­spáin er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig.

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks­skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Katrín þarf fyrst og fremst að ná til þeirra óákveðnu í VG. Það gerir hún ekki með að ráða sjálfstæðismenn í teymi sitt. Hrós frá Hannesi Hólmsteini bætir ekki stöðuna.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið undanfarið ár