Málflutningur forstjórans stangast á við mat eftirlitsaðila

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son for­stjóri Íslands­pósts full­yrðir að afkoman af einka­rétti hafi ekki dugað til að greiða niður alþjón­ustu und­an­farin ár. Starfs­þátta­yf­ir­lit og ákvarð­anir Póst- og fjar­skipta­stof­unar sýna hins vegar allt aðra mynd.

Málflutningur forstjórans stangast á við mat eftirlitsaðila

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, full­yrti í við­tali við Vísi.is í gær að afkoman af einka­rétt­ar­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins hefði ekki dugað til að greiða niður alþjón­ustu pósts­ins und­an­farin ár. „Einka­rétt­ur­inn hefur það hlut­verk að greiða niður alþjón­ustu þar sem hún stendur ekki undir sér og hann hefur ekki gert það und­an­farin ár,“ sagði hann. 

Þetta gengur í ber­högg við opin­berar upp­lýs­ingar um fjár­mál Íslands­pósts sem sýna að afkoman af einka­rétt­ar­þjón­ustu nam 497 millj­ónum króna árið 2016, umfram raun­kostnað og að við­bættum hæfi­legum hagn­aði, og 370 millj­ónum í fyrra. Í ákvörðun Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (PFS) frá 8. nóv­em­ber síð­ast­liðnum er tekið sér­stak­lega fram að þarna sé „með­tal­inn sá kostn­aður sem einkarétti er heim­ilt að greiða niður vegna alþjónustu og fellur ekki undir einkarétt í sam­ræmi við 2. málsl. 6. mgr. 16. gr. laga nr. 19/2002 um póstþjónustu, eins og hann var skil­greindur í ákvörðun PFS nr. 17/2015“. 

Fram kom í ákvörðun PFS frá 23. jan­úar 2018 að rekstr­ar­af­koma einka­rétt­ar­ins hefði verið „vel við­un­andi“, en þeirri afkomu sé ætlað að standa undir alþjón­ustu­skyldum sem hvíla á fyr­ir­tæk­inu. Samkvæmt hinni nýju ákvörðun eru þessar for­sendur í meg­in­at­riðum óbreyttar í þeim skiln­ingi að það er ennþá tals­verður hagn­aður af starf­sem­inni. PFS bendir á að árið 2017 var „afkoma einka­réttar mjög góð sam­kvæmt starfs­þátta­yf­ir­liti ÍSP“ og segir um yfir­stand­andi ár: „Áætlað tekju­tap einka­réttar vegna magn­minnk­unar umfram áætlun árs­ins er lægra en sem nemur áætl­aðri afkomu einka­réttar á árinu 2018 miðað við óbreytta gjald­skrá.“

Ólíkt því sem Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, heldur fram telur eft­ir­lits­stofn­unin „mögu­leg vanda­mál í tengslum við afkomu fyr­ir­tæk­is­ins ekki til­komin vegna þeirra skyldna sem hvílt hafa á fyr­ir­tæk­inu vegna alþjón­ustu á und­an­förnum árum“. Raunar var hagn­að­ur­inn af einka­rétti svo mik­ill árið 2016 – umfram raun­kostnað og að við­bættum hæfi­legum hagn­aði og að með­töldum kostn­aði við nið­ur­greiðslu alþjón­ustu – að PFS íhug­aði að aft­ur­kalla fyrra sam­þykki sitt fyrir gjald­skrár­hækkun á grund­velli stjórn­sýslu­laga. 

Framlögð gögn réttlættu ekki gjaldskrárhækkun

Í við­tal­inu við Vísi.is full­yrðir Ingi­mundur Sig­ur­páls­son einnig að lausa­fjár­vandi Íslands­pósts stafi af  magn­minnkun bréfa. „Lausa­fjár­vand­inn felst í því að það eru ekki til pen­ingar á ákveðnum tíma­punkti til að standa fyrir greiðslu á reikn­ingum. Þetta ger­ist fyrst og fremst vegna þess að fall í bréfa­magni á þessu ári er miklu meira en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Það leiðir til tekju­taps upp á 350-400 millj­ónir,“ segir hann. „Áætlun fyrir þetta ár gerði ráð fyrir að bréfa­magn færi um hendur Íslands­pósts væri um 7% minni en á síð­asta ári. Raunin er hins vegar sú að magnið er um 15% til 18% minna sem þýðir mun minni tekjur en gert var ráð fyrir. Það er ástæðan fyrir því að lausafé skorti.“

Samkvæmt 16. gr. laga um póst­þjón­ustu eiga gjald­skrár fyrir alþjón­ustu Íslands­pósts að taka mið af raun­kostn­aði við að veita þjón­ust­una að við­bættum hæfi­legum hagn­aði. Ef rétt væri að alþjón­usta Íslands­pósts væri að valda fyr­ir­tæk­inu rekstr­ar­vanda þá væri það til marks um að þróun gjald­skrár hefði ekki sam­ræmst laga­á­kvæð­inu.  

Gjald­skrám er ætlað að taka til­lit til magn­minnk­unar, allra kostn­að­ar­þátta og alþjón­ustu­byrði. Af upp­lýs­ingum sem fram hafa komið í nýlegum ákvörð­unum PFS er ljóst að stofn­unin telur Íslands­póst hafa fengið þessa magn­minnkun full­bætta með gjald­skrár­hækk­unum á und­an­förnum árum.

Nú síð­ast þegar Íslands­póstur fór fram á hækkun gjald­skrár innan einka­réttar komst PFS að þeirri nið­ur­stöðu að „framlögð gögn ÍSP, um magn­minnkun, afkomu einkaréttar og það hag­ræði sem hlaust af þjónustu­breyt­ing­unni þann 1. febrúar sl. [væru] ekki þess eðlis að þau réttlæti hækkun á gjaldskrá innan einkaréttar eða aðrar breyt­ingar á gjaldskránni s.s. lækkun“. 

700 milljóna fjárfesting í skugga taprekstrar

Íslands­póstur, sem er að fullu í eigu rík­is­ins, hefur sætt rann­sóknum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og legið undir harðri gagn­rýni und­an­farin ár vegna umsvifa fyr­ir­tæk­is­ins á sam­keppn­is­mörk­uðum. Af bók­halds­upp­lýs­ingum má ráða að fjár­hags­vand­inn sé að miklu leyti til kom­inn vegna sam­keppn­is­rekstr­ar­ins. Afkoman af sam­keppn­is­rekstri innan alþjón­ustu var nei­kvæð um 566 millj­ónir króna árið 2015 og nei­kvæð um 790 millj­ónir króna árið 2016 eftir að tekið er til­lit til þess kostn­aðar sem einka­rétti er heim­ilt að greiða niður vegna alþjón­ustu sem ekki fellur undir einka­rétt­ar­lega rekstr­ar­hlut­ann. Tapið var svo 692 millj­ónir í fyrra sam­kvæmt árs­skýrslu Íslands­pósts. 

Þrátt fyrir tap­rekst­ur­inn – og þrátt fyrir að afkoman af einka­rétti Íslands­pósts hafi að sögn for­stjór­ans ekki dugað til að standa undir alþjón­ustu­byrði und­an­farin ár – þá ákvað stjórn Ísland­s­pósts í nóv­em­ber 2017 að ráð­ast í um­fangs­mikl­ar fram­kvæmd­ir við hús­næði fyr­ir­tæk­is­ins að Stór­höfða 21, en heild­ar­bygg­ing­ar­kostn­aður við fram­kvæmd­ina nemur um 700 millj­ón­um króna. 

Svo virð­ist sem fram­kvæmda­valdið hafi reynt að villa um fyrir fjár­laga­nefnd Alþingis í umræðum um fjár­hags­vanda Íslands­pósts.

Mál­flutn­ingur for­stjóra Íslands­pósts er í sam­ræmi við mis­vísandi upp­lýs­ingar sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur gefið almenn­ingi og Alþingi und­an­farnar vikur. 

Aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, er vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts og hefur setið í stjórn­inni frá því í mars 2014. Stjórn­inni ber, sam­kvæmt sam­þykktum Íslands­pósts, að hafa stöðugt og ítar­legt eft­ir­lit með öllum rekstri félags­ins og setja gjald­skrá í sam­ræmi við ákvæði laga um póst­þjón­ustu. Stjórn­ar­for­maður Íslands­pósts er Bjarni Jónsson, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, og for­stjóri er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Garða­bæjar, sem einnig er stjórn­ar­for­maður og full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn Isavia. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár