Áslaug gerir ekki ráð fyrir að heimila birtingu á upplýsingum um uppsögn sína

„Það er í höndum þeirra sem þar er fjallað um hvort við­kom­andi kaflar koma fyrir almenn­ings­sjónir,“ segir í til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­víkur.

Áslaug gerir ekki ráð fyrir að heimila birtingu á upplýsingum um uppsögn sína

Upp­sagnir þeirra Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur og Bjarna Más Júl­í­us­sonar hjá Orku nátt­úr­unnar (ON) voru rétt­mætar sam­kvæmt nið­ur­stöðu óháðrar úttektar  á starfs­manna­málum hjá Orku­veitu Reykja­víkur. 

Í úttekt­inni kemur fram að Áslaug Thelma hafi fengið skýr­ingar á upp­sögn sinni en hafnað boði um að fá frek­ari skýr­ingar á fundi. Þá er birtur tölvu­póstur frá Einari Bárð­ar­syni, eig­in­manni Áslaugar, þar sem hann gagn­rýnir upp­sögn­ina og krefst þess að konan sín fái greidd tveggja ára laun í miska- og rétt­læt­is­bætur. „Ég mun ekki linna látum fyrr en Áslaug hefur fengið réttlát málalok. Við getum klárað það okkar á milli eða blandað mun fleirum í þá baráttu mína,“ skrif­aði hann.

Nið­ur­stöður úttekt­ar­innar hafa verið gerðar aðgengi­legar á heima­síðu Orku­veitu Reykja­víkur að und­an­skildum þeim hluta sem fyr­ir­tæk­inu er óheim­ilt að birta vegna per­sónu­vernd­ar­laga. „Það er í höndum þeirra sem þar er fjallað um hvort við­kom­andi kaflar koma fyrir almenn­ings­sjónir,“ segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. 

Stundin hafði sam­band við Bjarna Má Júl­í­us­son og Áslaugu Thelmu og óskaði eftir því að fá hjá þeim afrit af þeim hlutum skýrsl­unnar sem hafa að geyma upp­lýs­ingar um upp­sagnir þeirra. Er óskað eftir þessum upp­lýs­ingum í ljósi þess að hávær umræða hefur farið fram um málin í fjöl­miðlum og á opin­berum vett­vangi, meðal ann­ars á sam­stöðu­fundi kvenna á Aust­ur­velli vegna kvenna­frí­dags­ins, og þungar ásak­anir verið settar fram, bæði gegn Bjarna Má og yfir­mönnum Orku­veitu Reykja­víkur.  

„Ég er ekki búin að sjá kafl­ann sjálf en mun ekki gera ráð fyrir því að setja hann í opin­bera birt­ingu,“ segir Áslaug í svari sínu við beiðni Stund­ar­innar. Ekki hefur borist svar frá Bjarna Má þegar þetta er ritað. 

Uppfært 21. nóv­em­ber: Bjarni hefur nú svarað beiðni Stund­ar­innar á þessa leið: „Und­an­farna daga hef ég tjáð mig um þau mál sem að mér snúa með yfir­lýs­ingu og grein í Frétta­blað­inu ásamt Rúv við­tali og hef ekk­ert frekar við það að bæta. Hef ákveðið að halda mig til hlés í þeirri umræðu sem nú er í gangi, enda fengið minn skammt und­an­farna tvo mán­uði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár