Strákar sem vilja farða sig

Förð­un­ar­fræð­ingur veitir leið­bein­ingar að ein­faldri förðun fyrir karla, skref fyrir skref.

Strákar sem vilja farða sig

Snyrti­vörur fyrir húð eru oft­ast mark­aðs­settar til kvenna enda sam­ræm­ast þær hug­myndum okkar um kven­leika. Algengt er að húð­vörur sem ætl­aðar eru körlum séu mark­aðs­settar til að end­ur­spegla virkni og hreysti manna, frekar en til að draga fram feg­urð­ina og fín­leik­ann. Þrátt fyrir að hug­myndir um karl­mennsku og kven­leika virð­ast sem nátt­úru­legt afsprengi af innra eðli ein­stak­linga, þá eru þær afurð sam­fé­lags­ins. Þær eru félags­leg afurð en ekki líf­fræði­leg afleið­ing. Hug­myndir um kven­leika og karl­mennsku eru múr­aðar inn í menn­ingu sem fólk leikur síðan eftir, í sam­spili stofn­ana, mark­aðar og ann­ars fólks. 

Nauð­syn­legt er að brjóta upp múr­inn því hann skapar stað­al­myndir sem hamla frelsi og tæki­færum fólks. Frelsið fæst meðal ann­ars með því að ögra eða skjöna við­teknar karl­mennsku- og kven­leika­hug­myndir. Mark­miðið með skjönun er þá að höggva í múr fast­mót­uðu hug­mynd­anna, til að mynda sprungur fyrir aukið svig­rúm ein­stak­linga. Svigrúm utan stað­al­mynda sem, í víð­ara sam­hengi, veita aukin tæki­færi, lífs­gæði og styðja jafn­rétti.

Ein leið sem strákar eða karlar geta farið í þessum til­gangi er að stíga inn í kven­leik­ann. Stíga inn á svið sem eignuð eru konum og kven­leika. Ég leit­aði til Halldóru Birtu förð­un­ar­fræð­ings og bað hana um að miðla ráðum til stráka og karla sem hafa áhuga á að nota förð­un­ar­vörur, hvort sem er til ögrunar eða bara til að vera aðeins sæt­ari. Enda vilja menn stundum vera sætir og fínir og hafa sig til fyrir ákveðin til­efni. Jón Már Ásbjörns­son sat fyrir sem módel, Davíð Þór Guð­laugs­son tók myndir af hverju skrefi sem Halldóra Birta lýsir undir hverri mynd.

1 Rakakrem 

Byrja á að setja raka­krem á allt and­litið og augn­krem undir augun. Þetta ætti að vera hluti af dag­legri húðrútínu hvort sem mark­miðið er að farða sig eða ekki. 

2 Sólardropar

Þeir sem vilja smá brúnku og verða ferskari án mik­illar fyr­ir­hafnar geta bætt við sól­ar­dropum og sett á efstu punkta and­lits­ins sem eru enni, kinn­bein, nef og haka.

3 Litað dagkrem 

Fyrir þá sem vilja jafn­ari húð­lit á allt and­litið mælum við með BB kremi eða öðru lit­uðu dag­kremi. Berið það á í þunnu lagi með fingrum yfir allt and­lit. Ef það er roði í húð­inni er mælt með kremi með gulum und­ir­tón.

4 Hyljari

Til að leið­rétta enn frekar liti í and­lit­inu eins og rauðar bólur eða bláma undir augum skal nota hylj­ara í litlu magni á svæðið. Þum­al­putta­reglan er að nota rauð­tóna hylj­ara á bláma (undir augu) en gultóna hylj­ara á roða (bólur, rós­roða o.fl.)

5 Púður

Þeir sem kjósa matta áferð á húð­inni og vilja síður glansa þá er mælt með að púðra húð­ina með glæru/lit­lausu púðri. Einnig er hægt að fá litað púður en þá er mælt með að nota púður með lít­illi þekju svo það verði ekki of þykkt á húð­inni. Hér þarf helst að eiga miðl­ungs­stóran bursta í verkið. 

6 Sólarpúður

Best er að nota matt sól­ar­púður fyrir þá sem vilja skerpa aðeins á brún­kunni. Þetta má nota sam­hliða brúnku/sól­ar­drop­unum sem voru nefndir hér áður en líka eitt og sér. Passa bara að nota ekki of mikið svo maður líti ekki út fyrir að vera app­el­sínu­gulur í framan. Hér er gott að eiga léttan miðl­ungs­bursta í verkið.

7 Augnbrúnagel

Fyrir þá sem eru með óstýri­látar auga­brúnir er gott að nota glært augn­brúna­gel og greiða létt í gegn í átt að gagn­augum. Fyrir þá sem eru með ljósar auga­brúnir og vilja skerpa þær aðeins má nota örlítið af lit­uðu geli. 

Flestir myndu sætta sig við það sem búið er að gera hingað til en fyrir þá sem vilja taka þetta skref­inu lengra er hægt að bæta við: 

1 Skygging 

Gott er að nota grá­brúnan skygg­inga­lit en hann er lík­astur nátt­úru­legum skugga húð­ar­innar. Liturinn er settur með þéttum miðl­ungs­stórum bursta undir kinn­bein, efst í koll­vik og undir kjálka eða höku eða hvar sem óskað er eftir að draga inn ákveðin svæði.

2 Krulla augnhár 

Til að krulla augn­hár þarf tölu­verða æfingu. Opna þarf augað vel og ná flestum augn­hár­unum inn í greið­una, klípa svo létt saman nokkrum sinnum. Þetta opnar augun, sér­stak­lega fyrir þá sem eru með mjög bein og stíf augn­hár. 

3 Augnháragel 

Best er að nota glæra gelið sem notað var í auga­brún­irnar til að festa betur formið á augn­hár­unum eftir að búið er að krulla þau. 

4 Setting sprey 

Gott að halda hönd­inni eins langt frá and­lit­inu og hún nær og spreyja jafnt yfir allt and­litið til að festa saman allar vör­urnar sem voru not­aðar á and­litið. 

Bodyshop gaf vör­urnar sem Halldóra Birta not­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár