Ríkið greiddi félagsgjöldin í tengslanet atvinnulífs og stjórnmála

Fyr­ir­tækið Exedra hefur um ára­bil verið starf­rækt sem „vett­vangur fyrir val­inn hóp áhrifa­mik­illa kvenna“ úr stjórn­málum, stjórn­sýslu og einka­geir­anum. Þar hitt­ast meðal ann­ars þing­konur, banka­stjórar, for­stöðu­menn opin­berra stofn­ana og fjöl­miðla­konur.

Ríkið greiddi félagsgjöldin í tengslanet atvinnulífs og stjórnmála
„Valinn hópur áhrifa­mik­illa kvenna“ Félags­skapnum Exedra hefur verið líkt við Frí­múr­ara­reglu kvenna. Mynd: Shutterstock

For­sæt­is­ráðu­neytið, Einka­leyfa­stofan og Rík­is­sátta­semj­ari hafa greitt félags­gjöld fyrir starfs­menn sem eiga aðild að Exedra, tengsla­neti kvenna úr stjórn­málum, stjórn­sýslu, atvinnu­lífi og fjöl­miðlum, í ár og í fyrra.

Samtökin eru rekin sem einka­hluta­fé­lag, Exedra ehf., sem er í eigu Sig­þrúðar Ármann lög­fræð­ings og Evu Hrundar Ein­ars­dóttur, bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akureyri. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2006 sem „vett­vangur fyrir val­inn hóp áhrifa­mik­illa kvenna“ að því er áður kom fram á vef þess. Frí­blaðið Sirkús lýsti Exedra sem „leyni­fé­lagi“ árið 2007 sem hefði verið „líkt við rótarý­klúbb og/eða Frí­múr­ara­regl­una“.

Félagið hefur haldið mán­að­ar­lega fundi um ára­bil og jafn­framt skipu­lagt skemmti­ferðir kvenna til útlanda, en ráð­herrar, banka­stjórar, fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja og for­stöðu­menn opin­berra stofn­ana hafa verið í hópi félaga. 

Fjallað er um Exedra í meist­ara­rit­gerð Val­gerðar Jóhann­es­dóttur við­skipta­fræð­ings frá 2009 og rætt við aðila að sam­tök­unum undir nafn­leynd. „Almennt í tengsla­netum þurfum við að vera óhræddar við að nota þetta sem við­skipta­tæki­færi,“ er haft eftir einum við­mæl­and­anum. „Að við ætlum að nýta okkur þetta í starfi og skömm­umst okkar ekk­ert fyrir það að leita hver til ann­arrar á við­skipta­legum for­sendum og þá þarf að hnippa í konur svo­lítið hvað það varðar.“ 

For­sæt­is­ráðu­neytið greiddi félags­gjöld að upp­hæð 63.500 krónur til Exedra í jan­úar 2018. Í ár lögðu Einka­leyfa­stofan og Rík­is­sátta­semj­ari 74.500 krónur hvort vegna félags­gjalda starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár