Aukið frelsi til þungunarrofs geti skapað „enn meiri og alvarlegri geðrænan vanda“

Björk Vil­helms­dóttir, félags­ráð­gjafi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, telur alltof langt gengið að heim­ila þung­un­ar­rof fram að 22. viku með­göngu.

Aukið frelsi til þungunarrofs geti skapað „enn meiri og alvarlegri geðrænan vanda“

Björk Vil­helms­dóttir, félags­ráð­gjafi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, segir dæmi um að konur fari í þung­un­ar­rof vegna geð­rænna erf­ið­leika ótt­ast að verið sé að „búa til enn meiri og alvar­legri geð­rænan vanda við slíkar aðstæður“ með því að heim­ila þung­un­ar­rof til loka 22. viku með­göngu.

Í frum­varpi Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra til laga um þung­un­ar­rof er lagt til, í sam­ræmi við til­lögur ljós­mæðra og fæð­ing­ar­lækna, að konum verði tryggt sjálfs­for­ræði og fullt ákvörð­un­ar­vald um hvort þær ala barn fram að lokum 22. viku með­göngu óháð því hvað liggur að baki ákvörð­un­inni. Eftir tíma­markið verður heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof ef lífi þung­aðrar konu er stefnt í hættu við áfram­hald­andi þungun eða ef fóstur telst ekki líf­væn­legt til fram­búðar.

Björk Vil­helms­dóttir tjáir sig um málið á Facebook í dag en hún telur alltof gengið „að bjóða upp á þung­un­ar­rof þar til fóstur er orðið líf­væn­legt utan móð­ur­kviðar“.

Spyr hvort veittur verði fæðingarstyrkur vegna áfalls við þungunarrof

„Ég var félags­ráð­gjafi á Kvenna­deild Land­spít­al­ans í 5 ár og veit að að þegar konur missa fóstur langt gengar með, þ.e. meira en 18 vikur, þá hafa þær þurft að fæða fóstrin. Það hefur reynst mörgum konum gríð­ar­legt áfall að ganga í gegnum slíka fæð­ingu. Mér sýn­ist ekk­ert hafa verið fjallað um þessi áföll sem geta leitt af síð­búnu þung­un­ar­rofi og finnst það mjög miður. Vegna þess­ara áfalla hefur verið veittur réttur til fæð­ing­ar­styrks í 2 mán­uði ef kona missir fóstur eftir 18 vikna með­göngu. Rétt­ur­inn er enn meiri eða 3 mán­uðir fyrir hvort for­eldri eftir and­vana fæð­ingu eftir 22. vikna með­göngu. Hvernig eigum við að fara með mál kvenna sem óska eftir þung­un­ar­rofi eftir 18 vikna með­göngu. Verður þá til réttur til fæð­ing­ar­styrks, svo heil­brigð­is­kerfið geti aðstoðað kon­una eftir áfallið sem varð við þung­un­ar­rofið?“

Þá víkur hún að geð­rænum erf­ið­leikum og þung­un­ar­rofi: „Einnig vil ég minna á að stundum fara konur í þung­un­ar­rof vegna geð­rænna erf­ið­leika svo sem þung­lyndis. Þung­lyndi er þess eðlis að þegar það er hvað erf­ið­ast er ómögu­legt fyrir hinn þung­lynda að sjá að lífið geti orðið betra og að bata sé mögu­leiki. Við þær aðstæður er nær­tækt að fara í þung­un­ar­rof. En ekki myndi ég vilja með­höndla konu sem hefur farið í síð­búið þung­un­ar­rof og fætt fóstur, þegar hún hefur náð bata af þung­lynd­inu. Ég held að við værum að búa til enn meiri og alvar­legri geð­rænan vanda við slíkar aðstæður ef leyfa á þung­un­ar­rof til loka 22. viku.“

Hún full­yrðir að núver­andi tíma­mörk hafi „nán­ast aldrei verið til vand­ræða“ og segir „frá­leitt sé að bjóða upp á almenn rétt­indi til þung­un­ar­rofs þar til barn getur lifað utan móð­ur­kviðar.“

Fagfólk gagnrýndi 18 vikna markið

Í upp­haf­legum frum­varps­drögum Svan­dísar Svav­ars­dóttur var miðað við 18 vikna tíma­mark. Þetta var gagn­rýnt harð­lega af fag­fólki, t.d. af Félagi íslenskra fæð­ingar- og kven­sjúk­dóma­lækna sem benti á að með því væri í raun „lagt til að réttur kvenna til þung­un­ar­rofs vegna mjög alvar­legra fóst­ur­vanda­mála þar sem fóstur væri líf­væn­legt væri tak­mark­aður miðað við núgild­andi lög“.

Land­spít­al­inn tók í sama streng og benti á að með 18 vikna mark­inu væri lokað fyrir þann mögu­leika að konur geti valið að enda með­göngu t.d. vegna klof­ins hryggjar, vatns­höf­uðs, litn­inga­frá­vika, hjarta­galla og margra fleiri vanda­mála sem leiddu til fæð­ingar barna sem lifðu með fötlun, lík­am­lega eða and­lega. Ekki væri hægt að greina mörg þess­ara frá­vika fyrr en eftir 18 vikur  og að und­an­far­inn ára­tug hefðu á milli 7 og 10 konur á ári rofið þungun vegna galla sem greindust við 20 vikna fóst­ur­grein­ingu, stundum þrátt fyrir góðar lífslíkur fóst­urs­ins eða jafn­vel miklar líkur á lífi með marg­hátt­uðum aðgerðum og mik­illi aðstoð og skertum lífs­gæðum fyrir barnið. Taldi spít­al­inn hag þessa hóps kvenna og for­eldra ekki tryggðan ef miðað yrði við 18 vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár