Jón Viðar biðst afsökunar: „Þetta var ósmekklegt hjá okkur“

Jón Viðar Arn­þórs­son, stofn­andi ISR á Íslandi, harmar að hafa valdið fólki óþæg­indum með birt­ingu mynd­bands þar sem ofbeldi var haft í flimt­ingum.

Jón Viðar biðst afsökunar: „Þetta var ósmekklegt hjá okkur“

Jón Viðar Arn­þórs­son, bar­daga­þjálf­ari og stofn­andi ISR á Íslandi, hefur beðist afsök­unar á birt­ingu mynd­bands sem hann og systir hans tóku upp til að aug­lýsa nám­skeið í áhættu­leik.

Stundin fjall­aði um málið í gær og ræddi við Jón Viðar, en mörgum var brugðið vegna mynd­bands­ins þar sem gróft ofbeldi var svið­sett og sprellað með að það gæti hjálpað konu að grenn­ast. 

„Ég vil biðj­ast afsök­unar á þessu mynd­bandi, þetta var ósmekk­legt hjá okkur. Mér þykir virki­lega sárt og leið­in­legt að þetta hafi farið fyrir brjóstið á svona mörgum. Var aldrei mark­miðið,“ skrifar Jón á Facebook. „Ég er ekki að gera lítið úr heim­ilsof­beldi og mun aldrei gera. Ég fyr­ir­lít það eins og allt sem teng­ist ofbeldi, lík­am­legu og and­legu. Ég berst gegn því alla daga og mun aldrei hætta því.“

Jón Viðar seg­ist hafa kennt bar­daga­í­þróttir og sjálfs­vörn í 19 ár. Hann hafi það fyrir reglu að þjálfa ekki fólk sem beiti aðra ofbeldi. „Ég hef hik­laust rekið fólk úr Mjölni og ISR (á þriðja tug aðila) sem hafa beitt aðra ofbeldi. Það er eitt­hvað sem ég mun aldrei líða. Ég hef þjálfað á annað þús­und stelpur í sjálfs­vörn, margar af þeim hafa lent í ofbeldi. Ég reyni ég að öllu mætti að gera þær sterk­ari og hjálpa þeim að díla við hræðslu og ef þær skildu lenda í átökum aftur hvernig best er að bregð­ast við.“

„Mér þykir þetta rosa­lega leið­in­legt“

Hann seg­ist auk þess hafa aðstoðað leik­stjóra og kvik­mynda­fram­leið­endur við að setja upp ofbeld­is­full atriði. „Þau geta verið ljót og gróf. En það er bíó, ekki raun­veru­leiki. Þar snýst vinnan mín um að gera þau raun­veru­leg og að eng­inn slas­ist á töku­stað. Enn og aftur, mér þykir þetta rosa­lega leið­in­legt að hafa gert þetta mynd­band, varað ekki við því og póstað því sem gríni á milli okkar systk­in­ana á Stunt síð­una. Var hug­snur­laust í ham­gang­inum hjá okkur. Fyr­ir­gefið enn og aftur.“

Fjöldi fólks skrifar athuga­semdir við færslu Jóns og sendir honum stuðn­ings­kveðjur. „Þú hefur sko gert okkur stelp­urnar sterkar og sterk­ari en við vorum áður en við hófum þjálfun hjá þér og strák­ana líka,“ skrifar ung kona. „Ég get líka vottað að meiri virð­ingu fyrir konum er erfitt að finna í öðrum gyn­mum og öryggi og sam­heldni í hóp eins og við höfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár