Ritstjóri Moggans grípur til varna fyrir Trump

Fjöl­miðlar ham­ast gegn Donald Trump Banda­ríkja­for­seta segir í rit­stjórn­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. For­set­inn hefur ítrekað kallað fjöl­miðla „óvini fólks­ins“.

Ritstjóri Moggans grípur til varna fyrir Trump
Davíð Oddsson Davíð er rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins ásamt Haraldi Johann­es­sen. Mynd: 365/Anton Brink

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, grípur til varnar fyrir Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í rit­stjórn­ar­grein í blað­inu í dag. Hann segir sigur demókrata í þing­kosn­ingum ekki athygl­is­verðan í sögu­legum skiln­ingi og að flokk­ur­inn hafi flæmt frá sér kjós­endur með því að láta rann­saka ásak­anir um að  dóm­ara­efni hafi framið kyn­ferð­is­brot.

Demókratar náðu meiri­hluta í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings í kosn­ing­unum sem fram fóru á þriðju­dag­inn. Í öld­ung­ar­deild­inni bættu repúblikanar við sig þremur sætum, þrátt fyrir að hafa fengið 13 millj­ónum færri atkvæði en demókratar. Ástæðan er að hvert ríki fær tvo öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn, óháð mann­fjölda.

Rit­stjórn­ar­greinar Morg­un­blaðs­ins eru nafn­lausar en ætla má að Davíð Oddsson skrifi þær. Ber hann ábyrgð á blað­inu sem rit­stjóri ásamt Haraldi Johann­es­sen. Morg­un­blað­inu var dreift frítt í dag inn á heim­ili.

„Flestir öfl­ug­ustu fjöl­miðlar lands­ins hafa ham­ast gegn Trump for­seta af mis­kunn­ar­leysi og furðu­lega hömlu­laust frá því að eig­endur þeirra og rit­stjórnir vökn­uðu upp við þann vonda draum að þeirra fram­bjóð­andi, Hillary Clinton, tap­aði fyrir honum þvert á spár,“ segir í grein­inni. „Eig­in­kona hans og börn hafa verið elt á röndum og sætt harðri gagn­rýni fyrir hvað eina og er fróð­legt að bera það saman við dekur fjöl­miðl­anna við sam­bæri­legar fjöl­skyldur úr þókn­an­legum áttum,“ segir í leið­ar­anum. 

Beinir höf­undur næst spjótum sínum að Rík­is­ú­varp­inu. „Þessi fjöl­miðlun hefur smit­ast víða og var með nokkrum ólík­indum að hlusta á talsmáta sér­fræð­ings frá H.Í. í aðal­frétta­tíma „RÚV“, hins fræga „örygg­is­ventils“ þjóð­ar­innar, um kosn­inga­úr­slitin. Var það hvergi nærri því að vera boð­legt.“

Trump hefur ítrekað kallað fjöl­miðla „óvini fólks­ins“. Á mið­viku­dag lét hann banna Jim Acosta, frétta­mann CNN, frá Hvíta hús­inu fyrir að spyrja hann óþægi­legra spurn­inga á frétta­manna­fundi.

Kavanaugh „vammlaust dómaraefni“

Í grein­inni segir að úrslitin verði að skoð­ast í því sam­hengi að venju­lega tapi sá flokkur sem fer með for­seta­emb­ættið þing­sætum í þing­kosn­ingum sem fari fram tveimur árum síðar. Demókrötum hefði hins vegar gengið mun betur ef ekki hefði verið fyrir rann­sókn á ásök­unum um kyn­ferð­is­brot á hendur Brett Kavan­augh sem Trump til­nefndi til setu í hæsta­rétti.

„Yfir­gengi­legar árásir þeirra á vamm­laust dóm­ara­efni til hæsta­réttar Banda­ríkj­anna sneru blað­inu við,“ segir í grein­inni. „Sú aðferð þeirra að fall­ast með hávaða á hvaða ásökun um vemmi­lega glæpi sem birt var þótti mörgum handan við öll mörk. Nú er komið í ljós að um hreinan upp­spuna var að ræða í öllum til­vikum nema hugs­an­lega einu.“

Brett Kavan­augh og Donald TrumpMiklar deilur stóðu um til­nefn­ingu Trump á Kavan­augh í emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara í haust.

Virðist greina­höf­undur þar vísa til eigin orða Trump, sem sagði í ræðu á mánu­dag að kona sem ásak­aði Kavan­augh hafi reynst vera að ljúga. „Það athæfi að heill stjórn­mála­flokkur af stærri gerð­inni taki þá afstöðu að sér­hver „ásökun væri mjög trú­verðug“ (!) og því væri það dóm­ara­efn­is­ins að sanna sak­leysi sitt fyrir umheim­inum flæmdi kjós­endur frá demókrötum.“

Trump nefndi ásakandann ekki á nafn

Þrjár konur hafa stigið fram opin­ber­lega undir nafni og ásakað Kavan­augh fyrir kyn­ferð­is­brot. Kvöldið fyrir kosn­ing­arnar á þriðju­dag sagði Trump í ræðu að kona sem ásak­aði Kavan­augh um til­raun til nauðg­unar hafi dregið ásök­un­ina til baka.

„Sú sem ásak­aði Brett Kavan­augh, mann sem er mjög góður maður, sú sem ásak­aði við­ur­kenndi að hafa aldrei hitt hann, aldrei séð hann, hann hafi aldrei snert hana, talað við hana, hann hafði ekk­ert með hana að gera, hún bjó sög­una til. Það var fölsk ásökun, það var svindl, það var falskt, það var allt falskt,“ sagði Trump við stuðn­ings­menn sína í Missouri.

Virtist hann þar eiga við Dr. Christine Blasey Ford, þá einu af ásak­end­unum sem bar vitni gegn Kavan­augh fyrir Banda­ríkja­þingi og mest hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Hann nefndi hana þó vilj­andi aldrei á nafn þar sem hann var að vísa til fjórðu konu sem ekki bar vitni, hafði lítið verið nefnd opin­ber­lega, en á að hafa sent upp­spunnið bréf til þing­nefnd­ar­innar „til að fá athygli“, segir í New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár