Gefur lítið fyrir gagnrýni verkalýðsleiðtoga og segir þá koma úr „sama klúbbnum“

Jónas Garð­ars­son for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands gefur ekki mikið fyrir þá gagn­rýni sem hann hefur fengið frá helstu leið­togum verka­lýðs­for­yst­unnar. Yfir hund­rað félags­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands hafa farið fram á félags­fund þegar í stað.

Gefur lítið fyrir gagnrýni verkalýðsleiðtoga og segir þá koma úr „sama klúbbnum“
Talar um skemmd­ar­verk Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands, líkir gagn­rýni Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur á for­ystu félags­ins við skemmd­ar­verk.

Jónas Garð­ars­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, gefur lítið fyrir gagn­rýni for­manns ASÍ og for­manna stærstu stétt­ar­fé­laga lands­ins á vinnu­brögð hans og trún­að­ar­manna­ráðs félags­ins þegar Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttur var vikið úr félag­inu á þeirri for­sendu að hún hefði skaðað hags­muni þess.

Nokkrir helstu verka­lýðs­leið­togar lands­ins hafa farið fram á að Sjó­manna­fé­lagið aft­ur­kalli brott­vikn­ing­una þegar í stað. Jónas segir þá vel mega viðra sínar skoð­anir en það breyti því ekki að þeir komi allir úr „sama klúbbnum“. Hann þver­tekur fyrir að hann og félagar hans hafi með hátta­lagi sínu vegið að mál­frelsi, til­lögu­rétti og kjör­gengi Heið­veigar. Þá situr hann fastur við sinn keip og sakar Heið­veigu um að hafa stundað skemmd­ar­verka­starf­semi með ummælum sínum og gagn­rýni.

Yfir hund­rað félags­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands hafa farið fram á félags­fund þegar í stað „í ljósi grafal­var­legrar stöðu félags­ins.“ Þá hefur Sjó­manna­fé­lagið Jötunn í Vest­manna­eyjum nú bæst í hóp þeirra sem for­dæma brott­rekstur Heið­veigar úr …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár