Stjórn VR samþykkti í gærkvöldi að segja upp samningum sínum við Samtök atvinnulífsins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, falaðist eftir þeirri heimild og samþykkti stjórnin það einróma.
Forsenduákvæði í samningum opinberra starfsmanna virkjast, verði þetta niðurstaðan, og geta þá leiðtogar til að mynda BSRB sagt upp samningi sínum við ríkið.
Samningum hefur þó ekki verið sagt upp við þessa ákvörðun stjórnarinnar og hefur Halla til klukkan 16.00 í dag til að segja samningunum upp. Búast má við því að viðræður á milli hennar og Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra SA, fari fram í dag.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar snýst deila VR og SA meðal annars um nýtt forsenduákvæði í framlengdum kjarasamningi. Halla hefur sagt við fjölmiðla í vikunni að nauðsynlegt sé að atvinnurekendur leggi sitt af mörkum.
„Það er ofboðslega erfitt að vera í svona samningaviðræðum þegar maður er einn í þeim,“ sagði Halla um stöðuna í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.
„Við …


























































Athugasemdir