Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu

Formaður Starfs­greina­sam­bands­ins segir VR og Fag­fé­lögin ekki hafa náð fram betri nið­ur­stöðu en Breið­fylk­ingin. Hann segir mögu­lega stytt­ingu samn­inga þeirra háða verð­bólgu­skil­yrðum en eins mán­aðar stytt­ing Breið­fylk­ing­ar­innar sé tryggð.

Hissa
Hissa Það er ekki annað að skilja á skrifum Vil­hjálms en að hann sé hissa á nið­ur­stöð­unni, sem hann óskar félags­fólki VR til ham­ingju með. Mynd: Golli

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands Íslands, segir sam­komu­lag VR og Fag­fé­lag­anna við Samtök atvinnu­lífs­ins ekki hafa skilað launa­fólki neinu umfram það sem Breið­fylk­ingin hafi þegar náð fram. Hann gagn­rýnir fram­göngu Höllu Gunn­ars­dóttur, for­manns VR, harð­lega í færslu á Facebook og kallar atburða­rás­ina „leik­rit“ og „fjöl­miðlasirkus“. 

SamiðHalla samdi, fyrir hönd VR og LÍV, við Samtök atvinnu­líf­is­ins á síð­ustu mín­útu áður en frestur til að segja upp kjara­samn­ingum rann út.

„Ég vil tryggja að launa­fólk haldi ekki að þetta leik­rit hafi skilað ein­hverjum árangri umfram það sem Breið­fylk­ingin hafði þegar náð fram. Miðað við þá nið­ur­stöðu sem kynnt hefur verið er það alls ekki svo,“ skrifar hann.

Vil­hjálmur vísar til þess að Starfs­greina­sam­bandið, Efling og Samiðn hafi samið við SA á þriðju­dags­kvöld um að kjara­samn­ingar héldu þrátt fyrir for­sendu­brest. Umsamdar launa­hækk­anir skili sér að fullu og samn­ings­tím­inn stytt­ist um einn mánuð, þannig að samn­ing­arnir renni út 31. …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár