Samþykktu að slíta kjarasamningum

Stjórn VR hefur sam­þykkt að slíta kjara­samn­ingum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins í dag. For­sendur sem ákveðnar voru í núgild­andi samn­ingi eru brostnar vegna verð­bólgu. Verði samn­ingum slitið virkj­ast for­sendu­á­kvæði í samn­ingum opin­berra starfs­manna.

Stjórn VR sam­þykkti í gær­kvöldi að segja upp samn­ingum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Halla Gunn­ars­dóttir, for­maður VR, fal­að­ist eftir þeirri heim­ild og sam­þykkti stjórnin það ein­róma. 

For­sendu­á­kvæði í samn­ingum opin­berra starfs­manna virkj­ast, verði þetta nið­ur­staðan, og geta þá leið­togar til að mynda BSRB sagt upp samn­ingi sínum við ríkið. 

Samn­ingum hefur þó ekki verið sagt upp við þessa ákvörðun stjórn­ar­innar og hefur Halla til klukkan 16.00 í dag til að segja samn­ing­unum upp. Búast má við því að við­ræður á milli hennar og Bjarna Bene­dikts­sonar, fram­kvæmda­stjóra SA, fari fram í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar snýst deila VR og SA meðal ann­ars um nýtt for­sendu­á­kvæði í fram­lengdum kjara­samn­ingi. Halla hefur sagt við fjöl­miðla í vik­unni að nauð­syn­legt sé að atvinnu­rek­endur leggi sitt af mörkum. 

„Það er ofboðs­lega erfitt að vera í svona samn­inga­við­ræðum þegar maður er einn í þeim,“ sagði Halla um stöð­una í Morg­un­út­varpi Rásar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár