Ekki nýmæli að dæmdar séu skaðabætur vegna lögbrota við stöðuveitingu

Þrjár sjálf­stæð­is­konur hafa furðað sig á dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur und­an­farna daga þar sem umsækj­endum um dóm­ara­emb­ætti voru dæmdar skaða­bætur.

Ekki nýmæli að dæmdar séu skaðabætur vegna lögbrota við stöðuveitingu

S

igríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Hildur Sverr­is­dóttir, vara­þing­kona sama flokks, hafa full­yrt und­an­farna daga að það sé nýmæli að dóm­stóll kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að mann­eskja eigi rétt á skaða­bótum fyrir að hafa ekki fengið starf.  

„Það er nýmæli að hér sé verið að dæma mönnum skaða­bætur fyrir að fá ekki starf sem þeir hafa sóst eftir,“ sagði Sigríður Andersen í Kast­ljósi á fimmtu­dag. „Þarna eru dóm­stólar í fyrsta sinn að dæma skaða­bætur fyrir mann sem fékk ekki starf sem hann á ekki rétt á sam­kvæmt lögum,“ sagði Áslaug Arna í kvöld­fréttum RÚV sama dag. Loks sagði Hildur Sverr­is­dóttir í Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina: „Það er ótrú­lega áhuga­vert – og við vitum nátt­úr­lega ekki hvort þessu verður áfrýjað og hvað ger­ist þá á efra dóm­stigi – að í fyrsta skipti sé verið að gefa skaða­bætur fyrir að fá ekki starf sem þú átt ekki rétt á sam­kvæmt lögum. Það er mjög sér­stakt.“ 

Í dóma­fram­kvæmd und­an­far­inna ára er þó að finna bein dæmi um að við­ur­kennd sé bóta­skylda vegna fjár­tjóns sem fólk varð fyrir vegna þess að gengið var fram­hjá því við ráðn­ingu í störf. Þann 3. júní 2004 komst Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­stöðu að Neyð­ar­línan hefði brotið jafn­rétt­islög þegar gengið var fram hjá konu við ráðn­ingu og þannig bakað henni fjár­tjón. Fyrir vikið bæri Neyð­ar­lín­unni að greiða kon­unni skaða­bætur upp á 1,1 milljón króna. Sams konar dómur var kveð­inn upp rúmum tveimur árum síðar, þann 16. nóv­em­ber 2006. Þá féllst Hæsti­réttur á að Þjóð­kirkjan væri skaða­bóta­skyld eftir að hafa gengið fram hjá konu með ólög­mætum hætti og brotið jafn­rétt­islög við skipun í emb­ætti sendi­ráðs­prests í London. 

„Mjög sérstakt“

Í Viku­lok­unum á laug­ar­dag furð­aði Hildur Sverr­is­dóttir, vara­þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sig á því að hér­aðs­dómur hefði við­ur­kennt skaða­bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart umsækj­end­unum um stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara. „Það er mjög sér­stakt, sér­stak­lega í ljósi þess að það hefur áður gerst að það fer fyrir dóm, t.d. einn sem ég hef í huga varð­andi hjúkr­un­ar­fræð­ing sem fékk ekki starf og það var alger­lega ljóst að í því ferli var ekki sótt nægi­legra gagna og eitt­hvað slíkt, en nið­ur­staðan var samt látin standa og við­kom­andi fékk ekki skaða­bætur en núna í fyrsta skipti þegar dóm­ari á í hlut eru veittar skaða­bætur og ég held það verði mjög áhuga­vert að sjá hvað ger­ist með það.“

Þarna vísar Hildur vænt­an­lega til dóms frá 2002 þar sem tek­ist var á um hvort heil­brigð­is­stofnun hefði bakað sér skaða­bóta­skyldu þegar hjúkr­un­ar­ráð stofn­un­ar­innar lét undir höfuð leggj­ast að óska eftir við­eig­andi gögnum vegna eins umsækj­anda um stöðu hjúkr­un­ar­for­stjóra og taka full­nægj­andi afstöðu til umsókn­ar­innar. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að stofn­unin hefði sýnt fram á fyrir dómi að byggt hefði verið á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og nægi­legar líkur leiddar að því að gagna­öflun og umsögn hjúkr­un­ar­ráðs hefði ekki leitt til ann­arrar nið­ur­stöðu en þeirrar sem varð ofan á. Í ljósi þess var skaða­bóta­kröf­unni og miska­bóta­kröf­unni hafnað. 

Skilyrði bótaskyldu uppfyllt í málum Eiríks og Jóns

Í nýlegum dómum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur vegna lög­brota við skipun dóm­ara í Lands­rétt er bent á að almennt leiði ann­markar á máls­með­ferð og und­ir­bún­ingi stjórn­valds­á­kvörð­unar um veit­ingu emb­ættis ekki einir og sér til bóta­á­byrgðar gagn­vart þeim sem fær ekki slíkt emb­ætti. Í dóma­fram­kvæmd Hæsta­réttar hafi það hins vegar verið talið „for­senda fyrir bóta­skyldu stefnda við slíkar aðstæður að sá sem sækir um opin­bert emb­ætti sýni fram á að lög­mæt með­ferð máls­ins og for­svar­an­legt mat á umsókn og sam­an­burður á hæfni hans og ann­arra umsækj­enda hefði leitt til þess að hann hefði hlotið emb­ættið“. Í þessu sam­hengi er vísað til dóma Hæsta­réttar Íslands frá 19. sept­em­ber 2002 í máli nr. 90/2002, frá 14. apríl 2011 í máli nr. 412/2010 og frá 7. júní 2018 í máli nr. 578/2017.

Hér­aðs­dómur taldi þetta ofan­greinda skil­yrði upp­fyllt í málum Eiríks Jóns­sonar og Jóns Hösk­ulds­sonar, umsækj­enda sem gengið var fram hjá við skipun dóm­ara í Lands­rétt. „Með vísan til þess­ara atriða verður að telja að stefn­andi hafi leitt nægi­lega sterkar líkur að því að lög­mæt með­ferð máls­ins og for­svar­an­legt mat á umsókn og sam­an­burður á hæfni hans og ann­arra umsækj­enda hefði leitt til þess að hann hefði verið skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Er því fall­ist á máls­á­stæðu stefn­anda um við­ur­kenn­ingu á skaða­bóta­skyldu stefnda vegna þess fjár­hags­lega tjóns sem hann varð fyrir vegna ákvörð­unar ráð­herra,“ segir í báðum dómunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár