Einkareknir fjölmiðlar flestir í tapi

Árs­reikn­ingar einka­rek­inna fjöl­miðla sýna við­kvæmt rekstr­ar­um­hverfi. Auðmenn styðja við tap­rekstrur sumra þeirra. Mennta­mála­ráð­herra boðar frum­varp sem styrkir einka­rekstur og dregur úr umsvifum RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði. Frétta­blaðið hefur ekki skilað árs­reikn­ingi.

Einkareknir fjölmiðlar flestir í tapi
Dagblöð Nefnd um einka­rekna fjöl­miðla segir lít­inn tíma gef­ast til að vinna efni og sinna flókn­ari verk­efnum og rann­sókn­ar­blaða­mennsku á Íslandi. Mynd: Shutterstock

Árs­reikn­ingar einka­rek­inna fjöl­miðla bera vott um erfið rekstr­ar­skil­yrði þeirra. Fjár­sterkir aðilar standa að baki sumum þeirra og fjár­magna tap­rekstur. Ráðherra hefur boðað stuðn­ing við rit­stjórnir einka­rek­inna fjöl­miðla, lægri virð­is­auka­skatt á netá­skriftir og veik­ara hlut­verk Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði.

Í skýrslu sinni í jan­úar sagði nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla umhverfið hafa verið erfitt und­an­farin ár. Árs­reikn­ingar und­an­far­inna ára hafi sýnt tap­rekstur flestra fjöl­miðla, nema Birtings, sem gefur út fjölda tíma­rita, og Myllu­set­urs, útgef­anda Við­skipta­blaðs­ins og ann­arra blaða. Í fyrra tap­aði hins vegar Birt­ingur 92 millj­ónum króna og aðeins þrír þeirra einka­reknu fjöl­miðla sem Stundin greindi árs­reikn­inga hjá skil­uðu hagn­aði.

„Ein af helstu áskor­unum íslenskra fjöl­miðla er sá mikli kostn­aður sem felst í því að halda úti öfl­ugum rit­stjórnum og frétta­stofum,“ segir í skýrslu nefnd­ar­innar. „Rit­stjórnir eru fámennar hér á landi og fámennið leiðir til þess að minni tími gefst til að vinna efni og sinna flókn­ari verk­efnum og rann­sókn­ar­blaða­mennsku …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár