Stúdentaráð segir ríkisstjórnina svíkja loforð um eflingu háskólastigsins

„Það liggur í augum uppi að rík­is­stjórnin ætlar sér hvorki að standa við þau lof­orð að háskóla Íslands nái með­al­tali OECD-ríkj­anna né Norð­ur­land­anna á tíma­bil­inu.“

Stúdentaráð segir ríkisstjórnina svíkja loforð um eflingu háskólastigsins
Stúd­enta­ráð er hags­muna­sam­tök nem­enda við HÍ.

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands telur ljóst að stjórn­ar­flokk­arnir ætli að svíkja lof­orðin sem fram komu í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar um að fjár­mögnun íslensks háskóla­stigs­ins náði með­al­tali OECD-ríkj­anna fyrir árið 2020 og með­taltali Norð­ur­landa árið 2025. 

„Til þess að ná með­al­tali OECD-ríkj­anna fyrir árið 2020 þyrfti að auka útgjöld um þrjá millj­arða til háskóla­stigs­ins á næstu tveimur árum. Til þess að ná með­al­tali Norð­ur­land­anna þyrfti háskóla­stigið um það bil tveggja millj­arða aukn­ingu árlega til árs­ins 2025,“ segir í umsögn Stúd­enta­ráðs um fjár­laga­frum­varp árs­ins 2019 sem rík­is­stjórnin kynnti í gær.

„Raun­hækkun háskóla­stigs­ins fyrir árið 2019 er um 705 millj­ónir (1,6%) og fjár­mála­á­ætlun 2019-2023 gerir ráð fyrir um 2,7 millj­arða við­bót næstu fimm árin til háskóla­stigs­ins í heild sinni. Það liggur því í augum uppi að rík­is­stjórnin ætlar sér hvorki að standa við þau lof­orð að háskólar Íslands nái með­al­tali OECD-ríkj­anna né Norð­ur­land­anna á tíma­bil­inu.“

Heild­ar­gjöld háskólastigs árið 2019 eru áætluð 46.688,9 millj­ónir króna í fjár­laga­frum­varp­inu og aukast um 705 millj­ónir á föstu verð­lagi fjárlaga 2018, eða sem svarar til 1,6 pró­senta. Þegar tekið er til­lit til áhrifa almennra launa- og verð­lags­breyt­inga hækka útgjöldin um 2,2 millj­arða milli ára, eða sem svarar 5 pró­sentum. 

Háskóla­stigiðHér má sjá fjárhags­lega þróun málefna­sviðs­ins og ein­stakra málaflokka á tímabil­inu 2017 til 2019.

Stúd­enta­ráð bendir á að á Norð­ur­lönd­unum eru heild­ar­tekjur háskóla á ársnema að með­al­tali 4,4 millj­ónir á ári en á Íslandi aðeins 2,6 millj­ónir. Nemendur á Íslandi fái því um 1,8 millj­ónum krónum minna. Af fjár­laga­frum­varp­inu sé ljóst að fjár­magn á hvern nem­anda muni ekki aukast nema fækkun nem­enda á háskóla­stigi eigi sér stað, svo sem með aðgangs­tak­mörk­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár