Hannes ekki aðalhöfundur heldur eini höfundurinn

„Ég er ekki höfundur þessarar skýrslu,“ skrifar Eiríkur Bergmann.

Fjármálaráðuneytið samdi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um rannsókn á erlendum áhrifaþáttum bankahrunsins.
Fjár­mála­ráðu­neytið samdi við Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands um rann­sókn á erlendum áhrifa­þáttum banka­hruns­ins.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmála­fræði­prófessor er eini höfundur skýrslunnar um erlenda áhrifa­þætti hrunsins. Þetta stað­festir Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, forstöðu­maður Félags­vísinda­stofnunar Háskóla Íslands, í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um málið. 

Í skýrslunni er vísað til Hannesar sem aðal­höfundar (e. main author) en hagfræðingarnir Ásgeir Jónsson og Birgir Þór Runólfsson nefndir sem samstarfs­menn (e. collaborators) auk þess sem fram kemur að Eiríkur Bergmann stjórnmála­fræði­prófessor hafi gengið til liðs við verkefnið á seinni stigum. 

„Ég er ekki höfundur þessarar skýrslu né er ég skráður sem slíkur í henni,“ skrifar Eiríkur Bergmann í umræðum um málið á Facebook. „Ég tók þátt í verk­efninu með því að gera úttekt á Icesave-deilunni“. 

Aðspurð um málið segir Guðbjörg Andrea: „Hannes er eini höfundurinn (þ.e. hann einn skrifaði) en hafði eitthvað samráð við Eirík, Ásgeir og Birgi Þór Runólfsson. Ég hef ekki heyrt um fleiri samstarfs­menn.“ 

Hún segir að Félags­vísinda­stofnun hafi fengið greiddar 7,5 milljónir króna fyrir verkefnið og þær hafi runnið til Hannesar og samstarfs­manna hans. Enn eigi eftir að rukka loka­greiðsluna, 2,5 milljónir. 

Í skýrslu Hannesar er bent sérstak­lega á að hann og samstarfs­menn hans séu ekki alls ótengdir þeim atburðum og viðfangs­efnum sem fjallað er um í skýrslunni. Þannig hafi til dæmis Ásgeir Jónsson verið aðal­hagfræðingur Kaupþings fyrir hrun og Eiríkur Bergmann setið í stjórnlaga­ráði eftir hrun. Fram kemur að samstarfs­mennirnir hafi „gert niður­stöður rannsókna sinna aðgengilegar Hannesi, sem framkvæmdi eigin sjálf­stæðar rann­sóknir, skrifaði skýrsluna og ber sjálfur fulla ábyrgð á henni“. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár