Guðlaugur segir Íslendinga hafa „óumsemjanlegan rétt“ til hvalveiða

„Ekki er unnt að véfengja rétt Íslands til að nýta lif­andi sjáv­ar­auð­lindir á borð við hval með ábyrgum og sjálf­bærum hætti,“ segir utan­rík­is­ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur.

Guðlaugur segir Íslendinga hafa „óumsemjanlegan rétt“ til hvalveiða

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir Íslend­inga hafa óum­semj­an­legan rétt til hval­veiða og ekki sé unnt að véfengja þann rétt.

Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, um við­skipta­hags­muni Íslands í ljósi mót­mæla gegn hval­veiðum. 

„Ekki samið um rétt Íslands“

„Fyrir Íslend­inga sem þjóð svo háðri sjáv­ar­út­vegi og auð­lindum hafs­ins verður ekki samið um rétt Íslands til hval­veiða. Sá réttur er óum­semj­an­legur. Alþjóða­lög og sátt­mála ber að virða og ekki er unnt að véfengja rétt Íslands til að nýta lif­andi sjáv­ar­auð­lindir á borð við hval með ábyrgum og sjálf­bærum hætti – líkt og raunin er,“ segir í svari ráð­herra. Bent er á að fyr­ir­liggj­andi reglu­gerð og kvóta­út­hlutun til hval­veiða renni sitt skeið á enda síðar á þessu ári. Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands vinni nú að mati á þjóð­hags­legum áhrifum hval­veiða, auk þess sem Haf­rann­sókna­stofnun meti fæðu­þörf hvala og vægi hennar í líf­ríki sjávar hér við land. Nið­ur­stöður þeirrar vinnu, auk ann­arra þátta, muni nýt­ast við frek­ari ákvarð­anir er lúta að stefnu Íslands í hval­veiðum.

10 þúsund mótmælabréf til ráðuneytisins

Í svari ráð­herra eru við­brögð alþjóða­sam­fé­lags­ins við hval­veiðum Íslend­inga rakin.  Fram kemur að þann 6. júlí síð­ast­lið­inn, í kjöl­far ákvörð­unar Hvals hf. um að hefja veiðar að nýju, hafi stjórn­völdum verið afhent sam­eig­in­legt erindi ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins, Argent­ínu, Ástralíu, Brasilíu, Síles, Kosta­ríku, Dóminíska lýð­veld­is­ins, Ekvadors, Ísraels, Mexíkós, Mónakós, Panama, Nýja-Sjálands og Banda­ríkj­anna þar sem komið var á fram­færi mót­mælum við veið­unum, einkum á lang­reyði. „Auk þess höfðu í ágúst­byrjun borist rétt rúm­lega tíu þús­und tölvu­skeyti frá ein­stak­lingum vegna ákvörð­un­ar­innar, sem er umtals­vert minna en árið 2006. Þá ber að hafa í huga að hluti þess­ara skeyta barst eftir að blend­ings­hvalur veidd­ist við Ísland sem tengd­ist ekki ákvörðun um veið­arnar en vakti nokkur við­brögð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár