Launakostnaður aðstoðarmanna er 437 milljónir króna

Launa­kostn­aður aðstoð­ar­manna mun nema um 1,7 millj­örðum króna á kjör­tíma­bil­inu en hann hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Aldrei hafa fleiri aðstoð­ar­menn starfað í einu fyrir sömu rík­is­stjórn­ina en í dag eru þeir 22 tals­ins.

Launakostnaður aðstoðarmanna er 437 milljónir króna
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Aldrei hafa fleiri aðstoð­ar­menn starfað í einu fyrir sömu rík­is­stjórn­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Áætlaður heild­ar­launa­kostn­aður vegna aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórnar er 427 millj­ónir króna í ár.

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins. Launa­kostn­að­ur­inn aðstoð­ar­manna árið 2013 nam 175 millj­ónum króna sem runnu til 14 aðstoð­ar­manna.

Alls hafa 24 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar verið ráðnir af rík­is­stjórn Katrínar en í dag eru 22 starf­andi. Það er jafn­framt mesti fjöldi aðstoð­ar­manna sem starfað hefur í einu fyrir rík­is­stjórn en fyrir rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar voru 20 aðstoð­ar­menn að störfum.

Heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna aðstoð­ar­manna ráð­herra nemur því um 1,7 millj­örðum króna á kjör­tíma­bil­inu en mán­að­ar­laun aðstoð­ar­manna eru tæpar 1,2 millj­ónir króna.

Meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra sam­kvæmt lögum Stjórn­ar­ráð Íslands. Stöður aðstoð­ar­manna eru ekki aug­lýstar enda eru þeir pólítískt skip­aðir.

Launakostnaður aðstoðarmanna aukist gríðarlega

Samkvæmt núgild­andi lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands hefur hver ráð­herra heim­ild til þess að ráða tvo aðstoð­ar­menn án aug­lýs­ingar. Þá getur rík­is­stjórnin tekið þá ákvörðun að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar en slík ákvörðun hefur ekki verið tekin enn. „Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort sú heim­ild verði nýtt,“ segir í svari Katrínar.

Kostn­aður vegna rekstur rík­is­stjórn­ar­innar hefur auk­ist um rúmar 200 millj­ónir króna frá árinu 2012 og er áætlað, sam­kvæmt fjár­lögum 2018, að hann nemi 461 milljón króna í ár. Fjár­heim­ildin dugir því rétt rúm­lega fyrir launum aðstoð­ar­mann­anna en þá á eftir að greiða ráð­herr­unum laun. Þannig er ljóst að kostn­að­ur­inn við rekstur rík­is­stjórn­ar­innar mun fara langt fram úr fjár­heim­ildum sam­kvæmt fjár­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár