Umhverfisráðherra Vinstri grænna tjáir sig ekki um dráp á fágætum hval

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son ætlar ekki að tjá sig um frétt Stund­ar­innar. Lítið fer fyrir and­stöðu Vinstri grænna við hval­veiðar eftir stjórn­ar­mynd­un­ina með Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokki.

Umhverfisráðherra Vinstri grænna tjáir sig ekki um dráp á fágætum hval
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra Mynd: Heiða Helgadóttir

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, ætlar ekki að tjá sig um að afar fágætur hvalur hafi verið veiddur við Íslands­strendur og landað í Hval­firði aðfara­nótt sunnu­dags.

Stundin fal­að­ist eftir við­tali við Guðmund vegna máls­ins en þeirri bón var hafnað.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að hval­veiðar, Haf­rann­sókn­ar­stofnun og Fiski­stofa heyri undir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og því lægi beinna við að heyra í Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni.

„Háum upp­hæðum af opin­beru fé hefur
verið kastað á glæ til að styrkja þessa
áhuga­menn um hval­veið­ar.“ 

Guð­mundur gegnir ráð­herra­emb­ætti í umboði Vinstri grænna en flokk­ur­inn sam­þykkti árið 2015 að berj­ast fyrir stækkun griða­svæðis hvala og verndun dýra­lífs í land­inu og gerði það að einu stefnu­mála sinna.

Í sam­þykkt lands­fundar Vinstri grænna sagði árið 2015: „Við veið­arnar er beitt ómann­úð­legum veiði­að­ferðum til að við­halda áhuga­máli örfárra útgerð­ar­manna. Háum upp­hæðum af opin­beru fé hefur verið kastað á glæ til að styrkja þessa áhuga­menn um hval­veið­ar. Nú er mál að linn­i.“ Þá hafa Katrín Jak­obs­dóttir og Svan­dísar Svav­ars­dóttir, ráð­herrar Vinstri grænna, sagt hval­veiðar ósjálf­bærar.

Eftir að Vinstri græn gengu í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum hefur farið minna fyrir and­stöðu flokks­ins við hval­veiðar.

Nýlega lögðu tíu þing­menn fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra yrði falið að „end­ur­meta hval­veiði­stefnu Íslend­inga og greina þjóð­hags­legt mik­il­vægi veið­anna. Við matið verði m.a. horft til hags­muna ann­arra atvinnu­greina eins og ferða­þjón­ustu og sjáv­ar­út­vegs og til­lit tekið til vís­inda­rann­sókna, dýra­vernd­ar­sjón­ar­miða og hags­muna sveit­ar­fé­laga.“

Aðeins tveir þing­menn Vinstri grænna standa að til­lög­unni, þau Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, en þau greiddu bæði atkvæði gegn myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Reglugerð um hvalveiðar ekki breytt

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Vakið var máls á hval­veiðum í tvígang í maí síð­ast­liðnum. Í fyrra skiptið spurði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­kona Við­reisnar, Katrínu, hvort Vinstri græn væru enn á móti hval­veiðum og ef svo væri hvort þau myndu beita áhrifum sínum í rík­is­stjórn til þess að stöðva veið­arnar.

Katrín sagði að hval­veiði­kvót­inn væri gef­inn út til fimm ára og yrði end­ur­skoð­aður í haust. „Það er sér­stök ákvörðun að ganga inn í það og snúa við fyrri ákvörðun, sem ég er ekki viss um að stand­ist,“ sagði Katrín.

Katrín sagði brýnt væri að áður en ný kvóta­á­kvörðun yrði tekið yrði að fara fram mat á umhverf­is­á­hrifum hval­veiða, sam­fé­lags­legum áhrifum og efna­hags­legum. Matið þyrfti að byggj­ast á hug­mynda­fræði sjálf­bærrar þró­unar og skoðað hvort eðli­legt væri að halda áfram hval­veiðum við Íslands­strendur eða ekki. Þá sagði hún Vinstri græn standa við sína stefnu.

Síðar í maí beindi Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, fyr­ir­spurn til Guð­mundar Inga þar sem hann spurði hvert eitt­hvað hefði breyst í stefnu Vinstri grænna varð­andi friðun hvala. „Ef ekk­ert hefur breyst, hvernig hefur flokk­ur­inn þá beitt sér í rík­is­stjórn?“

Guð­mundur Ingi svar­aði eins og Katrín að veið­arnar byggðu á ákvörðun sem tekin væri með reglu­gerð frá árinu 2013 og gilti út árið 2018. „Hvað varðar rík­is­stjórn­ina og áfram­hald á veiðum þá er það nokkuð sem engin ákvörðun hefur verið tekin um, en búið er að ákveða að ráð­ast í úttekt á því hvaða áhrif veið­arnar hafa efna­hags­lega á atvinnu­vegi, fleiri en bara þann sem hér um ræðir,“ sagði Guð­mundur jafn­framt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár