Almannatenglar hjálpuðu til við að auglýsa útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur greitt einka­að­ilum millj­ónir fyrir aðstoð við upp­lýs­inga­gjöf frá 2015. Í mars síð­ast­liðnum samdi ráðu­neytið við Athygli ehf. um ráð­gjöf vegna kynn­ingar á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Almannatenglar hjálpuðu til við að auglýsa útgjaldaaukningu ríkisstjórnarinnar
Aukin útgjöld til vel­ferðar Svandís Svav­ars­dóttir og Ásmundur Einar Daðason eru ráð­herrar þeirra mála­flokka sem heyra undir vel­ferð­ar­ráðu­neytið. Þar hafa útgjöld til flestra mál­efna­sviða auk­ist umtals­vert. Mynd: Alþingi

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið naut aðstoðar almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins Athygli ehf. þegar fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt í fjöl­miðlum í apríl síð­ast­liðnum. Eins og til­kynn­ingar frá ráðu­neyt­inu bera með sér var kapp­kostað að draga upp jákvæða mynd af áformum rík­is­stjórn­ar­innar á sviði heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála og mikið gert úr fyr­ir­hug­aðri útgjalda­aukn­ingu til ýmissa mála­flokka.

„Athygli tekur að sér gerð kynn­ing­ar­efnis og ráð­gjöf fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið vegna kynn­ingar á fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í fjöl­miðlum sem lýtur að mála­flokkum heil­brigðis- og félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra,“ segir í verk­samn­ingi ráðu­neyt­is­ins við Athygli ehf. „Þá eru starfs­menn Athygli reiðu­búnir að veita ráðu­neyt­inu leið­sögn í sam­skiptum við fjöl­miðla ef upp koma álita­efni í fjar­veru fjöl­miðla­full­trúa þess.“

Ráðu­neytið gefur ekki upp hvert tíma­kaup verk­taka var, en á vefnum Opn­ir­reikn­ingar.is kemur fram að ráðu­neytið hafi greitt Athygli ehf. um 330 þús­und krónur í maí. Athygli ehf. er í eigu starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins, að mestu þeirra Valþórs Hlöðvers­sonar, Kolbeins Mart­eins­sonar og Gunnars E. Kvaran. 

Frá árinu 2015 hefur ráðu­neytið greitt öðru fyr­ir­tæki, Góðum sam­skiptum ehf. í eigu almanna­teng­ils­ins Andrésar Jóns­sonar, sam­tals 4,4 millj­ónir fyrir ýmiss konar ráð­gjöf. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Samið var við Góð sam­skipti um að fyr­ir­tækið myndi veita almenna ráð­gjöf og þjón­ustu, svo sem við almanna­tengsl, fram­leiðslu, hug­mynda­vinnu, hags­muna­gæslu og önnur skyld verk­efni. 

Um leið og vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur greitt almanna­tenglum fyrir aðstoð við að koma skila­boðum um heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál á fram­færi við almenn­ing hafa ráð­herrar þeirra mála­flokka sem undir ráðu­neytið heyra ítrekað verið staðnir að rang­færslum eða vill­andi upp­lýs­inga­gjöf.

Til að mynda vakti það nokkra athygli í fyrra þegar þáver­andi rík­is­stjórn kynnti „geð­vanda og sjúkra­hús­þjón­ustu“ sem helstu áherslu­málin í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018. Í ljós kom að í frum­varp­inu var ein­ungis gert ráð fyrir 60 millj­óna fram­lagi úr rík­is­sjóði til að standa undir geð­heil­brigð­is­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, auk þess sem aðeins átti að auka útgjöld til rekst­urs og þjón­ustu Land­spít­al­ans um tæp­lega 600 millj­ónir, brot af því sem stjórn­endur spít­al­ans höfðu full­yrt að þyrfti til að tryggja við­un­andi starf­semi. Sama ár var Þor­steinn Víglunds­son, þáver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, ítrekað stað­inn að rang­færslum um heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál, meðal ann­ars um útgjöld hins opin­bera til Land­spít­al­ans. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár