Launþegahreyfingin ekki með fulltrúa í nefndum um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfis

Aðstoð­ar­menn ráð­herra, vara­for­maður fjár­mála­ráðs og emb­ætt­is­menn stýra vinn­unni. Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, furðar sig á ákvörð­un­inni í ljósi þess að rík­is­stjórnin hefur ítrekað lýst því yfir að haft verði sam­ráð við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og unnið í sam­starfi við sam­tök laun­þega að end­ur­skoðun skatt­kerf­is­ins.

Launþegahreyfingin ekki með fulltrúa í nefndum um endurskoðun tekjuskatts og bótakerfis

Hvorki full­trúar laun­þega né bóta­þega eiga full­trúa í nefndum sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað vegna heild­ar­end­ur­skoð­unar tekju­skatts- og bóta­kerfa ein­stak­linga og fjöl­skyldna.

Rík­is­stjórnin hefur ítrekað sagt, meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu vegna kjara­samn­inga og í grein­ar­gerð fjár­mála­á­ætl­unar, að vinnan við end­ur­skoðun tekju­skatts­kerf­is­ins muni fara fram í sam­ráði við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og í sam­starfi við launa­þega­hreyf­ing­una.

Á fimmtu­dag­inn birt­ist til­kynn­ing á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins þar sem fram kom að tveir hópar hefðu verið skip­aðir vegna þess­arar end­ur­skoð­unar. Annars vegar er um að ræða stýrinefnd þriggja póli­tískra aðstoð­ar­manna ráð­herra undir for­ystu Páls Ásgeirs Guð­munds­sonar, aðstoð­ar­manns Bjarna Bene­dikts­sonar. Hins vegar var skip­aður sér­fræð­inga­hópur þar sem Axel Hall, hag­fræð­ingur og vara­for­maður fjár­mála­ráðs, gegnir for­mennsku. Í hópnum sitja jafn­framt skrif­stofu­stjórar úr ráðu­neytum og sviðs­stjóri hjá rík­is­skatt­stjóra. Fram kemur í til­kynn­ing­unni að stýrinefnd aðstoð­ar­mann­anna muni hafa „reglu­legt sam­ráð við sam­tök laun­þega og aðra þá aðila sem hags­muna eiga að gæta við til­lögu­gerð­ina“. 

Gylfi Arn­björns­sonfor­seti ASÍ

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, seg­ist hafa reiknað með því, í ljósi yfir­lýs­inga rík­is­stjórn­ar­innar, að sam­tökum launa­fólks yrði boðið sæti við borðið. Sá háttur hafi til dæmis verið hafður á í lok átt­unda og níunda ára­tug­ar­ins þegar boðað var til sam­ráðs um skatt­kerf­is­breyt­ingar sam­hliða kjara­samn­ings­gerð. 

„Það að eiga aðild að nefndum eins og þessum felur auð­vitað í sér meiri ábyrgð, en þá er líka mögu­leiki til meiri áhrifa. Og eftir því sem þau áhrif verða meiri og fingraför hags­muna launa­fólks, sér­stak­lega þeirra tekju­lægstu, sýni­legri, þá getur slíkt vel liðkað til við gerð kjara­samn­inga. Ef stjórn­mála­menn vilja slíkt, þá verða þeir að finna leið til þess og þetta er ekki slík leið,“ segir Gylfi og játar að það hafi komið sér á óvart þegar for­sæt­is­ráð­herra gerði honum grein fyrir skipun nefnd­anna.

„Ef stjórn­mála­menn vilja koma að lausn kjara­mála þá verður launa­fólk að sjá fram á breyt­ingar er snerta þau verð­mæti og kjör sem Alþingi ákveður. Til að slíkt geti virkað, til að launa­fólk sé til­búið að bakka með hluta sinnar kröfu­gerðar og semja á öðrum nótum en upp­haf­lega var lagt upp með, þá þurfa stjórn­mála­menn að vera til­búnir að gera eitt­hvað af því sem verka­lýðs­hreyf­ingin telur skipta máli.“

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur

Gylfi telur að kjara­ráðs­fyr­ir­komu­lagið og sá háttur sem nú er hafður á við boðun end­ur­skoð­unar skatt­kerf­is­ins end­ur­spegli þá aðferða­fræði sem hafi ráðið för hjá Bjarna Bene­dikts­syni og Sjálf­stæð­is­flokknum und­an­farin ár, þar sem tækni­leg útfærsla kerf­is­ins sé í for­grunni fremur en hug­myndir um sam­fé­lags­leg áhrif skatt­heimt­unnar og skipt­ingu verð­mæta. „Mér hafa þótt vissir stjórn­mála­menn, einkum Bjarni Bene­dikts­son og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, leggja mjög ríka áherslu á tækni­lega útfærslu skatt­kerf­is­ins en ekki endi­lega hafa sterka póli­tíska stefnu, eða orð­aða stefnu, um áhrif þess á kjör lands­manna,“ segir hann. 

Gylfi bendir á að laun­þega­hreyf­ingin, ekki síst Starfs­greina­sam­bandið, hafi lagt áherslu á að ná fram hækkun lægstu launa í krónu­tölu. „En af því að í tæk­in­legri útfærslu skatt­kerf­is­ins er ákveðið að láta per­sónu­af­slátt fylgja verð­lagi en ekki kaup­gjaldi, þá hefur þetta leitt til kerf­is­bund­innar hækk­unar á skatt­byrði lág­tekju­fólks. Krónu­töl­urnar fylgja ekki kaup­gjaldi, og þetta er auð­vitað stórpóli­tísk ákvörðun, að láta skatt­byðri lág­tekju­fólks hækka við það eitt að verka­lýðs­hreyf­ingin semji um hærra kaup. Þetta ger­ist vegna tækni­legrar útfærslu kerf­is­ins. Það var aldrei lagt fram neitt frum­varp á Alþingi um að hækka skatt­byrði lág­tekju­fólks. Þetta gerð­ist bara sjálf­krafa með athafna­leysi.“

„Þetta hátta­leg er ekki
sam­starf, þetta er ekki sam­ráð“

Gylfi segir ýmis dæmi um það und­an­farna ára­tugi að stjórn­mála­menn hafi átt raun­veru­legt sam­ráð við laun­þega­hreyf­ing­una og hrint af stað aðgerðum í anda þess sem vinn­andi fólk kall­aði eftir. „En núna, Kjararáð og þessar nefndir sem nú eru skip­aðar, þarna er ekk­ert verið að bjóða til neins sam­tals. Hér er bara verið að segja: við ætlum að breyta skatt­kerf­inu og þið megið svo sem alveg lýsa ykkar skoð­unum. Þetta er mjög teknókrat­ískt, skila­boðin eru: Þetta er mitt áhrifa­svæði, ykkur kemur þetta ekki við, þessu ætlum við að ráða. Bjarni er upp­tek­inn af því. Gott og vel, hann gerir það og við semjum svo við atvinnu­rek­endur, en það vantar skiln­ing á því að ef hann vill að launa­menn sveigi sínar kröfur til þá verður hann að vera til­bú­inn að sveigja sínar líka. Aðeins þannig ná menn sátt. Hér er ekki tekið neitt til­lit til þess. Þetta hátta­leg er ekki sam­starf, þetta er ekki sam­ráð, þetta er bara til­kynn­ing.“

Gylfi segir að nefnd­irnar séu skip­aðar góðu fólki. „Þetta er mjög mætt fólk, en þarna virð­ist hins vegar rík­is­stjórnin ekki vera að leggja út í sam­starf heldur vera að fram­fylgja sinni eigin stefnu. Við komum auð­vitað okkar skoð­unum á fram­færi við þessar nefndir, hvernig við teljum skatt­kerfið eiga að vera. En mér er fyr­ir­munað að skilja hvernig þau ætla að tengja þetta kjara­samn­ingum eða láta þetta liðka fyrir þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár