„Sjálfstæðismenn vita að ef þeir endurtaka lygina nógu oft þá fara einhverjir að trúa henni“

Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata, gagn­rýndi Ásmund Frið­riks­son fyrir til­hæfu­lausar ásak­anir og sagði Brynjar Níelsson hafa mis­notað aðstöðu sína sem vara­for­seti Alþingis.

„Sjálfstæðismenn vita að ef þeir endurtaka lygina nógu oft þá fara einhverjir að trúa henni“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, leiddi líkum að því í gær að Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, hefði lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum um við­kvæm barna­vernd­ar­mál til Stund­ar­innar. Þegar hún óskaði eftir því við Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og 2. vara­for­seta Alþingis sem stýrði þing­fundi, að fá að bera af sér sakir varð hann ekki við því og frestaði þing­fundi.

Halldóra fékk loks tæki­færi til að tjá sig um ásak­anir Ásmundar í gær­kvöldi, þegar Stein­grímur J. Sig­fús­son þing­for­seti stýrði fundi.

„Ég kem hér upp til að bera af mér sakir vegna orða sem þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ásmundur Frið­riks­son, lét falla í pontu í sér­stakri umræðu um barna­vernd­ar­mál fyrr í dag. Þar sak­aði Ásmundur Frið­riks­son mig um alvar­leg brot í störfum mínum sem for­maður vel­ferð­ar­nefndar, um trún­að­ar­brest og gagna­leka, sem ég er algjör­lega sak­laus af og það veit þing­mað­ur­inn vel,“ sagði hún.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann sakar mig um slíkt, en Sjálf­stæð­is­menn vita mæta­vel að ef þeir end­ur­taka lyg­ina nógu oft þá fara ein­hverjir að trúa henni. Ég hafna með öllu þessum ásök­unum Ásmundar Frið­riks­sonar og for­dæmi orð hans. Ásakanir þing­manns­ins hafa kastað rýrð á störf mín, störf nefnd­ar­innar, og störf þings­ins.“

„Horfði beint í augun á mér og frestaði
svo fundi í stað þess að gefa mér orðið“

Brynjar Níelssonþing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Halldóra gagn­rýndi einnig Brynjar Níelsson „Þá eru athafnir hátt­virts þings­manns Brynjars Níels­sonar í for­seta­stól Alþingis algjör­lega ófor­svar­an­legar þar sem hann leyfði þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að hafa uppi alvar­legar og grófar aðdrótt­anir í minn garð. Mér var svo ekki gefið tæki­færi á að svara fyrir mig þar sem þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er sat í for­seta­stól huns­aði ítrekað beiðnir mínar um að fá að koma upp í fund­ar­stjórn til að bera af mér sakir, horfði beint í augun á mér og frestaði svo fundi í stað þess að gefa mér orðið. Er mín upp­lifun sú að þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi þarna mis­notað aðstöðu sína sem vara­for­seti Alþingis til að halda á lofti aðdrótt­unum þing­manns Ásmundar Frið­riks­sonar í minn garð. Ég vænti þess að þetta mál fái til­hlýði­lega með­ferð í for­sætis­nefnd Alþingis.“

Bar þungar sakir á formann velferðarnefndar

Ásmundur Frið­riks­son gerði birt­ingu Stund­ar­innar á tölvu­pósti sem hann sendi þing­mönnum vel­ferð­ar­nefndar að umtals­efni í sér­stakri umræðu um barna­vernd­ar­mál á Alþingi í dag. Þá gagn­rýndi hann Halldóru fyrir að hafa ætlað að fjalla um vinnu­brögð Braga Guð­brands­sonar, fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, í ein­stöku máli á opnum nefnd­ar­fundi. 

„Pírötum í þing­inu hefur ekki tek­ist vel upp þegar kemur að með­ferð trún­að­ar­gagna. Meðferð for­manns vel­ferð­ar­nefndar í máli fjöl­skyldu sem tekið var upp í vel­ferð­ar­nefnd er dæmi um óvar­lega með­ferð tölvu­pósta nefnd­ar­manna, og jafn­vel trún­að­ar­gagna. Tölvu­póstur sem ég sendi for­manni nefnd­ar­innar og nefnd­ar­mönnum birt­ist umsvifa­laust í Stund­inni en gögn máls­ins voru birt í því blaði,“ sagði Ásmundur. „Lögmaður aðstand­enda kom í veg fyrir að for­maður nefnd­ar­innar ræddi ein­stak­lega per­sónu­leg mál á opnum fundi í vel­ferð­ar­nefnd og for­mað­ur­inn var kom­inn með málið langt út fyrir eðli­leg mörk en hlut­verk nefnd­ar­innar er að ræða stjórn­sýslu barna­vernd­ar­mála en ekki ein­stök mál eins og vilji for­manns­ins stóð til.“ 

Þá full­yrti hann að Píratar og Stundin ættu í sam­starfi og Stundin hefði „lekið“ per­sónu­legum upp­lýs­ingum. „Samspil Pírata og Stund­ar­innar sem lak per­sónu­legum upp­lýs­ingum í við­kvæmu máli er áhyggju­efni fyrir Alþingi. Sú krafa er gerð til okkar þing­manna að gæta trún­aðar í okkar störfum og aldrei er mik­il­væg­ara að halda trúnað en þegar kemur að við­kvæmum mál­efnum barna og fjöl­skyldna þeirra.“ 

Spurði ráðherra um vinnubrögð Braga

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, átti frum­kvæði að sér­stöku umræð­unni um barna­vernd­ar­mál. Í síð­ari ræðu sinni gagn­rýndi hún Ásmund fyrir að sóa ræðu­tím­anum sínum í skít­kast og aðdrótt­anir gegn kol­legum sínum á Alþingi. 

Þá beindi Þór­hildur spurn­ingu til Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra um vinnu­brögð Braga Guð­brands­sonar fram­bjóð­anda Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

„Ég ætla ekki að fjalla um þetta ein­staka barna­vernd­ar­mál, en hins vegar finnst mér mik­il­vægt að hæst­virtur ráð­herra svari eft­ir­far­andi spurn­ingu sem lýtur almennt að rétt­indum barna og stjórn­sýslu barna­vernd­ar­mála: Telur hæst­virtur ráð­herra að hegðun for­stjóra Barna­vernd­ar­stofa þar sem hann hafði afskipti af ein­stöku barna­vernd­ar­máli án þess að huga að því hvort máls­að­ili kynni að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn barn­inu sem átti í hlut, sam­ræm­ist barna­lögum og barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna? Þetta eru mik­il­vægar spurn­ingar sem varða ekki aðeins þetta ein­staka mál heldur barna­vernd­ar­mál almennt, afstöðu ráð­herra sem fer með barna­vernd­ar­mál í rík­is­stjórn Íslands, til mann­rétt­inda barna og þeirrar grund­vall­ar­kröfu að börn séu alltaf látin njóta vafans.“ 

Þegar Stundin fjall­aði um barna­vernd­ar­málið í Hafn­ar­firði í lok apríl var haft eftir Braga að þegar hann kom að mál­inu hefði hann ekki vitað eða viljað vita hvort faðir barns­ins kynni að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn því. „Ég vissi ekk­ert hvort pabb­inn í þessu til­viki hefði gert eitt­hvað á hlut þessa barns eða ekki. Ég var ekki dóm­bær á það og hafði ekki aðgang að neinum gögnum og hafði í raun og veru engan áhuga á að vita það,“ sagði hann í við­tali við Stundina um málið þann 27. apríl síð­ast­lið­inn.

Ráðherra átti loka­ræð­una í sér­stöku umræð­unni eins og venjan er en náði ekki að svara spurn­ingu Þór­hildar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár