Katrín telur eðlilegt að ráðuneyti Ásmundar beri ábyrgð á framkvæmd og afmörkun óháðrar úttektar

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra túlk­aði spurn­ingar þing­konu um verk­samn­ings­gerð og ábyrgð á fram­kvæmd óháðrar athug­unar sem efa­semdir um heil­indi sér­fræð­ing­anna sem ann­ast verk­efnið.

Katrín telur eðlilegt að ráðuneyti Ásmundar beri ábyrgð á framkvæmd og afmörkun óháðrar úttektar

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir eðli­legt að vel­ferð­ar­ráðu­neytið sjálft ann­ist verk­samn­ings­gerð, afmarki nánar við­fangs­efni og beri ábyrgð á fram­kvæmd athug­unar sem lýtur meðal ann­ars að ráðu­neyt­inu sjálfu og máls­með­ferð þess er varðar til­tekin barna­vernd­ar­mál þrátt fyrir að athug­unin hafi verið kynnt sem óháð úttekt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Þá vísar Katrín því á bug að athug­unin hafi verið boðuð með vill­andi hætti. „Ég var ekk­ert óheið­ar­leg í þeirri fram­setn­ingu og finnst það furðu­legt að nálg­ast það þannig af hátt­virtum þing­manni,“ sagði Katrín í svari við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur á Alþingi í gær.

For­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnti þann 2. maí síð­ast­lið­inn að for­sæt­is­ráð­herra hefði ákveðið að fram færi „óháð úttekt“ á til­teknum málum á sviði barna­verndar sem verið hafa til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og hjá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis. Í umræðum á Alþingi sama dag sagði Katrín meðal ann­ars að hún liti á það sem „skyldu [s]ína sem for­sæt­is­ráð­herra að nýta þær heim­ildir sem ráð­herrar hafa í lögum um Stjórn­ar­ráðið til þess að geta kallað til óháða sér­fræð­inga eins og ég hef nú gert, til þess að láta slíkt mat fara fram“. 

Stundin greindi svo frá því í gær­morgun að ábyrgðin á fram­kvæmd úttekt­ar­innar lægi hjá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem sæi um verk­samn­ings­gerð­ina og nán­ari afmörkun verk­efn­is­ins. Stundin spurði for­sæt­is­ráðu­neytið hvort Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari og Kristín Bene­dikts­dóttir laga­dós­ent fengju starfs­menn sér til aðstoðar við gerð úttekt­ar­innar og hvort ætl­ast væri til þess að þau tækju við­töl eða köll­uðu eftir frek­ari gögnum frá hlut­að­eig­andi aðilum vegna barna­vernd­ar­mál­anna sem Bragi Guð­brands­son hafði afskipti af og kvartað var undan. 

For­sæt­is­ráðu­neytið vís­aði spurn­ingum Stund­ar­innar til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, enda kemur það í hlut þess að afmarka og skil­greina nánar við­fangs­efni og mark­mið athug­un­ar­innar þrátt fyrir að hún hafi verið kynnt sem „óháð úttekt“ á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og lúti sér­stak­lega að vinnu­brögðum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sjálfs og emb­ætt­is­færslum Braga Guð­brands­sonar, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu sem núver­andi félags­mála­ráð­herra kall­aði til starfa innan ráðu­neyt­is­ins sam­hliða kosn­inga­bar­áttu hans vegna fram­boðs til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Úttektin var boðuð eftir að í ljós kom að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hélt því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis að Bragi hefði verið snupraður af ráðu­neyt­inu vegna óeðli­legra afskipta af barna­vernd­ar­máli þar sem Bragi beitti sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega.

Stjórn­völd í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finn­landi bíða eftir nið­ur­stöðu úttekt­ar­innar, enda höfðu ríkin lýst yfir stuðn­ingi við fram­boð Braga Guð­brands­sonar til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðuð þjóð­anna áður en utan­rík­is­ráðu­neytum þeirra var greint frá því að Bragi hefði, að mati íslenska vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, farið út fyrir starfs­svið sitt með óeðli­legum afskiptum af við­kvæmu máli. „Nýlega var okkur greint frá því að sett hefði verið af stað óháð athugun á verk­lagi barna­vernd­ar­yf­ir­valda á Íslandi. Við fylgj­umst með fram­gangi athug­un­ar­innar í gegnum sendi­ráð okkar í Reykja­vík og bíðum frek­ari upp­lýs­inga,“ sagði upp­lýs­inga­full­trúi hjá sænska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu nýlega í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. 

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, gerði athug­un­ina að umtals­efni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær:

„Á vef­miðli Stund­ar­innar í dag kemur fram að vel­ferð­ar­ráðu­neytið ann­ist verk­samn­ings­gerð og semji við úttekt­ar­að­ila, skil­greini verk­efnið og beri ábyrgð á fram­kvæmd þess. Áður en lengra er haldið vil ég segja að ég hef enga ástæðu til að efast um heil­indi þeirra ein­stak­linga sem fengnir hafa verið til að vinna úttekt­ina, en ég vil þó spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra hvort henni finn­ist það heið­ar­leg fram­setn­ing af hennar hálfu að svara fyr­ir­spurn minni um skipan nefnd­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma þann 2. maí á þennan veg, með leyfi for­seta: „Það er hins vegar skylda mín sem for­sæt­is­ráð­herra að nýta þær heim­ildir sem ráð­herrar hafa í lögum um Stjórn­ar­ráðið til þess að geta kallað til óháða sér­fræð­inga, eins og ég hef nú gert, til þess að láta slíkt mat fara fram.“ Í sömu ræðu vís­aði ráð­herra einnig í nauð­syn þess að nýta þessar heim­ildir til að tryggja að þessi mál, barna­vernd­ar­mál, væru hafin yfir allan vafa. Ég vil því spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra: Finnst hæst­virtum ráð­herra þetta heið­ar­leg fram­setn­ing af sinni hálfu? Í öðru lagi: Telur hæst­virtur ráð­herra að nið­ur­staða úttektar sem vel­ferð­ar­ráðu­neytið verk­stýrir um sín eigin verk geti verið hafin yfir allan vafa?“

Katrín svar­aði:

„Herra for­seti. Hátt­virtur þing­maður spyr hvort ég hafi verið óheið­ar­leg í fram­setn­ingu á því hvernig staðið er að úttekt á málum barna­verndar í kjöl­far umfjöll­unar í fjöl­miðlum um þau mál. Ég svara því neit­andi. Ég var ekki óheið­ar­leg í þeirri fram­setn­ingu og finnst furðu­legt af hátt­virtum þing­manni að nálg­ast það þannig.

Stað­reyndir máls­ins eru þær að ég kall­aði til þá sér­fræð­inga sem hér um ræðir, Kjartan Bjarna Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ara og Kristínu Bene­dikts­dóttur dós­ent, og óskaði eftir því að þau myndu fram­kvæma þessa úttekt. Ég lagði fram minn­is­blað í rík­is­stjórn um það mál þar sem rík­is­stjórn­inni var til­kynnt um þetta. Í því minn­is­blaði var sömu­leiðis farið yfir hver verk­efni þess­ara sér­fræð­inga væru.

Í svari mínu við fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns, ef ég man rétt, kom líka fram að verk­efnið væri ekki unnið sam­kvæmt lögum um rann­sókn­ar­nefndir, heldur sam­kvæmt lögum um Stjórn­ar­ráðið. Verk­efnið er að fara yfir máls­með­ferð stjórn­valda í þeim málum sem voru til umfjöll­unar, þ.e. Barna­vernd­ar­stofu, barna­vernd­ar­nefnda og vel­ferð­ar­ráðu­neytis. Hins vegar þarf sam­kvæmt stjórn­ar­ráðslögum greiðsla þessa máls sem verður greidd af ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórnar að fara í gegnum vel­ferð­ar­ráðu­neytið og því er verk­samn­ingur gerður við það.

Það er ekk­ert í þess­ari máls­með­ferð sem dregur úr því að þeir sér­fræð­ingar sem ég fékk til starfans, eins og kom fram í svari mínu við fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns, geti sinnt af heil­indum því verk­efni sem þeim var falið. Úttekt­inni verður skilað til rík­is­stjórn­ar­innar. Í þessu sama minn­is­blaði kom fram að þessi nið­ur­staða yrði líka birt opin­ber­lega þegar hún lægi fyrir. Hátt­virtur þing­maður þarf því ekki að hafa neinar áhyggjur af óheið­ar­leika í þessu máli.“

Þór­hildur kom aftur upp og sagði:

„Herra for­seti. Enn hef ég áhyggjur. Áhyggjur mínar snúa ein­fald­lega að því — og nú spyr ég um heið­ar­lega fram­setn­ingu vegna þess að af orðum hæst­virts ráð­herra mátti skilja að það væri á ábyrgð hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra að skipa þessa óháðu úttekt­ar­að­ila og að í stað þess að þeir ynnu á verk­samn­ingi við vel­ferð­ar­ráðu­neytið myndu þeir vinna á verk­samn­ingi við for­sæt­is­ráðu­neytið, eða a.m.k. ótengdir vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Ég leyfi mér að end­ur­taka síð­ari spurn­ingu mína við hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra. Finnst hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra eðli­legt að nið­ur­staða úttektar sem vel­ferð­ar­ráðu­neytið verk­stýrir verði hafið yfir allan vafa ef það snýr að störfum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sjálfs? Er það trú­verð­ugt?“

Og Katrín svar­aði: 

„Herra for­seti. Það kom fram í máli mínu við fyrri fyr­ir­spurn hátt­virts þing­manns að ég hefði kallað þessa sér­fræð­inga til. Það er sann­leik­anum sam­kvæmt. Það er það sem ég sagði við hátt­virtan þing­mann þá og get stað­fest við hann nú. Það var sömu­leiðis ég sem lagði upp línur verk­efn­is­ins, þ.e. að fara yrði yfir öll gögn og máls­með­ferð þeirra stjórn­valda sem um ræddi. Það liggur hins vegar fyrir að þau gögn liggja fyrir í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt stjórn­ar­ráðslög­unum er þetta á mála­sviði vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Það liggur líka fyrir að það var ósk hæst­virts félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra að hann myndi hvorki stýra verk­efn­inu né því hvaða sér­fræð­ingar yrðu fengnir til verks­ins. En, já, það er rétt, þetta mun fara úr bókum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í gegnum ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórnar. Ef hátt­virtur þing­maður hefur áhyggjur af því, eins og ég sagði áðan, að þeir sér­fræð­ingar muni ekki sinna þessu verk­efni af heil­indum vegna þessa get ég alveg full­vissað hann um að ég hef enga ástæðu til að ætla það.“

Stundin hefur óskað eftir því að fá verk­samn­ing­inn afhentan og ítar­upp­lýs­ingar um afmörkun og mark­mið úttekt­ar­innar. For­sæt­is­ráðu­neytið gat ekki veitt þær upp­lýs­ingar og vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur ekki til­kynnt um mót­töku upp­lýs­inga­beiðn­innar þrátt fyrir að hátt í vika sé liðin síðan for­sæt­is­ráðu­neytið áframsendi hana þangað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár