Bjarni: Einkennilegt að Borgarlína hafi verið gerð að kosningamáli þegar fjármagnið liggur ekki fyrir

Rík­is­stjórnin hefur lýst yfir stuðn­ingi við Borg­ar­línu­verk­efnið í stjórn­ar­sátt­mála en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir „dálítið ein­kenni­legt að menn telji sig geta gengið til kosn­inga og kosið bein­línis um það“, enda liggi fjár­magnið ekki fyrir.

Bjarni: Einkennilegt að Borgarlína hafi verið gerð að kosningamáli þegar fjármagnið liggur ekki fyrir

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra telur að umræðan um Borg­ar­línu sé á villi­götum og furðar sig á að málið hafi verið gert að sér­stöku kosn­inga­máli í nýaf­stöðnum borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. 

„Um þetta mál er það að segja að það er afskap­lega skammt á veg komið í sam­skiptum ríkis og sveit­ar­fé­laga hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði Bjarni þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, gerði fjár­mögnun Borg­ar­línu að umtals­efni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. 

Settu Borg­ar­línu á odd­innSam­fylk­ingin tal­aði ein­dregið fyrir Borg­ar­línu í kosn­inga­bar­áttu sinni.

Að sögn Bjarna hefur rík­is­stjórnin tekið vel í ósk sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að eiga sam­tal við ríkið um Borg­ar­línu. „En ef menn vilja kafa dýpra og spyrja sig hvort að það sé að finna í fjár­mála­á­ætl­un­inni nú þegar fulla fjár­mögnun á þeim hluta sem nefndur hefur verið að falli í skaut rík­is­ins, þá er það nokkuð auð­lesið út úr áætl­un­inni að svo er ekki. Það breytir því ekki að ég geri ráð fyrir því að þetta sam­tal verði form­gert og verði að veru­legu leyti á hendi sam­göngu­ráð­herr­ans að fylgja því eftir,“ sagði hann. 

„En mér finnst, og ég hef lýst því yfir áður, að umræðan um Borg­ar­lín­una hafi í raun og veru farið langt fram úr öllu eðli­legu sam­hengi máls­ins. Það er ein­fald­lega statt þannig að menn hafa bent hér á leið sem menn segja að kosti 70 millj­arða króna, 70 millj­arða. Við erum að tala um fjár­hæð sem hefur staðið í okkur í heilan ára­tug að skrapa saman til þess að end­ur­reisa Land­spít­al­ann. Þetta eru gríð­ar­legar fjár­hæðir. Það er þess vegna dálítið ein­kenni­legt að menn telji sig geta gengið til kosn­inga og kosið bein­línis um það þegar hvor­ugur aðil­inn hefur sýnt fram á að hann hafi úr því að spila sem þarf til að hrinda hug­mynd­inni í fram­kvæmd.“

Mál­flutn­ingur Bjarna er í takt við orð sem hann lét falla í kosn­inga­sjón­varp­inu um helg­ina, en þá tók hann fram að hvorki ríki né sveit­ar­fé­lög hefðu gert ráð fyrir fjár­magni til Borg­ar­línu í áætl­unum sínum.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur þó skýrt fram að „stutt verð[i] við borg­ar­línu í sam­starfi við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“. Minnti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega á þetta í kosn­inga­sjón­varp­inu og aftur í fyr­ir­spurna­tím­anum á Alþingi í dag. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár