Jazztónleikar, Prins Póló og alþjóðasamvinna

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar, eða dag­ana 13. til 27. apríl.

Jazztónleikar, Prins Póló og alþjóðasamvinna
Wadada Leo Smith Wadada Leo Smith leikur af fingrum fram í Mengi og fær til liðs við sig íslenska tón­list­ar­menn. Mynd: Mengi

Create Festival – Wadada Leo Smith

Hvar? Mengi

Hvenær? 13. og 14. apríl

Aðgangs­eyrir 3.500 krónur á hvorn við­burð

Jazztónlistarmaðurinn og trompet­leik­ar­inn Wadada Leo Smith sækir nú Ísland heim eins og hann hefur marg­sinnis gert áður, nú með CREATE tón­list­ar­há­tíð­ina í fartesk­inu. Hún stendur yfir í Mengi í tvo daga, er til­einkuð tón­smíðum Wadada og flutn­ingi þeirra. Samhliða hátíð­inni gefur Mengi út íslenska þýð­ingu Árna Ósk­ars­sonar af Notes: (8 pieces). A Source for Creative Music, bók Wadada sem kom fyrst út árið 1973. Meðan á hátíð­inni stendur munu mynd­ræn tón­verk lista­manns­ins prýða veggi Mengis.  

Prins PólóÞriðja kryddið nefn­ist þriðja breið­skífa hans.

Útgáfutónleikar Prins Póló

Hvar? Iðnó

Hvenær? 27. apríl

Aðgangs­eyrir 3.500 krónur

Boðuð er nístandi ang­ur­værð og hopp­andi stuð á útgáfu­tón­leikum Þriðja krydds­ins, en svo nefn­ist þriðja breið­skífa Prins Póló sem kemur út 27. apríl. Honum til halds og trausts á útgáfu­tón­leik­unum verður Árni+1 úr FM Belfast og verða gömul lög leikin í bland við þau nýju. Forsala á tón­leik­ana er á tix.is.

Kona og Sögur af landiBubbi flytur lög af sóló­plöt­unum á tón­leikum í Eldborg.

Tvær goðsagnir – Kona og sögur af landi

Hvar? Eldborg

Hvenær? 18. apríl

Aðgangs­eyrir 4.990–9.990 

Síðasta vetr­ar­dag mætir Bubbi í Eldborg og flytur í heild tvær af sóló­plötum sínum, Konu og Sögur af landi. Mun hann ásamt hljóm­sveit flytja öll lögin af plöt­unum í upp­runa­legum útgáfum. Mörg af þekkt­ustu lögum Bubba er að finna á plöt­unum tveimur, svo sem Rómeó og Júlía, Talað við glugg­ann og Stúlkan sem starir á hafið.

Poppóperan Vakúm

Hvar? Tjarn­ar­bíó

Hvenær? Frá 12. apríl

Aðgangs­eyrir 2.900–3.900

VakúmFimm söngv­arar og dans­arar verða á svið­inu í Tjarn­ar­bíói.

Samband og mögu­leikar tón­listar og dans­listar eru í fyr­ir­rúmi í poppóp­er­unni Vakúm, eftir Melkorku Sigríði Magn­ús­dóttur. Í tómi örsam­fé­lags­ins Vakúms standa fimm söngv­arar og dans­arar á sviði og takast á við það verk­efni að skapa eitt­hvað úr engu; regla verður að óreiðu, sam­hverf og ósam­hverf mynstur verða til, þögnin fæðir af sér söng.

Fólk, staðir og hlutirVerkið fjallar um leikkon­una og alkó­hólist­ann Emmu.

Fólk, staðir og hlutir

Hvar? Borg­ar­leik­húsið

Hvenær? 13. apríl – frum­sýn­ing

Aðgangs­eyrir 6.250

Vest­ur­port og Borg­ar­leik­húsið, í sam­starfi við Þjóð­leik­húsið í Osló, sam­eina aftur krafta sína í verk­inu Fólk, staðir og hlutir eftir breska leik­skáldið Duncan Macmillan. Verkið fjallar um leikkon­una Emmu, alkó­hólista og lyfjafíkil sem eftir hneyksl­an­legt atvik á leik­svið­inu fellst loks á að fara í afvötnun á með­ferð­ar­stofnun. Fík­ill­inn er meist­ari í lygum og áhorf­and­anum er kippt með inn í ferða­lag þar sem engin leið er að átta sig á hvað er satt og hvað logið.

Barna­bækurSýning Börnin og bæk­urnar þeirra er til­einkuð bók­unum sem börn­unum þykja skemmti­leg­astar.

Börnin og bækurnar þeirra

Hvar? Borg­ar­bóka­safnið – Menn­ing­ar­hús Kringl­unni

Hvenær? 17.–22. apríl

Aðgangs­eyrir Enginn

Í sýn­ing­unni Börnin og bæk­urnar þeirra má sjá börnin í frí­stunda­heim­il­inu Eld­flaug­inni með upp­á­halds­bæk­urnar sínar. Börnin komu með sína upp­á­halds­bók á safnið, völdu úr henni sitt upp­á­halds­at­riði sem þau síðan teikn­uðu. Þá voru þau mynduð af ljós­mynd­ar­anum Adam Dariusz Topolski með upp­á­halds­bók­ina sína.

Alþjóða­mál til umræðuRáð­stefnan fer fram í Norræna hús­inu.

Alþjóðasamvinna á krossgötum 

Hvar? Norræna húsið

Hvenær? 18. apríl

Aðgangs­eyrir eng­inn

Helstu áskor­anir Íslands í breyttu örygg­is­um­hverfi, þjóð­ern­is­hyggja, áhrif lofts­lags­breyt­inga á norð­ur­slóðum og alþjóða­stjórn­mál verður á meðal umfjöll­un­ar­efna á ráð­stefnu Norð­ur­land­anna í fókus og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. 

GleðiFrítt er inn á við­burð­inn fyrir full­orðna í fylgd með börnum.

Sirkussýning og smiðja

Hvar Ráðhús Reykja­víkur

Hvenær 21. apríl

Aðgangs­eyrir Full­orðnir fá frítt í fylgd með börnum

Meðlimir í Sirkús Íslands og Æskusirk­ús­num sam­ein­ast um að sýna listir sínar í Tjarn­ar­sal Ráð­húss­ins. Þegar þau hafa lokið sinni sýn­ingu fá við­stödd börn að spreyta og læra helstu trikkin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár