Skilgreiningu á nauðgun breytt í lögum

Alþingi sam­þykkti í dag breyt­ingar á almennum hegn­ing­ar­lögum þar sem hug­takið nauðgun er end­ur­skil­greint. Samþykki þarf að liggja fyrir við sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök. „Frumvarp þetta er liður í því að breyta við­horfum sem feðra­veldi for­tíðar hefur skapað,“ segir þing­maður Við­reisnar.

Skilgreiningu á nauðgun breytt í lögum

Alþingi sam­þykkti í dag frum­varp um breyt­ingar á almennum hegn­ing­ar­lögum þar sem krafa um sam­þykki er sett í for­grunn við skil­grein­ingu á hug­tak­inu nauðgun. Frum­varpið var sam­þykkt ein­róma, en Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, sat hjá.

Í lög­unum er nú sam­þykki gert að skil­yrði, en áður vís­uðu lögin ein­göngu til ofbeldis, hót­ana eða ann­ars konar ólög­mætrar nauð­ungar, sem for­sendu fyrir að sam­ræði teldis til nauðg­unar. „Hver sem hefur sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við mann án sam­þykkis hans ger­ist sekur um nauðgun og skal sæta fang­elsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum,“ segir í lög­unum nú. „Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef það er fengið með ofbeldi, hót­unum eða ann­ars konar ólög­mætri nauð­ung, eða með því að beita blekk­ingum eða hag­nýta sér villu við­kom­andi um aðstæður. Til ofbeldis telst svipt­ing sjálf­ræðis með inni­lokun, lyfjum eða öðrum sam­bæri­legum hætti.“

Breið sam­staða var um málið á þingi og litlar umræður urðu um það. Tólf þing­menn úr sex flokkum stóðu að frum­varp­inu. Með þessu er fest í lög ákvæði um að sam­þykki þurfi að tjá með frjálsum vilja. „Ekki er talið æski­legt að skil­greina of nákvæm­lega með hvaða hætti sam­þykki skuli tjáð,“ segir í athuga­semdum við frum­varpið. „Hætta er á að lög­gjöf sem setur nákvæm skil­yrði fyrir því hvernig ein­stak­lingar skuli tjá sig verði ekki í sam­ræmi við hvernig mann­leg sam­skipti eru í raun.“

Horfið frá karllægum sjónarmiðum

„Við erum að sam­þykkja hér mál sem ég held að eigi eftir að skipta miklu máli fyrir íslenskt sam­fé­lag,“ sagði Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­kona Vinstri grænna. „Við erum að gefa tón­inn um það að þegar kyn­mök eru stunduð verða báðir eða allir aðilar að vera til í það. Ég held að þetta eigi eftir að hafa mikið for­varna­gildi inn í fram­tíð­ina. Ég vona að við höldum áfram á sömu braut. Þetta er mik­il­vægt skref. Svo þurfum við að halda áfram til þess að útrýma kyn­ferð­is­legu ofbeldi í okkar sam­fé­lagi.“

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, var fyrstu flutn­ings­maður frum­varps­ins. „Frumvarp þetta er liður í því að breyta við­horfum sem feðra­veldi for­tíðar hefur skapað,“ sagði Jón Steindór. „Ekki þarf að minna þing­heim á #höf­um­hátt og síðan #metoo-bylt­ing­una sem farið hefur eins og eldur í sinu um heims­byggð­ina og er Ísland þar engin und­an­tekn­ing. Þar sést svart á hvítu að sam­fé­lagið er gegn­sýrt af við­horfum og þarf með hegðun sem við getum ekki látið við­gang­ast. Það er löngu kom­inn tími til að hverfa frá þeim karllægu sjón­ar­miðum sem end­ur­spegl­ast víða, að við til­teknar aðstæður eigi karl­maður nán­ast rétt á kyn­lífi með konu. Við þurfum að breyta lög­unum til sam­ræmis við rétt­ar­vit­und almenn­ings og beita þeim til þess að breyta við­horfum og hafa áhrif til hins betra á þessu mik­il­væga sviði mann­lífs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár