Baráttan Guðný segir að það sé reiðin yfir stöðu brota­þola sem drífur hana áfram í að berj­ast fyrir rétt­indum þeirra. Hún hefur per­sónu­lega reynslu af kæru­ferl­inu og ber því ekki góða sög­una. Mynd: Golli

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heimilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyðar­móttöku fyrir þolendur kynferðis­ofbeldis á verjanda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er niður­staða Persónu­verndar. Guðný segir ótækt að gerendur í kynferðis­afbrota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að viðkvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara stafrænt kynferðis­ofbeldi af hendi lögreglunnar.“

Þegar Guðný S. Bjarna­dóttir skrifaði undir samþykki um að áverka­myndir sem teknar voru af henni á Neyðar­móttöku Land­spítala fyrir þolendur kynferðis­ofbeldis í október árið 2021 taldi hún að þær færu ekki lengra en til tækni­deildar lögreglu. Það var ekki fyrr en tveimur árum síðar, eftir að mál hennar gegn manni sem hún hafði kært fyrir nauðgun hafði verið fellt niður, sem hún komst að öðru. Myndir sem höfðu verið teknar af henni á viðkvæmasta augna­bliki lífs hennar höfðu verið afhentar verjanda mannsins og áttu þannig greiða leið til þess einstaklings sem hún vildi hvað síst að kæmist yfir myndirnar: Mannsins sem hún kærði.

Högg. Þannig lýsir Guðný tilfinningunni sem hún fékk þegar hún komst að þessu: „Þarna var enn og aftur brotið á mér.“ Áhyggjur af því hvort myndirnar gætu komist í dreifingu vöknuðu.

Guðný, sem um svipað leyti stofnaði Hagsmuna­samtök brotaþola, sá þarna enn einn vankantinn á …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Hvað segir Persónuvernd um svona? Svakalega er þetta ógeðsleg hegðun, mér finnst að það ætti að vera nóg að lögmaður ákærða fengi að skoða myndirnar. Ég (og fleiri) sjáum engan tilgang í að hann fái þær afhentar, fullkomlega nægilegt að hann fái að sjá þær t.d. hjá lögreglu
    6
    • Guðný S. Bjarnadóttir skrifaði
      Þetta er byggt á úrskurði Persónuverndar sem segir að þetta sé í lagi.
      0
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Hvernig í ósköpunum er þetta leyft? Ég fyllist reiði við lesturinn.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár