Varar við harkalegum viðbrögðum múslima verði umskurður bannaður

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins telur hættu á harka­legum við­brögðum múslima ef frum­varp um umskurð drengja verður að lögum. Brynjar Níelsson spyr hvort hefðir rétt­læti það að fjar­lægja lík­ams­parta af börnum.

Varar við harkalegum viðbrögðum múslima verði umskurður bannaður
Birgir Þór­ar­ins­son Varar við því að múslimar bregð­ist illa við banni við umskurði. Mynd: Miðflokkurinn

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, varar við harka­legum við­brögðum múslima verði frum­varp um bann við umskurði að lögum. Í umræðum á Alþingi um frum­varp Silju Daggar Gunn­ars­dóttur í dag sagði Birgir að málið muni vaka mikla nei­kvæða athygli erlendis, skaða sam­skiptin við Ísrael og gera Íslandi erf­ið­ara að taka á móti flótta­mönnum af íslams­trú.

„Verði frum­varpið sam­þykkt má segja að Alþingi, elsta þjóð­þing ver­aldar, hafi ákveðið að tala niður, banna og glæpa­væða einn helsta helgisið ver­aldar,“ sagði Birgir. „Ég tel að við­brögðin erlendis frá muni verða stærri og meiri en við gerum okkur grein fyrir.“

„Múhameðstrú­ar­menn eru þekktir fyrir harka­leg við­brögð telji þeir að vegið sé að trú þeirra.“

Birgir taldi að málið muni vera ósann­gjarnt gagn­vart gyð­ingum, múslimum og hluta krist­inna manna. „Múhameð spá­maður var umskor­inn,“ sagði Birgir. „Múhameðstrú­ar­menn eru þekktir fyrir harka­leg við­brögð telji þeir að vegið sé að trú þeirra. Þekkt eru þau …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umskurður barna

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár