Ferðamaður hótar afleiðingum verði umskurður barna bannaður á Íslandi

Eigandi ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækis birtir póst frá Banda­ríkja­manni sem kveðst ætla að hætta við Íslands­ferð og beita sér gegn íslenskri ferða­þjón­ustu verði umskurður barna bann­aður. „Ef hún nær fram að ganga getið þið búist við afleið­ingum á heims­vísu,“ segir ferða­mað­ur­inn.

Ferðamaður hótar afleiðingum verði umskurður barna bannaður á Íslandi
Ferða­menn við Jök­ulsár­lón Myndin er upp­stillt og úr safni og teng­ist ekki við­kom­andi ferða­mönnum. Mynd: Shutterstock

Eigandi ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Iceland Unlimited segir starfs­mann fyr­ir­tæk­is­ins hafa fengið sendar hót­anir um „afleið­ingar á heims­vísu“ frá banda­rískum ferða­manni, sem kveðst ætla að afbóka ferð sína til Íslands ef látið verður af því að banna umskurð barna hér á landi.

Bréf ferða­manns­insIceland Unlimited barst þetta bréf í kvöld.

Umskurð­ar­frum­varp Silju Daggar Gunn­ars­dóttur og fleiri þing­manna liggur nú fyrir Alþingi. Á fimmta hund­rað íslenskra lækna hafa lýst yfir stuðn­ingi við frum­varpið, sem og hjúkr­un­ar­fræð­ingar.

Í bréfi, sem eig­andi Iceland Unlimited, Jón Gunnar Benja­míns­son, birtir í Facebook-hópnum Baklandi ferða­þjón­ust­unnar, kemur fram að mað­ur­inn hygg­ist beita sér gegn íslenskri ferða­þjón­ustu í sam­fé­lagi gyð­inga og múslima. 

„Við höfum frestað áformum okkar og bíðum ákvörð­unar rík­is­stjórnar ykkar. Ef þessi lög ná fram að ganga munum við hætta við ferð­ina og ferð­ast annað,“ segir í bréfi Banda­ríkja­manns­ins. 

Jón Gunnar hefur kallað eftir umræðu um málið. „Þessi tölvu­póstur barst starfs­manni mínum nú í kvöld en hér er sár­móðg­aður ein­stak­lingur af gyð­inga­ætt, að hætta við að bóka „self-drive“ ferð með okkur vegna til­von­andi frum­varps um bann við umskurði svein­barna, ásamt jafn­framt að hóta því að breiða út sitt „fagn­aðar“-erindi til vina og vanda­manna,“ skrifar hann. Samkvæmt svörum hans hafði mað­ur­inn átt í sam­skiptum við fyr­ir­tækið um ferð­ina áður en hann sendi póst­inn.

Annar ferða­þjón­ustu­að­ili stað­festir á sama stað að hann hafi fengið hót­anir frá sviss­neskri ferða­skrif­stofu um að við­skipti við Ísland verði snið­gengin í kjöl­farið umskurð­ar­frum­varps­ins. „Við umskerum ekki hvít­voð­unga í þágu ferða­iðn­aðar, það er alveg á hreinu!“ segir síðan rekstr­ar­að­ili bíla­leigu.

Bréf bandaríska ferðamannsins 

„Eig­in­kona mín og ég vorum við það að borga inn á ferð­ina þegar við lásum um frum­varp rík­is­stjórnar ykkar um að banna umskurð. Mér þykir þetta vera ant­isemít­ismi (bæði gegn múslimum og gyð­ingum) dul­búið sem „bar­átta fyrir rétt­indum barna“ sem er alger vit­leysa. Við höfum frestað áformum okkar og bíðum ákvörð­unar rík­is­stjórnar ykkar. Ef þessi lög ná fram að ganga munum við hætta við ferð­ina og ferð­ast annað. Ég mun einnig tala gegn íslenskri ferða­þjón­ustu í sam­fé­lagi gyð­inga í Boston og nágrenni og hafa einnig sam­band við bræður okkar og systur í sam­fé­lagi múslima. Ég get aðeins bundið vonir við að rík­is­stjórn ykkar muni halda í snert af vel­sæmi og stöðva þessa ógeð­felldu til­lögu. Ef hún nær fram að ganga getið þið búist við afleið­ingum á heims­vísu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umskurður barna

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár