Gísli kvaldist vegna umskurðar og vill forða börnum frá sömu örlögum

„Þetta gleym­ist aldrei,“ segir Gísli Giss­ur­ar­son, 63 ára maður sem upp­lifði sárs­auka og ævi­langa skömm vegna umskurðar.

Gísli Gissurarson
Gísli Giss­ur­ar­son Harmar að hafa verið umskor­inn í æsku. Hann gleymir aldrei sárs­auk­anum og vill forða börnum frá sömu aðgerðum. Mynd: Shutterstock

„Aðgerðin sjálf, þegar skorið er í einn við­kvæm­asta hluta lík­am­ans, er ekki það versta, heldur eru það dag­arnir á eftir. Svefn­leysið, það hvernig þarf að liggja í sér­stökum stell­ingum til að lina kval­irnar. Sviðinn þegar sárið er sótt­hreinsað. Allt þetta, þetta gleym­ist aldrei,“ segir Gísli Giss­ur­ar­son, 63 ára gam­all maður sem var umskor­inn í æsku.

Hann segir að kval­irnar sem hann upp­lifði séu honum enn minn­is­stæðar. Hann deildi reynslu sinni með Stund­inni, enda seg­ist hann vilja leggja sitt af mörkum til að „vernda börn frá þessum ófögn­uði“. 

„Varanlegt inngrip í líkama barns“

Fyrir Alþingi liggur nú frum­varp níu þing­manna þar sem lagt er til að bannað verði að umskera unga drengi með breyt­ingu á 218. gr. almennra hegn­ing­ar­laga. 

„Umskurður felur í sér var­an­legt inn­grip í lík­ama barns sem getur haft í för með sér mik­inn sárs­auka, auk þess sem slíkri aðgerð fylgir hætta á sýk­ingum og öðrum vanda­málum. Það er mat flutn­ings­manna að drengir sem vilja láta umskera sig af trú­ar­legum eða menn­ing­ar­legum ástæðum taki ákvörðun um slíkt þegar þeir hafa sjálfir náð aldri og þroska til þess að skilja hvað felst í slíkri aðgerð,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem vakið hefur athygli utan land­steina. 

Skömm í skólasundi

„Maður tapar til­finn­ingu í kyn­færum og þetta hefur áhrif á alla kyn­ferð­is­lega reynslu. Aðgerðin og eft­ir­köst hennar eru reynsla sem læs­ist inn í und­ir­með­vit­und barns­ins,“ segir Gísli um afleið­ingar umskurð­ar­ins.

„Það að vera eini strák­ur­inn sem var með afskræmd kyn­færi í leik­fimi og skóla­sundi olli því að maður forð­að­ist þessar greinar. Auk þess upp­lifir maður skömm. Ég hef alltaf haft á til­finn­ing­unni að það sé hrein­lega eitt­hvað að mér, ekki sagt frá þessu og reynt að fela þetta.“ 

„Ég hef alltaf haft á til­finn­ing­unni að
það sé hrein­lega eitt­hvað að mér, ekki
sagt frá þessu og reynt að fela þetta“

Gísla hefur verið tjáð að umskurð­ur­inn hafi verið fram­kvæmdur af lækn­is­fræði­legum ástæðum. Engu að síður telur hann aðgerð­ina hafa haft nei­kvæð áhrif á líf sitt. Trúarleg rök geti ekki rétt­lætt að aðrir séu látnir ganga í gegnum það sama og hann. Nú sé honum efst í huga að öðrum sé hlíft við slíkum örlögum.

„Manna­fórnir, lim­lest­ingar, pynt­ingar eiga sér enga rétt­læt­ingu og allra síst trú­ar­lega. Trú­ar­brögð ættu að vera kær­leiks­hvetj­andi en ekki öfugt. Kval­ar­fullar aðgerðir á börnum eru óvið­un­andi, sér­stak­lega þegar var­an­legur skaði hlýst af.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umskurður barna

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár