Bjarni segir það vera Alþingis, frekar en sitt, að ákveða hvort Sigríði sé sætt á ráðherrastóli

„Tapi menn trausti getur það leitt til breyt­inga á skipan ráð­herra­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Bjarni segir það vera Alþingis, frekar en sitt, að ákveða hvort Sigríði sé sætt á ráðherrastóli

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði áherslu á það í umræðum um póli­tíska ábyrgð og stöðu Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í morgun að Sigríður gegndi ráð­herra­emb­ætti í umboði Alþingis. Það væri Alþingis, frekar en for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að ákveða hvort Sigríði væri sætt á ráð­herra­stóli.

„Hátt­virtur þing­maður þarf því ekki að horfa til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins með það hvort ein­staka ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni starfi áfram í hans skjóli, það er vilji meiri­hluta þings­ins sem hefur úrslita­á­hrif á hvort ráð­herrar sitja í rík­is­stjórn eða ekki. Þetta er þing­bundin stjórn. Það er lagaum­hverfið sem ég og við öll störfum við,“ sagði Bjarni í svari við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata.

Helgi spurði hvort Bjarni, sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, liti svo á að seta Sigríðar Andersen sem dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn væri á hans ábyrgð. Þá benti Helgi á að ekki virt­ist vera póli­tískur vilji fyrir því að virkja ákvæði um Landsdóm og hina laga­legu ráð­herra­á­byrgð. „Það liggur fyrir að ákveðið tóma­rúm er í póli­tískri ábyrgð á Íslandi. Maður hefði þá haldið að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra bæri ábyrgð á setu ann­arra ráð­herra en ef maður spyr hana bendir hún á for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn — ég er aug­ljós­lega að tala um hæst­virtan dóms­mála­ráð­herra — nefni­lega hæst­virtan fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Bjarna Bene­dikts­son. Einn bendir á annan og öll þessi ábyrgð­ar­keðja virð­ist vera heldur óskýr,“ sagði Helgi og bætti við: „Mig langar þá að spyrja hæst­virtan fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hvort hann sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn sé ábyrgur fyrir setu ann­arra ráð­herra síns flokks í rík­is­stjórn. Ef svo er ekki, hver er þá ábyrgur fyrir því?“

Landsdómsfyrirkomulagið enn í gildi

Bjarni Bene­dikts­son benti á að lög um Landsdóm væru sann­ar­lega enn í gildi. „Hafi menn þá sann­fær­ingu að rétt sé að kalla saman lands­dóm skulu menn tala fyrir því. Þetta er fínn vett­vangur til þess. En það er alveg und­ar­legt að sjá sér­fræð­inga og aðra segja að lög­unum hafi verið kippt úr sam­bandi út af orðum sem hafa fallið hér,“ sagði hann og vís­aði þá vænt­an­lega til nýlegrar umfjöll­unar Frétta­blaðs­ins um tóma­rúm í póli­tískri ábyrgð á Íslandi. „Sumir hafa verið þeirrar skoð­unar að þetta sé úrelt fyr­ir­bæri og ég er þeirrar skoð­unar. Það færi vel á því að lögin væru tekin til heild­stæðrar end­ur­skoð­unar og fyr­ir­bærið lands­dómur fellt niður og við færðum þau mál í annan og almenn­ari far­veg, sem sagt það hvernig ráð­herrar eru dregnir til ábyrgðar. En í milli­tíð­inni gilda lögin að sjálf­sögðu.“

Þá vék Bjarni að því í hvers skjóli ráð­herrar sætu í rík­is­stjórn. „Í til­felli Sjálf­stæð­is­flokks­ins legg ég fram til­lögu í þing­flokknum sem fær blessun og ég fer með hana til sam­starfs­flokk­anna. Ég held að þannig hafi það gengið fyrir sig hjá flestum flokkum fram til þessa. Ég styð alla ráð­herra í rík­is­stjórn­inni, þá sem sitja fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins og alla hina.“

Helgi Hrafn spurði hvort það breytti þá engu ef dóms­mála­ráð­herra græfi undan nýju dóms­stigi á Íslandi með lög­broti við skipun dóm­ara. „Nú er svo komið að þessi ágæti þing­flokkur hefur ákveðið þetta. Og hvað? Er þá aldrei snúið við? Hver ber ábyrgð á því að hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra víki þegar hún stendur sig ekki í starf­inu ef ekki for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn?“ 

„Tapi menn trausti getur það meðal
ann­ars leitt til breyt­inga á skipan
ráð­herra­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins“

Í svörum sínum lagði Bjarni áherslu á ábyrgð þings­ins og sagði Helga Hrafn ekki þurfa að horfa sér­stak­lega til sín. „Þetta er þing­bundin stjórn. Það er lagaum­hverfið sem ég og við öll störfum við. Ég var ein­fald­lega að reyna að útskýra fyrir hátt­virtum þing­manni hvernig hlut­irnir ganga fyrir sig á hinum póli­tíska vett­vangi í mínum stjórn­mála­flokki. Þar geta vissu­lega orðið breyt­ingar af ýmsum ástæðum. Tapi menn trausti getur það meðal ann­ars leitt til breyt­inga á skipan ráð­herra­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins eins og hjá öðrum flokkum og eru dæmi um það í sög­unni í hinu íslenska stjórn­mála­lífi.“ Athygli vakti að Bjarni kom Sigríði Andersen ekki sér­stak­lega til varnar en tók sér­stak­lega fram að vel gætu orðið breyt­ingar á skipun ráð­herra­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins ef ráð­herrar glöt­uðu trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár