Bjarni: Góð lífskjör meðal annars krónunni að þakka

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra bendir á að ríki sem hafa valið að deila mynt með öðrum ríkjum á stóru mynt­svæði taka út efna­hags­sveifl­una í gegnum avinnu­leysi.

Bjarni: Góð lífskjör meðal annars krónunni að þakka

Það er eðli­legt að íslenska krónan sveiflist í takt við þróun hag­kerf­is­ins og end­ur­spegli þannig auk­inn hag­vöxt og stór­felldan upp­gang ferða­þjón­ust­unnar. Þetta kom fram í máli Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gerði sveiflur gjald­mið­ils­ins að umtals­efni. „Að mínu mati er óskilj­an­legt hvað atvinnu­rek­endur eru lélegir í því að berj­ast fyrir stöð­ugum gjald­miðli. Það liggur fyrir að ekki er hægt að búa við stöðu á krónu þar sem hún er allt of lít­ill gjald­mið­ill í ólgu­sjó aðþjóða­við­skipta,“ sagði Ágúst og bætti við: „Geng­is­fell­ingar krón­unnar eru aðeins leið til að færa fé frá almenn­ingi til sumra fyr­ir­tækja og skila engu nema hærri verð­bólgu og lak­ari kjörum fyrir launa­fólk. Þess vegna hef ég oft furðað mig á mál­flutn­ingi hv. fjár­mála­ráð­herra þar sem þessi skelfi­legi gjald­mið­ill sem krónan er er var­inn og geng­is­fell­ingar eru jafn­vel taldar til kosta hennar.“

Ágúst Ólafur Ágústs­sonþing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur áhyggjur af krón­unni

Spurði hann Bjarna hvort honum þætti rétt­læt­an­legt að íslenskur almenn­ingur og þorri íslenskra fyr­ir­tækja þyrfti að búa við krón­una og fylgi­fiska hennar, háa vexti og verð­trygg­ingu. „ Telur fjár­mála­ráð­herra að nú séu aðstæður til að hefja á ný umræðu um fram­tíð­ar­til­högun gjald­mið­ils­mála með hugs­an­legri upp­töku stöðugri gjald­mið­ils á borð­inu í ljósi þess að núver­andi stefna gengur ekki upp?“ sagði Ágúst Ólafur.

Bjarni sagði að í ljósi kaup­mátt­ar­aukn­ingar og launa­hækk­ana á Íslandi væri ekki nema von að á ein­hverjum tíma­punkti væri erfitt að halda sama hraða. „Það þýðir ekki að það sé eitt­hvað að gjald­miðl­inum. Íslenska krónan hefur vissu­lega styrkst, en það er einmitt hlut­verk gjald­mið­ils­ins að sveifl­ast í takt við það sem er að ger­ast í hag­kerf­inu. Þannig má segja að sterk­ari króna end­ur­spegli það sem hefur verið að ger­ast hér, auk­inn hag­vöxt, stór­felldan upp­gang ferða­þjón­ust­unnar. Í stað þess að við tókum á móti hálfri milljón ferða­manna fyrir tíu árum síðan tökum við á móti tveimur og hálfri milljón,“ sagði hann. „Þetta eru breyt­ingar. Það eru grund­vall­ar­breyt­ingar á sam­setn­ingu efna­hags­lífs­ins á Íslandi. Við þær aðstæður er ekki við öðru að búast en að gjald­mið­ill­inn styrk­ist — og það er einmitt hans hlut­verk. Enda hefur Seðla­bank­inn sagt: Það er ekki nema von að krónan styrk­ist, hún er að gera nákvæm­lega það sem við ætlum henni að gera.“

Þá sagði Bjarni krón­una hafa sinnt hlut­verki sínu vel, bæði í hrun­inu og núna. „Það hefði verið til skaða ef krónan hefði ekki styrkst við þær breyt­ingar sem eru að verða.“

Ágúst gat ekki tekið undir þetta. „Hvað þarf til að hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra sjái að kostn­aður vegna krón­unnar er að sliga íslensk heim­ili og fyr­ir­tæki? Af hverju vill fjár­mála­ráð­herra koma í veg fyrir að íslenskur almenn­ingur geti notið góðs af stöð­ugum gjald­miðli, lægri vöxtum og engri verð­trygg­ingu? Á sama tíma sér hann ekk­ert athuga­vert við það að stór­fyr­ir­tæki og auð­menn geri upp sín mál í evrum,“ sagði hann. „Krónan er fyrir auð­menn en ekki almenn­ing. Það er eins og maður sé að vega að lóunni þegar maður efast um gildi krón­unnar. Svör hæstv. fjár­mála­ráð­herra sýna svart á hvítu hvaða hags­munum rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur berst fyrir, það eru hags­munir stór­fyr­ir­tækja og banka og auð­manna en ekki almenn­ings og venju­legra fyr­ir­tækja í land­inu. Það er mik­il­vægt að það liggi fyrir þjóð­inni hvað þetta varðar.“

„Þá taka menn efna­hags­sveifl­una út í gegnum avinnu­leysi. Það gerðum við ekki hér á Íslandi“

Bjarni svar­aði á þá leið að svo virt­ist sem þing­mað­ur­inn tryði því að lífs­gæði yrðu mæld í stöð­ug­leika gjald­mið­ils. „Þegar við skoðum alþjóð­lega mæli­kvarða um það hvernig okkur gengur að tryggja góð lífs­kjör á Íslandi þá skipum við okkur fremst meðal þjóða. Þannig er það. Það er ekki þrátt fyrir krón­una, það er meðal ann­ars vegna þess að við höfum okkar eigin gjald­miðil,“ sagði Bjarni. „Ég er hins vegar eng­inn trú­ar­of­stæk­is­maður í þessum efnum. Sann­ar­lega er það svo að sum lönd hafa valið að deila mynt með öðrum á stóru mynt­svæði. Það er þeirra val en við höfum séð afleið­ingar þess á und­an­förnum árum. Þá taka menn efna­hags­sveifl­una út í gegnum avinnu­leysi. Það gerðum við ekki hér á Íslandi þannig að það er alrangt sem hátt­virtur þing­maður segir að verið sé að níð­ast á íslenskum almenn­ingi og hinum venju­lega íslenska borg­ara með því að við höldum úti okkar eigin gjald­miðli. Þvert á móti hefur okkur tek­ist að koma fólki í skjól, tryggja því atvinnu og við höfum síðan á grund­velli okkar eigin gjald­mið­ils byggt upp fram­úr­skar­andi lífs­kjör.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár