Heldur áfram að hnýta í dómnefndina: „Í nefndinni var nú hjúkrunarfræðingur líka“

Ráðherra staldr­aði við að rætt væri um „hóp sér­fræð­inga“, furð­aði sig á Excel-skjali og sagði tveggja blað­síðna bréf sitt hafa að geyma ítar­legri sam­an­burð en 117 blað­síðna umsögn dóm­nefndar.

Heldur áfram að hnýta í dómnefndina: „Í nefndinni var nú hjúkrunarfræðingur líka“

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra vakti sér­staka athygli á því að einn af nefnd­ar­mönnum dóm­nefndar sem mat hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt væri mennt­aður hjúkr­un­ar­fræð­ingur á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun.

„Í hæfn­is­nefnd­inni var nú hjúkr­un­ar­fræð­ingur líka, ég veit ekki hvort það kall­ist sér­fræði­þekk­ing á þessu sviði sko,“ sagði ráð­herra eftir að Helga Vala Helga­dóttir, for­maður þing­nefnd­ar­innar, hafði vísað til dóm­nefnd­ar­innar sem hóps sér­fræð­inga.

Í dóm­nefnd­inni sátu – á grund­velli til­nefn­inga í sam­ræmi við lög um dóm­stóla – þau Gunn­laugur Claessen hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Guðrún Björk Bjarna­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður, Valtýr Sig­urðs­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari, Ingi­björg Pálma­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og hjúkr­un­ar­fræð­ingur, og Halldór Hall­dórs­son, dóm­stjóri hér­aðs­dóms Norð­ur­lands vestra.

Sigríður Andersen gagn­rýndi vinnu­brögð nefnd­ar­innar, einkum Excel-skjal sem hún studd­ist við í vinnu sinni. Sagðist hún hafa verið „mjög hugsi yfir þessu Excel-skjali“ og þeirri nið­ur­stöðu dóm­nefndar að akkúrat 15 ein­stak­lingar teld­ust hæf­astir til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

„Ég skynja það að það hafi fram mjög hlut­lægt mat á umsækj­endum. Ég spurði hvort að þetta væri heppi­leg­asti mæli­kvarð­inn á hæfi umsækj­enda sem er með svona rosa­lega hlut­lægum hætti,“ sagði ráð­herra.

Fullyrðir að tveggja blaðsíðna rökstuðningur sinn sé
ítarlegri en 62 blaðsíðna samanburður dómnefndar

Ráðherra ítrek­aði jafn­framt þá skoðun sem hún setti fram í við­tali sem birt­ist í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í gær­kvöldi. Í við­tal­inu við Kveik sagði hún:  „Í raun­inni rök­styð ég nú kannski mína nið­ur­stöðu örlítið ítar­legar heldur en hæf­is­nefndin rök­studdi umsögn sína. Af umsögn­inni sjálfri er ekki hægt að ráða neinn sam­an­burð á ein­stak­lingum.“

Hið rétta er að í umsögn dóm­nefnd­ar­innar er að finna 62 blað­síðna umfjöllun með ítar­legum sam­an­burði á hæfni umsækj­enda á ýmsum sviðum.

Engan slíkan sam­an­burð er að finna í rök­stuðn­ingi sem fylgdi til­lögu dóms­mála­ráð­herra um dóm­ara­efni til Alþingis, enda er sá rök­stuðn­ingur aðeins tvær blað­síður að lengd og hefur ekki að geyma efn­is­lega umfjöllun um hæfni hvers og eins umsækj­anda, hvað þá ítar­legan sam­an­burð á hæfni þeirra sem sóttu um dóm­ara­emb­ætti.

Vakti athygli á að hjúkrunarfræðingur væri í nefndinni

Þegar Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, vís­aði til dóm­nefnd­ar­innar sem hóps sér­fræð­inga gerði ráð­herra athuga­semd við orða­lagið og tók fram að einn af nefnd­ar­mönnun væri hjúkr­un­ar­fræð­ingur. „Þannig að nefndin er skipuð ýmsum aðilum sem er ágætt held ég en þannig að menn hafi það á hreinu þá er sér­fræði­þekk­ingin af ýmsum toga.“ 

„Í hæfn­is­nefnd­inni var nú hjúkr­un­ar­fræð­ingur líka, ég veit ekki hvort það kall­ist
sér­fræði­þekk­ing á þessu sviði sko“

Með þessum orðum vísar ráherra til Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem var til­nefnd af Alþingi sem vara­maður í dóm­nefnd­inni sem fjall­aði um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður. Hún kom inn vegna þess að Ragn­hildur Helga­dóttir, aðal­mað­ur­inn sem Alþingi til­nefndi, hafði lýst sig van­hæfa í mál­inu.

Ingi­björg er með hjúkr­un­ar­fræði­próf frá Hjúkr­un­ar­skóla Íslands frá 1970 og starf­aði sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur við Sjúkra­hús Akraness um 18 ára skeið. Hún sat svo á Alþingi frá 1991 til 2001, var meðal ann­ars nefnd­ar­maður í heil­brigðis- og trygg­inga­nefnd, félags­mála­nefnd og sjáv­ar­út­vegs­nefnd og gegndi svo emb­ætti heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra frá 1995 til 2001.

Ingi­björg hefur einnig setið í bæj­ar­stjórn Akraness, verið for­seti bæj­ar­stjórnar og setið í stjórn­ar­nefnd um mál­efni fatl­aðra, í stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og stjórn fram­kvæmda­nefndar atvinnu­mála á Akranesi.

Hugsunin á bak við til­nefn­ingar Alþingis í dóm­nefnd­ina er að þar sitji full­trúi almenn­ings, til­nefndur af lög­gjaf­ar­þing­inu sem sækir umboð sitt til lands­manna í kosn­ingum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og flokks­fé­lagi Sigríðar Andersen sem gegndi hlut­verki setts dóms­mála­ráð­herra við skipun átta hér­aðs­dóm­ara nú í byrjun árs, hefur lagt sér­staka áherslu á að í dóm­nefnd­inni sitji full­trúar almenn­ings, „leik­menn en ekki lög­lærðir, sam­bæri­legt því sem ger­ist í Danmörku“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár