Jón Páll sagði starfslok sín „hafa bara ekkert með þetta mál að gera“

Leik­hús­stjór­anum Jóni Páli var gert að víkja taf­ar­laust frá störfum í gær þar sem ekki ríkti lengur traust um störf hans hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar vegna máls sem kom upp í tenglsum við #metoo bylt­ing­una.

Jón Páll sagði starfslok sín „hafa bara ekkert með þetta mál að gera“

„Starfs­lok mín hafa bara ekk­ert með þetta mál að gera.“ Þetta sagði Jón Páll Eyj­ólfs­son, frá­far­andi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, þegar Stundin spurði hann í lok des­em­ber hvort starfs­lok hans hefðu eitt­hvað með alvar­legar ásak­anir að gera, í anda þess sem fjallað hefur verið um undir for­merkjum #MeToo. Þá hafði Jón Páll birt yfir­lýs­ingu á Facebook um að hann hygð­ist segja starfi sínu lausu sem leik­hús­stjóri frá og með 1. jan­úar 2018. Sagði hann ástæð­urnar tengj­ast rekstri og fjár­fram­lögum til leik­húss­ins. 

Í dag var svo greint frá því að Jóni Páli hefði verið gert að víkja taf­ar­laust frá störfum í gær þar sem ekki ríkti lengur traust um störf hans hjá leik­fé­lag­inu. „Stjórn og fram­kvæmda­stjóri Menn­ing­ar­fé­lags Akur­eyrar hafa tekið ákvörðun um að Jón Páll Eyj­ólfs­son leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar starfi ekki út upp­sagn­ar­frest sinn heldur ljúki störfum nú þegar. Byggist sú ákvörðun á því að ekki ríkir lengur traust um hans störf hjá félag­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Menn­ing­ar­fé­lagi Akur­eyrar. 

Í yfir­lýs­ingu sem Jón Páll sendi RÚV nú laust eftir hádegi segir hann að málið snú­ist um atburð sem gerð­ist fyrir ára­tug og ekki innan leik­húss­ins. „Fyrir 5 árum hófst sam­tal við þol­and­ann að hans frum­kvæði og í kjöl­farið höfum við átt í sam­skiptum og stefnt að sátt,” skrifar Jón Páll. „Þegar Metoo vakn­ingin fór af stað gerði ég fram­kvæmda­stjóra MAK strax grein fyrir mál­inu og stöð­unni.” Um svipað leyti til­kynnti hann um starfs­lok sín hjá leik­fé­lag­inu. 

Þegar Stundin ræddi við Jón Pál þann 29. des­em­ber tók hann hins vegar skýrt fram að starfs­lok hans hefðu ekk­ert með ásak­anir um kyn­ferð­is­brot að gera. „Ég skrif­aði mjög langt bréf á Facebook og þetta var ekki auð­veld ákvörðun taka þennan gambít. Ég kláraði að gera hér það sem ég ætl­aði að gera, full­viss um að fylgt yrði eftir stefnu­mál­unum. Svo sit ég uppi með að það kemur ekki leik­hópur hérna,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár