Helgi Hrafn telur borðleggjandi að Sigríður segi af sér: „Tók meðvitaða ákvörðun um að fara á svig við lög“

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, telur að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra eigi að sjá sóma sinn í að segja af sér emb­ætti vegna brota á lögum við skipun dóm­ara við Lands­rétt.

Helgi Hrafn telur borðleggjandi að Sigríður segi af sér: „Tók meðvitaða ákvörðun um að fara á svig við lög“
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Þing­maður Pírata fer fram á afsögn dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, telur að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra eigi að sjá sóma sinn í að segja af sér emb­ætti vegna brota á lögum við skipun dóm­ara við Lands­rétt. Lög­brotin hafi verið aug­ljós og fyr­ir­sjá­an­leg, enda hafi verið varað sér­stak­lega við þeim þegar málið var til umfjöll­unar á Alþingi. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi undir liðnum störf þings­ins nú á öðrum tím­anum.

Hæsti­réttur Íslands komst að þeirri nið­ur­stöðu þann 19. des­em­ber að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefði brotið lög þegar hún fór fram­hjá mati hæfn­is­nefndar við skipun dóm­ara í Lands­rétt. Rannsókn ráð­herra á hæfni umsækj­enda var ófull­nægj­andi og máls­með­ferðin þannig á skjön við 10. gr. stjórn­sýslu­laga um rann­sókn­ar­reglu stjórn­valda.

Fjöldi sér­fræð­inga hafði varað við því að með hátt­semi sinni væri ráð­herra og meiri­hluti Alþingis að brjóta lög, en engu að síður var málið keyrt í gegnum þingið á örfáum dögum með eins manns meiri­hluta.

Helgi Hrafn benti á það í ræðu sinni að í áliti minni­hluta þing­manna í sumar hefði verið vísað til dómafor­dæmis sem benti ein­dregið til þess að máls­með­ferðin hjá ráð­herra væri á skjön við lög.

 

 

 

Fordæmið er dómur Hæsta­réttar í máli nr. 412/2010 frá 14. apríl 2011 þar sem fram kom að ráð­herra hefði, við skipan hér­aðs­dóm­ara í emb­ætti, ekki upp­fyllt rann­sókn­ar­skyldu sína. „Ljóst er að liggja þarf fyrir full­nægj­andi rök­stuðn­ingur fyrir því að þeir umsækj­endur sem ráð­herra leggur til séu a.m.k. jafn­hæfir og þeir sem dóm­nefndin leggur til,“ sagði í áliti og bókun minni­hlut­ans síð­asta sumar, og er nýlegur dómur Hæsta­réttar í sam­ræmi við þetta.

„Það er sama for­dæmi og Hæsti­réttur vísar til nú, Það er ekk­ert nýtt í dómi Hæsta­réttar, ekki neitt. Þetta lá allt fyrir 1. júní,“ sagði Helgi í ræðu sinni.

„Dóms­mála­ráð­herra hæst­virtur tók með­vit­aða ákvörðun um að fara á svig við lögin að mínu mati. Og það á ekk­ert að þurfa að kalla eftir því að hæst­virtir ráð­herra axli þá ábyrgð. Þeir eiga að sjá það í sínum eigin sóma að bregð­ast við slíkum ber­sýni­legum og fyr­ir­sjá­an­legum mis­tökum sem varað var við á sömu efn­is­for­sendum og Hæsti­réttur hefur nú stað­fest, að við­kom­andi ráð­herra axli ábyrgð og að sjálf­sögðu segi af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár