Ríkisfyrirtækið Isavia telur ólöglegt að birta gögn um útboð

Isavia segir að sam­keppn­is­lög komi í veg fyrir að hægt sé að veita Kaffi­tári upp­lýs­ingar um útboðið í Leifs­stöð 2014.

Ríkisfyrirtækið Isavia telur  ólöglegt að birta gögn um útboð
Lögbrot segir Isavia Isavia segir að það fæli í sér lög­brot að afhenda Aðal­heiði Héð­ins­dóttur og Kaffi­tári gögn um útboðið í Leifs­stöð 2014. Mynd: ODD STEFAN

„Það er ekki hægt að segja til um tím­ann á þess­ari stundu því Isavia óskaði eftir frestun rétt­ar­á­hrifa til þess að unnt sé að bera þetta mál undir dóm­stóla,“ segir í svari frá Guðna Sig­urðs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Isavia, þegar hann er spurður um nýlegan úrskurð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál þar sem nefndin kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Isavia þurfi að afhenda fyr­ir­tæk­inu Kaffi­tári gögn um útboð á versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð árið 2014. Stundin spurði Isavia hvenær fyr­ir­tækið ætl­aði að afhenda Kaffi­tári gögnin. Isavia hafði áður veitt Kaffi­tári aðgang að gögnum um útboðið en strik­aði þá yfir upp­lýs­ingar sem fyr­ir­tæk­inu þótti við­kvæmar. 

Í sam­tali við Stundina sagði Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Kaffi­társ, að hún teldi að Isavia væri með þessu að reyna að þæfa málið sem snýst um það að Kaffitár telur að brotið hafi verið gegn fyr­ir­tæk­inu þegar fyr­ir­tæk­inu var synjað um versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð árið 2014. Í stað Kaffi­társ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útboð í Leifsstöð

Í gullstöð Leifs Eiríkssonar á Miðnesheiði
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Í gull­stöð Leifs Eiríks­sonar á Mið­nes­heiði

Harðar deilur hafa staðið um útboðið á versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð árið 2014 og eru tvö mál enn í kerf­inu og eða fyrir dóm­stólum. Fyr­ir­tækin í Leifs­stöð eru flest gull­námur fyrir eig­endur sína og má til dæmis nefna Lag­ar­d­ére Travel Retail sem nær ein­okar sölu á mat­vöru í Leifs­stöð og 66° Norður. Stundin birtir hér úttekt á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð sem sýnir umsvif, tekjur, veltu og hagnað hvers fyr­ir­tækis þar sem þessar upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar.
Deilan um útboð Isavia: 230 milljóna gróði af verslun 66° Norður í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Deilan um útboð Isavia: 230 millj­óna gróði af verslun 66° Norður í Leifs­stöð

Tvö mál vegna útboðs­ins umdeilda á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð árið 2014 eru ennþá fyrir dóm­stólum. Drífa ehf., Icewear, rekur sitt mál fyrir dóm­stólum og Kaffitár reynir að fá upp­lýs­ingar um útboðið eftir opin­berum leiðum. Á meðan græða fyr­ir­tækin, sem Drífa og Kaffitár áttu í sam­keppni við, á tá á fingri í Leifs­stöð ár eftir ár.
Fyrirtæki aðstoðarkaupfélagsstjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Fyr­ir­tæki aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra KS borgar út 100 millj­ónir vegna mat­ar­sölu í Leifs­stöð

Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. hefur greitt tæp­lega 130 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á tveimur fyrstu rekstr­ar­árum sínum. Kaup­fé­lags­stjóri hjá KS, Sigurjón Rúnar Rafnsson, var meðal stjórn­enda félags­ins, sem fékk versl­un­ar­rými í Leifs­stöð í umdeildu útboði árið 2014. Nýir hlut­hafar í Lag­ar­d­ére Travel Retail vilja ekk­ert segja um við­skipti sín. Aða­heiður Héð­ins­dóttir í Kaffi­tári stendur í ströngu við að leita réttar síns gegn rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia út af útboð­inu.
Isavia hafnar því að tengslin við Kaupfélag Skagfirðinga hafi haft áhrif á útboðið í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Isavia hafnar því að tengslin við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi haft áhrif á útboðið í Leifs­stöð

Rekstr­ar­fyr­ir­tæki Leif­stöðvar segir að hag­stæð­asta til­boðið hafi ein­fald­lega verið valið í útboði um versl­un­ar­pláss í Leifs­stöð í fyrra. Isavia mun fara alla leið með mál Kaffi­társ sem enn hefur ekki fengið gögnin um útboðið. Isavia segir að tengsl við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi ekki haft áhrif á að fyr­ir­tæki í eigu íslenska eign­ar­halds­fé­lags­ins NQ ehf. og franska flug­vall­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lag­ar­d­ére fékk úthlutað hús­næði undir sex rekstr­ar­ein­ingar í Leifs­stöð.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár