Fréttamál

Útboð í Leifsstöð

Fréttir

Í gullstöð Leifs Eiríks­sonar á Miðnes­heiði

Harðar deilur hafa staðið um útboðið á verslunar­húsnæði í Leifsstöð árið 2014 og eru tvö mál enn í kerfinu og eða fyrir dómstólum. Fyrir­tækin í Leifsstöð eru flest gullnámur fyrir eigendur sína og má til dæmis nefna Lagardére Travel Retail sem nær einokar sölu á matvöru í Leifsstöð og 66° Norður. Stundin birtir hér úttekt á verslunar­rýminu í Leifsstöð sem sýnir umsvif, tekjur, veltu og hagnað hvers fyrir­tækis þar sem þessar upplýsingar eru aðgengilegar.

8 mín. lestur

Fréttir

Fyrirtæki aðstoðar­kaup­félags­stjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð

Lagardére Travel Retail ehf. hefur greitt tæplega 130 milljóna króna arð til hluthafa sinna á tveimur fyrstu rekstrar­árum sínum. Kaup­félags­stjóri hjá KS, Sigurjón Rúnar Rafnsson, var meðal stjórn­enda félagsins, sem fékk verslunar­rými í Leifsstöð í umdeildu útboði árið 2014. Nýir hluthafar í Lagardére Travel Retail vilja ekkert segja um viðskipti sín. Aðaheiður Héðins­dóttir í Kaffitári stendur í ströngu við að leita réttar síns gegn ríkis­fyrirtækinu Isavia út af útboðinu.
Fréttir

Isavia hafnar því að tengslin við Kaupfélag Skagfirðinga hafi haft áhrif á útboðið í Leifsstöð

Rekstrar­fyrirtæki Leifstöðvar segir að hagstæðasta tilboðið hafi einfald­lega verið valið í útboði um verslunar­pláss í Leifsstöð í fyrra. Isavia mun fara alla leið með mál Kaffitárs sem enn hefur ekki fengið gögnin um útboðið. Isavia segir að tengsl við Kaupfélag Skagfirðinga hafi ekki haft áhrif á að fyrirtæki í eigu íslenska eignarhalds­félagsins NQ ehf. og franska flugvallar­fyrir­tækisins Lagardére fékk úthlutað húsnæði undir sex rekstrar­einingar í Leifsstöð.
Fréttir

Útboðið umdeilda í Leifsstöð: Rekstur fyrir­tækis tengdu Kaup­félagi Skagfirðinga gengur „ágætlega“

Framkvæmda­stjóri Lagardére Travel Retail ehf. sem rekur sex veitingahús og verslanir í Leifsstöð segist vera ánægður með reksturinn á fyrsta árinu. Fyrir­tækið er að hluta til í eigu eiginkonu aðstoðar­kaup­félags­stjóra Kaup­félags Skagfirðinga. Fyrir­tækið var tekið fram yfir Kaffitár sem verið hafði í Leifsstöð í tíu en Kaffitár bíður enn eftir að fá gögn um útboðið sem það átti að fá.

Mest lesið undanfarið ár