Fyrirtæki aðstoðarkaupfélagsstjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð

Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. hefur greitt tæp­lega 130 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á tveimur fyrstu rekstr­ar­árum sínum. Kaup­fé­lags­stjóri hjá KS, Sigurjón Rúnar Rafnsson, var meðal stjórn­enda félags­ins, sem fékk versl­un­ar­rými í Leifs­stöð í umdeildu útboði árið 2014. Nýir hlut­hafar í Lag­ar­d­ére Travel Retail vilja ekk­ert segja um við­skipti sín. Aða­heiður Héð­ins­dóttir í Kaffi­tári stendur í ströngu við að leita réttar síns gegn rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia út af útboð­inu.

Fyrirtæki aðstoðarkaupfélagsstjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð
Risi í Leifs­stöð Fyr­ir­tækið Lag­ar­d­ére Travel Retail rekur fimm versl­anir og veit­inga­staði með ólíkum heitum í Leifs­stöð. Meðal ann­ars Mathús.

Fyr­ir­tækið sem nær ein­okar matar- og veit­inga­sölu í Leifs­stöð á Kefla­vík­ur­flug­velli hagn­að­ist um tæp­lega 182 millj­ónir króna í fyrra og greiðir út 100 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á árinu. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf., sem rekur veit­ing­stað­ina og versl­an­irnar Mathús, Sega­fredo, Nord, Pure Food Hall og Loksins í Leifs­stöð. Arð­greiðslan bæt­ist við tæp­lega 28 millj­óna arð sem greiddur var út árið 2015.

Fyr­ir­tækið var að hluta til í eigu Maríu Krist­ínar Hilm­ars­dóttur, eig­in­konu aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, Sig­ur­jóns Rúnars Rafns­sonar, í gegnum einka­hluta­fé­lagið NQ ehf., sem á 40 pró­senta hlut í Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. 60 pró­senta hlutur í fyr­ir­tæk­inu er í eigu franska flug­vall­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lag­ar­d­ére Travel Services.

Á þeim tíma sem útboðið fór fram var rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins við völd á Íslandi og sátu full­trúar frá þessum stjórn­mála­flokkum í stjórn Isavia. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hefur í gegnum árin verið tengt Fram­sókn­ar­flokknum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útboð í Leifsstöð

Í gullstöð Leifs Eiríkssonar á Miðnesheiði
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Í gull­stöð Leifs Eiríks­sonar á Mið­nes­heiði

Harðar deilur hafa staðið um útboðið á versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð árið 2014 og eru tvö mál enn í kerf­inu og eða fyrir dóm­stólum. Fyr­ir­tækin í Leifs­stöð eru flest gull­námur fyrir eig­endur sína og má til dæmis nefna Lag­ar­d­ére Travel Retail sem nær ein­okar sölu á mat­vöru í Leifs­stöð og 66° Norður. Stundin birtir hér úttekt á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð sem sýnir umsvif, tekjur, veltu og hagnað hvers fyr­ir­tækis þar sem þessar upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar.
Deilan um útboð Isavia: 230 milljóna gróði af verslun 66° Norður í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Deilan um útboð Isavia: 230 millj­óna gróði af verslun 66° Norður í Leifs­stöð

Tvö mál vegna útboðs­ins umdeilda á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð árið 2014 eru ennþá fyrir dóm­stólum. Drífa ehf., Icewear, rekur sitt mál fyrir dóm­stólum og Kaffitár reynir að fá upp­lýs­ingar um útboðið eftir opin­berum leiðum. Á meðan græða fyr­ir­tækin, sem Drífa og Kaffitár áttu í sam­keppni við, á tá á fingri í Leifs­stöð ár eftir ár.
Isavia hafnar því að tengslin við Kaupfélag Skagfirðinga hafi haft áhrif á útboðið í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Isavia hafnar því að tengslin við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi haft áhrif á útboðið í Leifs­stöð

Rekstr­ar­fyr­ir­tæki Leif­stöðvar segir að hag­stæð­asta til­boðið hafi ein­fald­lega verið valið í útboði um versl­un­ar­pláss í Leifs­stöð í fyrra. Isavia mun fara alla leið með mál Kaffi­társ sem enn hefur ekki fengið gögnin um útboðið. Isavia segir að tengsl við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi ekki haft áhrif á að fyr­ir­tæki í eigu íslenska eign­ar­halds­fé­lags­ins NQ ehf. og franska flug­vall­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lag­ar­d­ére fékk úthlutað hús­næði undir sex rekstr­ar­ein­ingar í Leifs­stöð.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár